SÁÁ

Dagbók 2004

Fimmtudaginn 16.des. - biskup í boði Heiðursmanna

Fimmtudaginn 16.des. kom herra Sigurbjörn Einarsson biskup í boði heiðursmanna SÁÁ í heimsókn að Vogi. Sigurbjörn skoðaði bygginguna og heilsaði upp á starfsfólk og sjúklinga.  Hann ávarpaði sjúklingana í fundarsal þar sem hann óskaði þeim alls góðs og starfsemi SÁÁ. Að því loknu var matast og meðan á borðhaldi stóð ávarpaði Þórarinn heiðursgestinn og sagði helstu tíðindi varðandi SÁÁ. Biskup hélt ræðu og svaraði fyrirspurnum og að lokum bað hann fyrir starfsemi SÁÁ og fundarmönnum.

 

Karl Matthíasson fundarstjóri þakkaði biskup komuna.  Karl frá því að hann hefði lokið störfum í stjórn heiðursmanna og tilnefndi Gunnar Sigurðsson sem eftirmann sinn.  Það var samþykkt með lófataki. Þar með lauk gleðilegri og elskuríkri heimsókn herra Sigurbjörns Einarssonar til SÁÁ.

 

Fimmtudaginn 2. desember héldu heiðursmenn fund í Viðey 

Jónas Kristjánsson ritstjóri var heiðursgestur fundarins. Hann flutti erindi eða spjall þar sem hann ræddi stöðuna í fíkniefnamálum vítt og breitt í umhverfi okkar Íslendinga og hvað framtíðin virtist bera í skauti sér. Hann taldi að sala á vægari efnum, sem nú eru ólögleg, myndi draga úr glæpastarfsemi. En ríkisvaldið yrði að taka afleiðingum af sölu vímuefna með auknum stuðningi við þá sem vinna að forvarnar- og vímuefnamálum.

 

Fyrirspurnir og líflegar umræður voru í framhaldi af erindi Jónasar þar sem skoðanir voru skiptar.

 

Jakob stjórnaði fundi sem stóð í einn og hálfan tíma. 25 mættu.

 

17. nóvember - Gestur fundarins Pétur Blöndal alþingismaður 

Í upphafi fundar sagði Þórarinn Tyrfingsson frá starfsemi SÁÁ. Pétur Blöndal alþingismaður, sem  var heiðursgestur fundarins hélt þrumandi ræðu yfir fundarmönnum um endalausar sníkjur frá alskonar stofnunum á hendur fjárveitingavaldsins á hverju ári er færi að nálgast fjárlög. Sagði hann sögu af kjúklingi einum sem endaði líf sitt höfuðlaus, einmitt þegar hann átti síst von á því, þ.e.a.s. kjúklingurinn. Töldu sumir fundarmenn að verið væri að hafa í hótunum v  SÁÁ, á meðan aðrir töldu að þingmaðurinn sæi sjálfan sig í hlutverki kjúklingsins. Gesturinn kom með mjög ákveðnar skoðanir á meðferðarmálum sem og öðru og virtist fara með þær óbreyttar af fundi þrátt fyrir tilraunir fundarmanna til að upplýsa þingmanninn og leiðrétta ýmsar rangfærslur í fullyrðingum fundargestsins. Málin voru síðan rædd og fyrirspurnum svarað. 

 

Þorsteinn stjórnaði fundi sem stóð í klukkustund. 25 mættu.

 

5. nóvember - Gestur fundarins Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarfulltrúi

Karl bauð gestinn velkominn. Farið var með hann um sjúkrastöðina Vog og síðan í fundarsal þar sem Þórarinn Tyrfingsson sagði með nokkrum orðum sögu SÁÁ og lýsti starfseminni og hvar skórinn kreppti helst að í dag. Gesturinn sagði frá jákvæðum viðhorfum sínum til þess sem fer fram á vegum SÁÁ. Snarpar fyrirspurnir og líflegar viðræður fóru fram þar sem Ingibjörg taldi ráðlegt að forráðamenn SÁÁ og borgarinnar ræddu leiðir til að minnka félagslegann vanda þeirra sem eiga við vímuefnavanda að stríða í borginni og hvernig bæri að skipta kostnaði í þeim efnum. 37 voru á fundinum með Ingibjörgu.

