SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

FC - SÁÁ

  Einn leikur í einu

Það eru fjögur ár síðan Knattspyrnufélag SÁÁ var stofnað og í sumar komust þeir aftur í undanúrslitin í Mentosbikarnum. Það er hvergi meiri bati en FC SÁÁ og Geir þjálfari segir að ef hausinn sé í lagi getið þeir unnið hvaða lið sem er í utandeildinni og þriðjudeild líka.

 

„Ef við missum hausinn þá töpum við,“ segir Geir Leó Guðmundsson, þjálfari Knattspyrnufélags SÁÁ, í búningsklefa í Kópavogi fyrir tveim vikum en þá voru strákarnir að klæða sig í treyjur fyrir leik við Landsliðið svokallaða (þetta var jafntefli en „við vorum miklu betri,“ sagði Geir eftir leikinn).

 

„Ef einhver þarna úti hefur áhuga á að koma og spila með flottum strákum í brjáluðum bata þá er bara að finna okkur á vefnum

www.knattspyrnufelagsaa.bloggar.is  

eða senda mér meil á

knattspyrnufelagsaa@hotmail.com

 ,“ segir Geir sem hefur þjálfað liðið síðastliðin þrjú ár en hann hefur verið með frá upphafi og þá fyrst sem leikmaður.

 

Jákvæðni og fáar snertingar

Sumarið hefur gengið vel, að sögn Geirs og strákanna, og þeir komust aftur í undanúrslit fyrir Mentosbikarinn. Þessar vikurnar eru þeir að reyna að komast í úrslitakeppnina, umspilið svokallaða, og þegar blaðamaður SÁÁ hlýddi á hvatningarræðu þjálfarans fyrir leik í Kópavogi var ljóst að það er bæði gleði og alvara sem fylgir því að spila fyrir FC SÁÁ.

 

„Og ekkert tuð strákar,“ sagði Geir og vildi að menn notuðu alla sína orku í að spila fótbolta. „Við ætlum að vera jákvæðir og nota fáar snertingar.“

 

Það er hvergi meiri bati en hjá FC SÁÁ

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fimm á bekknum

Geir Leó leggur yfirleitt upp með 4-5-1 og í leiknum gegn landsliðinu voru fimm á bekknum auk Péturs Ólasonar liðsstjóra en hann hefur verið með frá upphafi („pottþéttur náungi,“ segir Geir).

 

Í sumar hafa strákarnir æft á Framvellinum á þriðjudögum kl. 19.15 en frá og með október verða æfingar í Kórnum á miðvikudagskvöldum kl. 22.

 

„Hjá okkur er þetta bara einn leikur í einu,“ segir Geir eftir jafnteflið í Kópavogi og er strax farinn að huga að næsta leik.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Mannskapurinn                                                      www.knattspyrnufelagsaa.bloggar.is

Nafn: Geir Leó Guðmundsson

Aldur: 42 ára

Númer: -

Staða: Þjálfari

Ár með FC SÁÁ: 3 ár

Áður: ÍH, Árvakur, Magic

Nafn: Pétur Eiður Ólason

Aldur: 32 ára

Númer: -

Staða: Liðsstjóri

Ár með FC SÁÁ: 4 ár

Áður: -

Nafn: Pétur Ásgeirsson

Aldur: 35 ára

Númer: 5

Staða: Hafsent (FYRIRLIÐI)

Ár með FC SÁÁ: 3 ár

Áður: Hómer, Valur

Nafn: Arnar Harðarson

Aldur: 29 ára

Númer: 20

Staða: Vinstri kantur

Ár með FC SÁÁ: 2 ár

Áður: Afturelding, Fram.

Nafn: Kristján „Kiddi“ Valsson

Aldur: 32 ára

Númer: 19

Staða: Framherji

Ár með FC SÁÁ: 4 ár

Áður: Valur, Leiknir

Nafn: Hafliði Halldórsson

Aldur: 24 ára

Númer: 10

Staða: Vinstri kantmaður

Ár með FC SÁÁ: 3 ár

Áður: Vatnaliljur, Fjölnir

Nafn: Bjarni Bjarkason

Aldur: 29 ára

Númer: 3

Staða: Miðjumaður

Ár með FC SÁÁ: 2 ár

Áður: Hvíti riddarinn, Afturelding

Nafn: Jóhannes Pálmason

Aldur: 29 ára

Númer: 7

Staða: Miðjumaður

Ár með FC SÁÁ: 2 ár

Áður: KR

Nafn: Ari Jónsson

Aldur: 26 ára

Númer: 22

Staða: Bakvörður

Ár með FC SÁÁ: 4 ár

Áður: Vatnaliljurnar, Leiknir, HK

Nafn: Ólafur Hafsteinsson

Aldur: 24 ára

Númer: 9

Staða: Hægri kantur

Ár með FC SÁÁ: 1 ár

Áður: Tindastóll

Nafn: Vilhelm Svavarsson

Aldur: 38 ára

Númer: 13

Staða: Miðjumaður

Ár með FC SÁÁ: 3 ár

Áður: Reynir

Nafn: Magnús J. Guðjónsson

Aldur: 33 ára

Númer: 2

Staða: Bakvörður

Ár með FC SÁÁ: 3 ár

Áður: Léttir, Breiðablik

Nafn: Ingi Erlendsson

Aldur: 27 ára

Númer: 11

Staða: Miðjumaður

Ár með FC SÁÁ: 3 ár

Áður: FH, Haukar, Leiknir (Fáskrf.)

Nafn: Stefán Þór Ólafsson

Aldur: 30 ára

Númer: 8

Staða: Miðjumaður

Ár með FC SÁÁ: 3 ár

Áður: BÍ, KFS, Hómer

Nafn: Guðbrandur Jóhannesson

Aldur: 24 ára

Númer: 21

Staða: Vinstri bakvörður

Ár með FC SÁÁ: 1 ár

Áður: Hvíti riddarinn, Afturelding

Nafn: Davíð Guðmundsson

Aldur: 28 ára

Númer: 4

Staða: Vinstri bakvörður

Ár með FC SÁÁ: 4 ár

Áður: KR.

Nafn: Þorri Arnarsson

Aldur: 33 ára

Númer: 18

Staða: Miðvörður

Ár með FC SÁÁ: 1 ár

Áður: Vatnaliljurnar, Fram

Nafn: Róbert Friðþjófsson

Aldur: 27 ára

Númer: 1

Staða: Markmaður

Ár með FC SÁÁ: 2 ár

Áður: FH, Sovét

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.