
Hofsbót 4, 600 Akureyri.
Sími: 530-7600, 462-7611
Dagskrárstjóri er Anna Hildur Guðmundsdóttir
Áfengis og vímuefnaneysla hefur verið vaxandi þjóðfélagsvandi á þessari öld. Á Vesturlöndum hefur ástandið einkum versnað eftir að ólöglegur vímuefnafaraldur geysaði meðal ungs fólks á sjöunda áratugnum. Þrátt fyrir góðan vilja og miklar mótaðgerðir hefur ekki tekist að draga úr þessum vanda. Þegar á heildina er litið hefur áfengis- og vímuefnavandinn aukist alla þessa öld. Þessi vandi er ekki aðeins gríðarlegur að vöxtum heldur einnig flókinn og margbreytilegur. Hann birtist okkur í fjölmörgum myndum eins og slysum, sjúkdómum, afbrotum, fjölskylduvandamálum og persónulegri óhamingju. Sjúkdómur áfengis- og vímuefnafíknar sem fengist er við á sjúkrastofnunum SÁÁ er einn hluti þessa mikla vanda
Deildin er opin mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 09:00 til 17:00 og á miðvikudögum og föstudögum frá kl. 09:00 til 12:00
Viðtöl
Tekið er á móti í viðtöl á ofangreindum tímum, hægt er að koma án fyrirvara í viðtöl eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Eftirfylgni
Kvennahópar eru á mánudögum kl. 16:00 – 17:30 (1 ár), kr. 5.000
Karlahópar eru á miðvikudögum kl. 16:00 – 17:00 (1 ár), kr 5.000
Stuðningshópur aðstand fimmtudagar kl. 16:00 – 17:00, kr. 500 skiptið
(Tekið á móti nýjum einstaklingum í hópinn ½ klst fyrir fund)
Meðferðarhópar
Stuðningshópur alla virka daga kl. 10:30 – 11:30 5 vikur, kr. 7.000
(Tekið á móti nýjum einstaklingum í hópinn ½ klst fyrir fund)
Læknafyrirlestrar
Fyrirlestrarnir, sem verða auglýstir sérstaklega, eru öllum opnir þá koma læknar, hjúkrunarfræðingar og ráðgjafar SÁÁ á Vogi til Akureyrar með sérstaka fyrirlestra um afleiðingar vímuefnaneyslu. Aðgangur kr. 750,00.
Kynningarfundur SÁÁ
Fyrsta fimmtudag í mánuði, kl. 17,30, er haldinn kynning á starfssemi SÁÁ og farið yfir hugmyndafræði meðferðarinnar og hvað er verið að gera á hverjum starfsstað SÁÁ. Fyrirlestrarnir eru öllum opnir og aðgangur er ókeypis.
Fræðslan og meðferðin fer fram í húsnæði SÁÁ að Hofsbót 4