Styrktarsjóður

Tilgangur Styrktarsjóðs SÁÁ er að styrkja fátæka alkóhólista til þess að greiða sinn hluta í áfengis- og vímuefnameðferð.

Könnun

Ætti SÁÁ að opna sérstakt fjölskyldu- og barnahús?

Ársrit 2007-2010. Gert er grein fyrir starfseminni undanfarin 3 ár og fyrstu áhrifum kreppunnar á meðferðarþjónustu og vímuefnaneyslu.

Dagskráin

Virkur þátttakandi í samfélaginu 

Markmið SÁÁ er m.a. að halda upp öflugri þjónustu við þá sem eiga við áfengis- eða vímuefnavandamál að stríða en sá vandi er mesta böl samtímans á Vesturlöndum. Hver sá einstaklingur sem sigrast á áfengis- eða vímuefnafíkn verður virkur þátttakandi í samfélaginu. Í stað þess að vera byrði á umhverfinu rís upp einstaklingur sem tekst á við skyldur sínar af ábyrgð og áhuga.

 

Breyttur lífsstíll, betra líf

Reynsla okkar af því að takast á við alkóhólisma leiðir okkur að lokum til þeirrar niðurstöðu að breyttur lífsstíll er nauðsynlegur fyrir okkur til að takast á við sjúkdóminn. Menn þurfa að læra að lifa nýju lífi þegar þeir koma úr meðferð.

 

Meðferð SÁÁ í dag stuðlar að því að þeir sem leita eftir aðstoð geti náð tökum á lífi sínu. Ætti næsta skref til bættrar þjónustu að vera meiri fræðsla um hvernig breyttur lífsstíll er nauðsynlegur til að lifa með ólæknandi sjúkdómi og hvernig breyttur lífsstíll er lykillinn að innihaldsríku og skemmtilegu lífi? Fræðsla um að "krónískur" sjúkdómur kalli á breyttan lífsstíl alla æfi og að þessi breytti lífsstíll sé ekki aðeins erfið kvöð fyrir sjúklingana heldur í flestum tilvikum ávísun á betra líf en þeir hefðu annars öðlast?

Eiga Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann að byggja upp miklu meiri stuðning frá samtökunum? Þurfum við að styðja, mennta, kenna, skemmta og hjálpa fólki til að kynnast öðru edrúfólki og til að eignast vini og maka sem ekki eru í neyslu?

 

Mannræktarstöð SÁÁ?

Á SÁÁ að færa út kvíarnar svo við getum hjálpað alskonar fólki - ekki endilega dauðveikum fíklum - til að öðlast betri lífsstíl, breyttan lífsstíl? Fólk þarf að hætta að reykja og fólk þarf að megra sig. Fólk þarf að ná valdi á streitu og fólk þarf jafnvel að fá upplýsingar um undirstöðuatriði í fjármálum og heimilisrekstri. Fólk þarf að fá leiðbeiningar um að lífið skipuleggi sig ekki sjálft heldur sé nauðsynlegt að hafa stjórn á því eftir föngum. Það er ekki nóg að læra iðngrein eða fara í háskóla og sækja sér prófgráðu - múrari eða lögfræðingur getur verið gersamlega áttavilltur þegar kemur að því að kunna að lifa lífinu. Eiga samtökin þá að koma til skjalanna með Mannræktarstöð SÁÁ?


Mikil þörf er fyrir fjármagn til að styðja vímuefnafíkla félagslega að meðferð lokinni og til forvarna af ýmsu tagi. Eðlilegt væri að tekjur samtakanna af fjáröflunum færu að stærri hluta til slíkra verkefna og í minna mæli til að borga rekstararhalla af lögboðnum sjúkrarekstri.


 

 

Ef þú hefur áhuga á að fá svör við því hvort áfengisneysla þín eða einhvers sem þú þekkir er eðlileg eða ekki ættir þú að fá nokkuð nákvæmt svar ef þú svarar þessum spurningum samviskusamlega.
Spjallið
S
M
Þ
M
F
F
L
29
1
2
3
4

5
6
7
8
9
10
11

12
13
14
15
16
17
18

19
20
21
22
23
24
25

26
27
28
29
30
1
2

3
4
5
6
7
8
9

Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Leiðir til bata Reynsluspor Al-Anon, erfðavenjur og þjónustuhugtök 4-6
4 – 6. spor. Vinnubók er sett saman af reynslu, styrk og vonum hundruð Al-Anon félaga.

Minningarkort er einföld en áhrifarík leið til að sýna samúð í verki þegar orða er vant.