 

21. október - Gestur fundarins Jón Bjarnason alþingismaður

Jakob bauð gestinn velkominn. Farið var með hann um sjúkrastöðina Vog og síðan í fundarsal þar sem Þórarinn Tyrfingsson sagði með nokkrum orðum frá sögu SÁÁ og lýsti starfseminni. Gesturinn sagði frá jákvæðum viðhorfum sínum til þess sem fer fram á vegum SÁÁ. Fyrirspurnir og stuttlegar viðræður fóru fram meðal fundarmann,sem voru 34.

 

 
7. október - Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn var gestur fundarins
Fundinum stjórnaði Jakob.
Gestur fundarins var Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn.
Þórarinn flutti erindi um starfsemi SÁÁ með hiðsjón af samskiptum við lögregluna.
Geir Jón sagði frá samskiptum sínum við meðferðarstofnanir og afskipti af meðferðarmálum.
Margar fyrirspurnir komu fram að erindum loknum.
Á fundinum mættu 30.
 
Fyrsti fundur heiðursmanna veturinn 2004-5 var haldinn föstudaginn 24.sept.
Fundinum stjórnaði Þorsteinn.
Gestur fundarins var Jón Kristjánsson, ráðherra.
Þórarinn Tyrfingsson flutti erindi um starfsemi þá er SÁÁ stendur fyrir. Ráðherran sagði frá ánægjulegum samskiptum sínum við ráðamenn Vogs og svaraði fyrirspurnum. Lífleg umræða var að erindum loknum. Á fundinum mættu 35.
 
3. júní  2004 -  Akureyrarferð  Heiðursmanna  og Kjarnakvenna
Gunnar Kvaran, framkvæmdarstjóri félags- og útbreiðslusviðs SÁÁ  og Sigurður Snævar Gunnarsson fóru í byrjun júní  til Akureyrar að kynna starf  Heiðursmanna í Reykjavík.  Hörður Oddfríðarson dagskrárstjóri SÁÁ á Akureyri tók vel á móti heiðursmönnunum en Hörður er greinilega að gera góða hluti á Akureyri. Fundurinn var haldinn í veitingasal Greifans, sem er í sama húsi og starfsstöð SÁÁ  og hófst kl. 17.30.  Þarna bauð Hörður upp á Súpu og salad,  sem var mjög vel þegið. Á fundinn voru  mættar sautján konur en engir karlmenn, sem auðvitað voru  talsverð  vonbrigði.  
 
Það er skoðun okkar allra  sem að þessum fundi stóðum að vel væri farið af stað þó karlmennina vantaði að þessu sinni en það á eftir að breytast.  Ákveðið var að hafa annan fund á Akureyri í byrjun september n.k. til að fylgja þessum eftir og undirbúa þann næsta betur m.a. með tilliti til fundartíma.
 
27. mai   2004  Lokafundur hjá Heiðursmönnum
Síðasti fundur okkar Heiðursmanna var haldin í dag. Gestur okkar var einn félagi Heiðursmanna Binni Blóma öðru nafni Hendrik Berndsen,fyrrverðandi formaður samtakana og  einn hinna ódrepandi  frumherjana SÁÁ.
Í upphafi fundar fór Sigurður S. Gunnarsson, sem hafði ásamt Karli V. Matthíassyni og Magnúsi Trausta Torfasyni veg og vanda af starfi Heiðursmanna í vetur og í nánu samstarfi  við Gunnar Kvaran framkvæmdastjóra SÁÁ  og Þórarinn Tyrfingsson  yfirlækni og formann SÁÁ.

Í stuttu máli Sigurðar kom fram að fundir Heiðursmanna á starfsárinu voru 19 þar sem komu 17 gestir viðsvegar úr þjóðlífinu,  stjórnmálamenn,  skólamenn, presta,  fólk úr atvinnulífinu, heilbrygðisstarfsfólk, fólk úr félagsmálastarfi og Biskup okkar Herra Karl Sigurbjörnsson, sem var með ógleymanlega jólahugvekju fyrir vistmenn.  Öllu þessu fólki var  þakkað sérstaklega fyrir heimsókninarnar til okkar.  Heiðursmenn tóku þátt í velheppnuðum hátíðarfundi SÁÁ í október á s.l. ári og var Karl V. Matthíasson fulltrúi okkar og ræðumaður á fundinum, sem tókst með miklum ágætum. Tókum upp frjáls fjárframlög á fundum okkar, sem eiga að  renna til  styrktar  góðra málefna í starfssemi SÁÁ.  Skipuð var fjögurra manna nefnd á vegum Heiðursmanna til að koma með tillögur um  ímyndarmál og samskipti við fjölmiðla, til að mæta ásökunum á meðferðarstarf SÁÁ,  sú nefnd hefur ekki lokið störfum en.

