SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Atburðadagatal

7  26. mars 2010  8

föstudaginn 26. mars 2010

Viðtalsþjónustan í Göngudeild SÁÁ í Reykjavík

í VON, Efstaleiti 7, Reykjavík
Ráðgjafar í göngudeild sinna viðtölum við fíkla og aðstandendur þeirra á virkum dögum milli 09:00 og 17:00. Ekki er nauðsynlegt að panta viðtal fyrirfram. Hvert viðtal kostar kr. 2000,00
Sjá vefslóð: http://www.saa.is/islenski-vefurinn/a-dofinni/dagskra-gongudeildar-rvk/

föstudaginn 26. mars 2010

Bati fyrir börnin - sálfræðiþjónusta fyrir börn fíkla

í VON, Efstaleiti 7, Reykjavík
Bati fyrir börnin er úrræði sem Lárus Blöndal sálfræðingur hefur þróað fyrir SÁÁ og er ætlað börnum alkóhólista og fíkla á aldrinum 7 - 17 ára. Tímapantanir eru í síma 5307600.
Sjá vefslóð: http://www.saa.is/islenski-vefurinn/a-dofinni/dagskra-gongudeildar-rvk/

föstudaginn 26. mars 2010

Daglegur stuðningshópur í Göngudeild SÁÁ

í VON, Efstaleiti 7, Reykjavík
Daglegur stuðningshópur kemur saman milli kl. 11:00 og 12:00 alla virka daga. Þeir sem eru að koma til skráningar í hópinn þurfa að mæta 1/2 tíma fyrr eða kl. 10:30 í fyrsta skipti. Hópurinn kostar kr. 7.000,00
Sjá vefslóð: http://www.saa.is/islenski-vefurinn/a-dofinni/dagskra-gongudeildar-rvk/

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.