SÁÁ

Á næstunni

Könnun

Finnst þér ímynd SÁÁ meðal almennings...

Atburðadagatal

7  22. febrúar 2010  8

mánudaginn 22. febrúar 2010

Viðtalsþjónustan í Göngudeild SÁÁ í Reykjavík

í VON, Efstaleiti 7, Reykjavík
Ráðgjafar í göngudeild sinna viðtölum við fíkla og aðstandendur þeirra á virkum dögum milli 09:00 og 17:00. Ekki er nauðsynlegt að panta viðtal fyrirfram. Hvert viðtal kostar kr. 2000,00
Sjá vefslóð: http://www.saa.is/islenski-vefurinn/a-dofinni/dagskra-gongudeildar-rvk/

mánudaginn 22. febrúar 2010

Daglegur stuðningshópur í Göngudeild SÁÁ

í VON, Efstaleiti 7, Reykjavík
Daglegur stuðningshópur kemur saman milli kl. 11:00 og 12:00 alla virka daga. Þeir sem eru að koma til skráningar í hópinn þurfa að mæta 1/2 tíma fyrr eða kl. 10:30 í fyrsta skipti. Hópurinn kostar kr. 7.000,00
Sjá vefslóð: http://www.saa.is/islenski-vefurinn/a-dofinni/dagskra-gongudeildar-rvk/

mánudaginn 22. febrúar 2010

Meðferðarhópur Göngudeildar - morgunhópur kl. 09:00 - 12:00

í VON, Efstaleiti 7, Reykjavík
hittist mánudaga til fimmtudaga. Markmið meðferðarinnar er að auka skilning þátttakenda á fíknisjúkdómnum og hvernig hægt er að ná bata. Það er gert með fræðslu og vinnu að sameiginlegum verkefnum í hóp. Hver og einn fær tækifæri til að taka á sínum málum með aðstoð ráðgjafa enda er meðferðin einstaklingsmiðuð. Vinna að sérstökum verkefnum er utan hefðbundins meðferðartíma.
Sjá vefslóð: http://www.saa.is/islenski-vefurinn/a-dofinni/dagskra-gongudeildar-rvk/

mánudaginn 22. febrúar 2010

Kvennaleikfimi - opinn tími

í VON, Efstaleiti 7, Reykjavík
Agnes Amalía kennir almenna kvennaleikfimi sem fer fram alla mánudaga og miðvikudaga kl. 09:00 - 09:50. Farið er í líkamsbeitingu, teygjur og slökun í bland við "maga, rass og læri" æfingar, STOTT PILATES og fleira, þannig að allir geta verið með óháð fyrri reynslu af líkamsrækt. Allar konur er velkomnar, en Agnes veitir nánari upplýsingar í síma 821-5593 eða með rafpósti agnes@centrum.is.
Sjá vefslóð: http://www.saa.is/islenski-vefurinn/a-dofinni/dagskra-gongudeildar-rvk/

mánudaginn 22. febrúar 2010

Kvennahópur I

í VON, Efstaleiti 7, Reykjavík
Kvennahópur I hittist alla mánudaga og alla fimmtudaga. Þær sem stunda hópinn fyrir hádegi mæta alltaf kl. 10:00, en þær konur sem geta eingöngu verið eftir hádegi mæta kl. 16:00. Annan hvern fimmtudag er aðstandendum boðið með í hópinn og á fræðslufyrirlestur milli kl. 10:00 - 11:00 fyrir hádegi. Eftir hádegi er fyrirlesturinn milli kl. 15:00 og 16:00 og hópfundurinn strax á eftir til 17:00.
Sjá vefslóð: http://www.saa.is/islenski-vefurinn/a-dofinni/dagskra-gongudeildar-rvk/

mánudaginn 22. febrúar 2010

Bati fyrir börnin - sálfræðiþjónusta fyrir börn fíkla

í VON, Efstaleiti 7, Reykjavík
Bati fyrir börnin er úrræði sem Lárus Blöndal sálfræðingur hefur þróað fyrir SÁÁ og er ætlað börnum alkóhólista og fíkla á aldrinum 7 - 17 ára. Tímapantanir eru í síma 5307600.
Sjá vefslóð: http://www.saa.is/islenski-vefurinn/a-dofinni/dagskra-gongudeildar-rvk/

mánudaginn 22. febrúar 2010

Stuðningshópur aðstandenda kl. 16:00 - 17:00

í VON, Efstaleiti 7, Reykjavík
Stuðningshópur aðstandenda er vikulegur stuðningshópur sem þeir einstaklingar sem hafa lokið fjölskyldumeðferð hjá SÁÁ geta sótt fjórar vikur í senn.
Sjá vefslóð: http://www.saa.is/islenski-vefurinn/a-dofinni/dagskra-gongudeildar-rvk/

mánudaginn 22. febrúar 2010

U-hópur - stuðningshópur/eftirfylgni, Kl. 18:00

í VON, Efstaleiti 7, Reykjavík
Stuðningshópur/eftirfylgni fyrir unglinga/ungt fólk kemur saman og fundar með ráðgjöfum í VON alla mánudaga og alla miðvikudaga kl. 18:00. Einu sinni í mánuði fer hópurinn saman út að borða eftir hópstarf og einu sinni í mánuði er sérstakur fyrirlestur fyrir hópinn. Viðtöl við ráðgjafa eru í boði sömu daga og hópurinn er.
Sjá vefslóð: http://www.saa.is/islenski-vefurinn/a-dofinni/dagskra-gongudeildar-rvk/

mánudaginn 22. febrúar 2010

Spilafíklar - stuðningshópur/eftirfylgni

í VON, Efstaleiti 7, Reykjavík
Stuðningshópur/eftirfylgni fyrir spilafíkla kemur saman og fundar með ráðgjafa alla mánudaga kl. 18:00.
Sjá vefslóð: http://www.saa.is/islenski-vefurinn/a-dofinni/dagskra-gongudeildar-rvk/

mánudaginn 22. febrúar 2010

Viðtalaþjónusta í Reykjanesbæ

í VON, Efstaleiti 7, Reykjavík
Á hverjum mánudegi fer ráðgjafi úr Göngudeild SÁÁ í Reykjanesbæ og veitir viðtalaþjónustu þar. Tímapantanir eru í síma 4216700.
Sjá vefslóð: http://www.lundur.net

mánudaginn 22. febrúar 2010

Foreldrafræðsla og foreldrahópur í Reykjanesbæ

í LUNDI í Reykjanesbæ
Á hverjum mánudegi fer ráðgjafi úr Göngudeild SÁÁ í VON og flytur fyrirlestur fyrir foreldra í Reykjanesbæ og nágrenni. Fyrirlestrarnir eru öllum opnir og í framhaldinu er stuðningshópur fyrir foreldra fíkla.
Sjá vefslóð: http://www.lundur.net

mánudaginn 22. febrúar 2010

Fjölskyldumeðferð SÁÁ kl. 17:30 - 20:00

í VON, Efstaleiti 7, Reykjavík
Fjölkyldumeðferð SÁÁ er á dagskrá kl. 17:30 til 20:00 mánudaga og miðvikudaga og hittist hver hópur 2 x í viku í fjórar vikur. Þetta er einstaklingsmiðuð hópmeðferð fyrir þá sem hafa búið við fíknisjúkdóma annara. Í meðferðinni er veitt mikil fræðsla og þátttakendum er boðið upp á einstaklingsviðtöl.
Sjá vefslóð: http://www.saa.is/islenski-vefurinn/a-dofinni/dagskra-gongudeildar-rvk/
 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...