Á heimasíðu SÁÁ höfum við haldið Dagbók, þar sem reynt er að gefa yfirlit yfir fundi okkar og umfjöllun okkar fagfólks  og gesta okkar.

Síðan þakkaði Sigurður  Hauki yfirkokki og hans starfsfólki í eldhúsi fyrir góðar veitingar svo og öllu starfsfólki SÁÁ á Vogi fyrir samstarfið.  Því næst ávarpaði fundin Gunnar Kvaran fjárgæslumaður okkar og ræddi um það hvernig hefði til tekist í vetur og upplýsti um inneign á bankabók okkar. Í samræmi við umræður okkar s.l. haust um að ,,rótera” milli manna að sjá um fundi okkar þá stakk Gunnar upp á að Karl V. Matthíasson yrði áfram fram  til áramóta og nýjir menn með honum yrðu Jakob Magnússon og Þorsteinn J. Óskarsson, og var það samþykkt.  Að lokum  þakkaði Gunnar  Sigurði,  Karli  og Magnúsi fyrir samstarfið í vetur. Þá tók Karl V. til máls og þakkaði mönnum samstarfið  og þá sérstaklega Þórarni Tyrfingssyni, sem hann réttilega taldi ,,Ásinn” í þessu starfi okkar.

Þórarinn Tyrfingsson var með skemmtilega hugleyðingu um fyrstu kynni sín af gesti okkar, en þau kynni hófust í háhýsi við Suðurlandsbrautina í Reykjavík 1975.
 
Þá tók gestur okkar, Binni Blóma til máls og var með  sögustund um fyrstu ár frumherjana og stofnun SÁÁ 1977. Mjög gaman var að hlusta á frásögn hans, þarna voru á ferð  menn með brennandi hugsjón, sem vildu hjálpa öðrum alkóhólistum til þess að ná að njóta þess sama og þeir öðluðust vestur í Bandaríkjunum. Frásögn Binna var gædd miklum húmor og var mönnum  mikið skemmt.
Þessir frumherjar réðust í að reka meðferðarstarf fyrst í Reykjadal síðan einnig í Langholtsskóla,  síðan að Silungarpolli og í lok árs 1983var búið að reisa afeitrunarsjúkrahús að Vogi,  opna meðferðarheimili að Sogni, að Staðarfelli og opna Göngudeild í eigin húsnæði við Síðumúla, alveg hreint ótrúlegt afrek og sýnir hvað hægt er að framkvæma með frjálsu félagastarfi og ættu stjórnvöld að horfa betur til þess og afhenda okkur þennan málaflokk með rausnarlegu framlagi, þá yrði margt öðruvísi og umræðan önnur en s.l. vetur.
 
Það væri verðugt verkefni fyrir Heiðursmenn að standa fyrir því að taka upp á segulband viðtöl við frumherjana, sem  eru meðal  okkur ennþá,  því þetta eru ómetanlegar heimildir, sem nota má seinna meir þegar sagan verður skáð.
 
