Von Efstaleiti 530 7600 |
 |
|
|
|
|
 |
e-blað | |
|
 |
Gallagripir
|
.. til bjargar týndu kynslóðinni
Alla þriðjudaga kl. 16.15 munu nokkrir gallagripir bjóða ungu fólki til skrafs og ráðgerðar í Vonarhúsinu að Efstaleiti 7. Borgarstjórinn og gallagripurinn Jón Gnarr ríður á vaðið þriðjudaginn 13. september og svo koma þeir koll af kolli þessir drengir allir saman.
Þótt strákarnir, sem eitt sinn þóttu meingallaðir, ríði á vaðið þá eru bæði stelpur og strákar sem átt hafa í vandræðum vegna áfengis- og vímefnaneyslu hvött til að mæta. Þetta er fyrir alla og þegar talið berst að stelpunum segir Bubbi Morthens að þær séu oft ekki jafn gallaðar og strákarnir hlæja flestir en Jón Gnarr bætir því við að þær stæri sig heldur ekki eins mikið af öllu ruglinu. Strákar eru líka oft fyrirferðamiklir og í dag er það þannig að fleiri strákar virðast utanveltu í kerfinu og tolla illa í skóla og eru lengur atvinnulausir en stelpurnar. |
|
Þetta ræddu gallagripirnir þegar þeir mættu í Von til að láta taka þessa mynd af sér. Margir voru að hittast í fyrsta sinn í lengri tíma og Stefán Máni var þarna með krakkana sína sem Bubbi heillaði upp úr skónum og Tolli og Guðmundur Oddur (sem var að koma frá Seyðisfirði) festust á samræðum um listina.
Svo sögðu menn sögur af því hvað það var erfitt að hætta að reykja og horfðu á Einar Örn vefja sér sígarettu. En það allt skiptir ekki máli því allir þessir menn hafa reynslu af því að hafa ekki verið eins og fólk er flest og tekist að líta á það sem kost fremur en galla. | |

|
Tolli Morthens, Guðmundur Oddur, Jón Gnarr, Einar Örn, Stefán Máni, Sigurjón M. Egilsson, Bubbi Morthens, Mikael Torfason, KK
Gallagripir eru í Von, Efstaleiti 7, alla þriðjudaga kl. 16:15 (einn og hálfur tími) fyrir ungt fólk.
|
|
|
Nafn: Tolli Morthens
Aldur: 57
Starf: Listamaður
Fyrri störf: Sjómaður, verkamaður, Skógarhöggsmaður
Menntun: Myndlistarskóli Íslands, Berlínarháskóli |
|
Nafn: Jón Gnarr
Aldur: 44
Starf: Borgarstjóri
Fyrri störf: Verkamaður og grínisti
Menntun: Prófessor í Ekkert frá Háskólanum í hvergi (University of Nowhere) |
|
Nafn: Stefán Máni
Aldur: 41
Starf: Rithöfundur
Fyrri störf: Fiskverkun, byggingarvinna, bókband og sambýli fyrir geðveika
Menntun: Klára samræmdu prófin en flosna upp úr námi á fyrsta ári í menntaskóla |
|
Nafn: Bubbi Morthens
Aldur: 55 ára
Starf: Laga- og textasmiður, söngvari, rithöfundur
Fyrri störf: Verkamaður og sjómaður
Menntun: Hætti í skóla 15 ára |
|
Nafn: KK
Aldur: 55 ára
Starf: Tónlistarmaður
Fyrri störf: Verkamaður, uppskipun, skúringar
Menntun: Pungapróf | |
|
Nafn: Guðmundur Oddur Magnússon
Aldur: 56 ára
Starf: Prófessor við Listaháskóla Íslands
Fyrri störf: Gröfumaður Bröyt X2b
Menntun: Drop-out úr menntaskóla, rekinn úr Myndlistar- og handíðaskóla Íslands, Diploma-próf í grafískri hönnun eftir meðferð |
|
Nafn: Einar Örn
Aldur: 48 ára (held ég)
Starf: Borgarfulltrúi, tónlistarmaður, frumkvöðull
Fyrri störf: Póstbifreiðastjóri, bardyravörður, barþjónn, blaðamaður, verslunarmaður
Menntun: Stúdentspróf, BA í fjölmiðlafræði |
|
Nafn: Sigurjón M. Egilsson
Aldur: 57 ára
Starf: Blaðamaður og útgefandi
Fyrri störf: Sjómaður og sölumaður
Menntun: Gagnfræðingur |
|
Nafn: Mikael Torfason
Aldur: 37 ára
Starf: Rithöfundur og blaðamaður
Fyrri störf: Verkamaður og kjúklingaslátrari
Menntun: Féll á samræmdu prófunum |
Alla þriðjudaga kl. 16.15 - til skrafs og ráðgerða í Vonarhúsinu.
|
|
|
 |
Kári Stefánsson
Alkóhólismi er heilasjúkdómur...
|
Ari Matthíasson
Notum peningana í annað...
|
Valgerður Lísa
Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...
|
|
Fleiri viðtöl... |
|
|

Börn alkóhólista
Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista... |


|