SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Gönguhópurinn

Eflum vitund okkar gagnvart náttúru og landi. Það er stórfenglegt að skynja lyktina, litina, fuglana, jurtirnar, snjóinn og allt það sem verður að vegi manns.

Litirnir, fuglarnir, snjórinn og allt

Gönguhópurinn hittist í Von, Efstaleiti 7, á þriðjudögum klukkan 18:00. Allir eru velkomnir!

Sigurjón M. Egilsson blaðamaður, fer fyrir Gönguhóp SÁÁ en Ólafur sveinsson, sem við þekkjum mörg frá starfi SÁÁ, ætlar að leiða göngurnar á móti Sigurjóni. Gönguhópur SÁÁ var starfræktur síðasta vetur og í sumar.

 

Það ávinnst margt á göngum. Hvergi gefst betri tími eða aðstæður til að hugsa um sjálfan sig, rifja upp tíunda sporið, fara með bænirnar, þakkirnar og allt sem við þurfum til að viðhalda því góða sem við höfum fengið.

 

Í september var gengið 

 

í Búrfellsgjá 6. sept

á Reykjafell 13. sept

á Mosfell 20. sept

Vífilsstaðavatn 27. sept

 

...en þar sem við erum háð birtunni er dagskráin ákveðinn einn mánuð í senn.

 

Dagskrá gönguhóps í október er óráðin. Áhugasömum er bent á að fylgjast með vefnum.

 

Áhugasömum er bent á að mæta bara og í göngunum er batinn í fyrirrúmi og lítið mál að sameinast í bíla en mæting er á þriðjudögum kl. 18 í Von, Efstaleiti 7.

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.