 
13. mai  2004 - Steinunn Valdís hjá Heiðursmönnum
Mjög góður fundur hjá Heiðursmönnum í dag og vel mætt. Gestur okkar var Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi og formaður skipulagsnefndar Reykjavíkurborgar.  Eftir stofugang með Þórarni Tyrfingssyni, sem hafði mikil áhrif á gest okkar, en Steinunn hafði aldrei áður komið á Vog, var sest að borðhaldi. Að þessu sinni var borin fram íslensk kjötsúpa af Jóa
kokki og hans góða fólki. Þórarinn var með sérlega gott og fróðlegt innlegg fyrir borgarfulltrúan  um rekstur samtakanna og lóðamál við Stórhöfða. SÁÁ hefur í hyggju að flytja rekstur áfangaheimila og skrifstofu upp á Stórhöfða. Þórarinn lagði sérstaka áherslu á að SÁÁ væru áhugamannasamtök, en það vill oft gleymast í umræðunni. Litið á starfsemi SÁÁ sem
stofnanarekstur á heilbrigðissviði sem sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu styrkja ekki. Í máli Þórarins kom einnig fram að á þeim 26 árum sem SÁÁ hefur starfað hafa 17000 einstaklingar leitað til samtakanna um hjálp. 13500 einstaklingar eða 80% hafi komið þrisvar eða sjaldnar. Einingis 3% einstaklinganna hafa komið tíu sinnum eða oftar á Vog.

Steinunn Valdís  sagði að í síðustu viku hefði Borgarráð samþykkt nýtt skipulag á svæðinu við Stórhöfða og  að ósk framkvæmdastjórnar SÁÁ  væri þar gert ráð fyrir nýrri lóð fyrir  SÁÁ.  Þessi skipulagshugmynd fer nú í lögbundið ferli, sem tekur um sex vikur en eftir það er hægt að úthluta lóðum samkvæmt þessu nýja skipulagi. Steinunn Valdís kom beint að efninu og bauð skipti á lóð SÁÁ við Efstaleiti og stórri lóð við hliðina á Vogi. Menn setti hljóða og hver og einn hugsaði sitt. Steinunnn Valdís sagði frá nýstofnaðri  nefnd hjá Reykjavíkurborg,  Vímuvarnanefnd sem á að vinna að forvörnum og vonaðist hún til að nefndin kæmi til með að eiga gott samstarf við SÁÁ. Einnig sagði hún frá samstarfi Reykjavíkurborgar og Rauðakross
Íslands um rekstur athvarfs fyrir konur sem eiga í vímuefnaerfiðleikum. Steinunn Valdís óskaði sérstaklega eftir því  að fá að fræðast um kvennameðferð okkar. Þóra Björnsdóttir hjúkrunarforstjóri á Vogi  upplýsti um starfsemi Kjarnakvenna og Valgerður Rúnarsdóttir, læknir á Vogi sagði frá  kvennameðferðinni á Vík. Í máli Valgerðar kom fram að meðal ungra fíkla þá er virðst jafnræði með kynjunum hvað varðar innlagnir nýkomufólks á Vog.
 
29. apríl  2004 - Ólafur Örn  hjá Heiðursmönnum
Góður gestur  okkar Heiðursmanna í dag  var Ólafur Örn Arnarson, fyrrverandi yfirlæknir á Landakoti og framkvæmdastjóri Sjúkrahús Reykjavíkur síðustu starfs ár sín, en Ólafur lét af störfum á s.l. ári.  Með honum var annar góður gestur Jónas Hallgrímsson, fyrrverandi forstöðumaður  rannsóknarstofu Háskóla Íslands og prófessor í meinafræði við sama skóla. 
 
Eftir stuttan stofugang með Þórarni yfirlækni var sest að  málsverði fram bornum af Hauki yfirkokki og hans fólki og hafi þau bestu þakkir fyrir. Innlegg Þórarins að þessu sinni var um rekstur samtakanna og lagði hann sérstaka áherslu  á og kynnti uppbyggingu gagnagrunns samtakana í máli og myndum. Þórarinn fór nokkrum orðum um bráðamóttöku á Vogi.  Í máli Þórarins kom einnig fram að það virðist vera óbrúanlegt bil á milli félags og heilbrigðismála  þegar kemur að hinu opinbera. Eftir innlögn og greiningu t.d. hvað varðar fólk með geðræn vandamál þá tekur ekkert  annað við hjá því en gatan. Sennilega væri besta forvörnin að mati Þórarins  sú að koma til móts við unga kanabisneytendur, en þeim fer mjög  ört fjölgandi.
 
