|
Áður en ég fór á Vog...
... hafði ég engan annan stað til að fara á
... gat ég ekki staðið á eigin fótum
... vissi ég ekki hvar ég gæti nálgast lausnina
... var ég í slæmum málum
... í dag stend ég á eigin fótum, er í vinnu og skóla
----------------
Áður en ég fór á Vog...
... gat ég ekki sleppt því að drekka á eigin vilja
... vissi ég ekki að alkóhólismi er sjúkdómur
... var hvorki viljalaus né aumingi
... á Vogi náði ég að brjóta af mér hlekkina
... ég öðlaðist skiling á sjúkdóminum
----------------
Áður en ég fór á Vog...
... var ég fangi
ég dvaldi
í ljósaskiptunum
meðal hinna dauðu ...
----------------
Áður en ég fór á Vog ...
... vanrækti ég fjölskyldu mína og vini.
... eyddi ég meiri tíma á barnum en heima hjá mér.
... gerði vímulaus sólarhringur mig viðþolslausan af eirðarleysi.
... sá ég eftir fortíðinni og kveið framtíðinni.
... hélt ég að Guð hefði gefist upp á mér.
----------------
Áður en ég fór á Vog...
... reikaði ég stefnulaus í gegnum lífið
... ég gat ekki hugsað um sjálfa mig eða barnið mitt
... á Vogi sá ég sannleikan og var leidd á nýjar brautir
... nú á ég innihaldsríkt og gefandi líf
... ég klára það sem ég tek mér fyrir hendur
----------------
Áður en ég fór á Vog...
... hafði ég verið edrú í sautján ár
... en ég fékk að vera þrjá daga á þessu ári eftir skurðaðgerð
... ég hefði getað byrjað að drekka eftir aðgerðina en vildi ekki að sú saga fengi framhaldslíf
... með því að fara á Vog þurfti ég ekki að stofna edrúmennsku minni í hættu
... það er ómetanlegt að eiga aðgang að Vogi
----------------
Áður en ég fór á Vog...
... var Bakkus lúmskur og lævís harðstjóri
... var maður orðinn lifandi dauður
... það voru þung spor að fara á Vog en mín gæfuríkustu
... á Vogi gáfust mér gullin tækifæri til að endurfæðast
... ég fékk nýtt og margfallt betra líf
----------------
Áður en ég fór á Vog...
... var ég að missa allt frá mér sem ég elskaði mest
... fann ég sjaldan fyrir gleði
... vissi ég ekki að til var lausn við alkóhólisma
... á Vogi fékk ég von um hamingjusamt líf
... og nú hef ég fengið allt sem ég elska til baka og meira til
----------------
Áður en ég fór á Vog....
... var ég búinn að drekka og dópa fjölskylduna frá mér!
... var ég misyndismaður og ofbeldishneigður.
... var ég brotin einstaklingur sem ekkert kunni.
... var ég búinn að brjóta öll siðferðismörk.
... var ég búinn að rústa líkamanum.
... var ég búinn að svifta son minn tilfinningalegu öryggi.
----------------
Áður en ég fór á Vog...
... hafði ég verið túramaður í áratugi
... var ég oft fullur í vinnunni
... undir rest drakk ég líter af vodka á dag
... líf mitt var vonlaust
... reyndi ég að drekka mig til dauða
|