Það var mjög gott að hlusta á framsögu Ólafs, sem marga ausuna hefur sopið í samskiptum sínum við misvitra stjórnmálamenn og hefur verið ótrauður við að skrifa og gagnrýna stjórnvöld í fjölmiðlum varðandi rekstur heilbrigðiskerfisins.  Ólafur  taldi að aðalvandamálið hér á landi væri samrekstur tryggingar og heilbrigðismála. Tryggingar ættu að vera sérmál en rekstur sjúkrahúsa ætti einfaldlega að lúta sömu  lögmálum og hver annar rekstur fyrirtækja í atvinnilífinu. Hann talaði  um vitleysuna í rekstraróreiðunni  og tók, sem dæmi mjaðmaskiptaaðgerð, þar sem er þjáningafullur biðtími eftir að komast í aðgerð er tólf mánuðir og kosta samkvæmt nýjum rannsóknum tryggingar og heilbrigðiskerfið rúm  áttahundruð þúsund.  Sjálf aðgerðin kostar síðan einamilljón krónur, á meðan eru langlegusjúklingar látnir dvelja á  rándýrum sjúkrastofnunum, í staðin fyrir að koma upp hjúkrunarheimilum sem hæfa okkar góða fólki, sem hefur byggt upp þá annars góðu velferð sem við búum við í dag á Íslandi. Ólafur sagði að föst framlög á fjárlögum  til sjúkrahúsreksturs væri það vitlausasta sem stjórnmálamenn stæðu fyrir og þekktist hvergi nokkurs staðar  í Evrópu. Gera þyrfti greinileg skil á milli kaupanda og seljanda, það væri frumskilyrði til að veita bestu og hagkvæmustu  þjónustu hverju sinni. Hann nefndi nýfallin dóm hjá dómstól Evrópusambandsins, sem nær einnig  til okkar,  þar sem íbúi í einu landi innan efnahagssvæðisins leitaði sér lækninga í öðru landi á efnahagssvæðinu  eftir að hafa verið á biðlista í sínu landi í meira en tvö ár. Dómstóllinn dæmdi að heimalandið ætti að borga fyrir aðgerð sjúklingsins,  þar sem biðtími í heimalandinu var  langur. Þetta er stefnumarkandi dómur fyrir allt efnahagssvæðið og þá einnig hér á landi. Ólafur  sagði einnig að það,  sem væri alverst við að eiga væri deila á milli ráðuneyta, það hálfa væri nó eins og ágætur maður komst að orði á ofanveðri síðustu öld. Lokaorð Ólafs voru tryggingar sjá um fólkið,  heilbrigðiskerfið á að sjá um rekstur. Síðan flugu mörg góð gullkorn þegar Ólafur  svaraði fyrirspurnum fundarins.
 
Næsti fundur Heiðursmanna verður fimmtudaginn 13. maí, þá verður gestur okkar Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður skipulagsnefndar Reykjavíkurborgar en hún forfallaðist eins og kunnugt er 15. apríl s.l. en ætlar að koma á næsta fund.
 
15. apríl  2004 – Fundur hjá hjá Heiðursmönnum
Fundurinn hjá Heiðursmönnum var mjög góður í dag. Gestur okkar átti að vera Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarfulltrúi og formaður skipulagsnefndar.  Steinunn Valdís boðaði forföll vegna veikinda en er tilbúin til að koma á fund okkar síðar.  Sest var að borðum og bornar fram góðgerðir af Hauki yfirkokki og hans ágæta starfsfólki.  Að þessu sinni fengum við góðan íslenskan Lax ásamt tilheyrandi meðlæti. Þórarinn var með gott innlegg um rekstur samtakanna og kom fram í máli hans að ef ekki kemur til frekari framlag frá hinu opinbera og eða með sjálfsaflafé samtakanna þá verði að draga saman í rekstrinum um 50 milljónir. Einnig ræddi hann baráttu samtakanna við hið opinbera s.l. tíu ár, og voru sumar frásagnir hans með ólíkindum.  Þá ræddi hann um  neikvæða umræðu um meðferðarmál og hvernig SÁÁ dregst inn í þessa umræðu að ósekju.  Nú síðast er það hin makalausa umfjöllun fréttastofu Ríkisútvarpsins tvo daga í röð um meðferðarmál með myndmáli m.a. frá Vogi og af fána samtakanna.  Þórarinn bað menn um að hugsa málið vel og lagði mikla áherslu á, að nú þyrfti á aðstoð bakhjarlanna að halda því málið væri grafarfarlegt.  Allmiklar umræður spunnust um þessi mál meðal fundarmanna og komu fram ýmsar hugmyndir.  Áður en fundinum lauk var samþykkt að skipa umræðuhóp fjögurra félaga, sem koma til með að finna heppilega leið til að koma á framfæri skoðunum okkar og svara þessum áróðri.  Nánar um það síðar.
 
Næsti fundur Heiðursmanna verður fimmtudaginn 29. apríl. Þá verður gestur okkar Ólafur Örn Arnarson fyrrverandi yfirlæknir Landsspítalans.
 
1. apríl 2004 - Afbrotafræðingur hjá Heiðursmönnum
Góður gestur var hjá Heiðirsmönnum í dag.  Hildigunnur Ólafsdóttir, afbrotafræðingur hefur um margra ára skeið unnið að rannsóknum í afbrotafræði og starfaði við geðdeild Landspítalans frá 1980 til 2000. Bók hennar Alcoholics Anonymous in Iceland From Marginality to Mainstream Culture kom út árið 2000, en auk þess hefur hún birt fjölda greina  í fræðiritum og fagtímaritum. Hildigunnur skrifaði doktorsritgerð sína um AA samtökin og fæst hún hjá Háskólaútgáfunni og er á ensku. Eftir stofugang með Þórarni okkar var sest að léttum málsverði fram bornum af Hauki yfirkokki og hans fólki og hafi þau bestu þakkir fyrir. Innlegg Þórarins að þessu sinni var  m.a. um viðhaldsmeðferðina þar sem 40 vímuefnasjúklingar (sprautufíklar) njóta meðferðar sem er allfarið greidd með sjálfsaflafé SÁÁ. Þá ræddi Þórarinn um svokallaða Minnesota meðferð sem er samheiti yfir margar aðferðir og meðferðarform, oft kallað hugræn meðferð. Einnig lagði hann sérstaka áherslu á að SÁÁ eru samtök áhugafólks en ekki stofnun og að Heiðursmenn þyrftiað taka þátt í því að leiðrétta þann misskilning. Í máli Þórarins kom einnig fram ýmiss fróðleikur um það góða starf sem SÁÁ vinnur . Næsti fundur verður fimmtudaginn 15. apríl og  verður gestur okkar Steinunn Valdís Óskarsdóttir  formaður skipulagsnefndar Reykjavíkurborgar. 
 
 
18. mars 2004 – Einar Kristinn Guðfinnsson, hjá Heiðursmönnum
Mjög góður fundur hjá Heiðursmönnum í dag.   Gestur okkar var Einar K. Guðfinnsson  alþingismaður.  Stofugangur með Þórarni Tyrfingssyni um Sjúkrahúsið Vog hafði mikil áhrif á Einar sem hafði aldrei komið þangað áður.  Síðan var sest að borðum og var að venju  borið fram af Hauki yfirkokki og hans góða fólki. Að þessu sinni fengum við góða  íslenska kjötsúpu.  Þórarinn var með sérlega gott og fróðlegt innlegg fyrir þingmanninn um rekstur samtakanna og samskiptin við hið opinbera  og  lagði sérstaka áherslu á  að SÁÁ væri áhugasamtök. Einar Kristinn lagði mál sitt mjög vel upp og var eftirtektarvert hvað hann kom vel undirbúinn á fund okkar. Einar Kristinn hefur af þrautseigju frá haustinu 2000 lagt fram fyrirspurnir til heilbrigðisráðherra um meðferðarmál og síðan  þingsályktunartillögu sem fékkst samþykkt á vorþingi 2002.  Samkvæmt þingsályktunartillögunni  á ráðherra að láta gera skýrslu um meðferðarmál o.fl.,  og hefur Einari Kristni verið tjáð að hún komi  út nú fyrir vorið.  Nokkrar fyrirspurnir voru lagðar fyrir Einar Kristinn sem hann svaraði af fúsleika. Næsti fundur Heiðursmanna verður fimmtudaginn 1. apríl.
 
4. mars 2004 - Bónuskóngurinn hjá Heiðursmönnum

Góður gestur og félagi okkar Heiðursmanna í dag var Jóhannes ,,kenndur" við Bónus. Gott var að fá til okkar gest úr atvinnulífinu, sem marga ausuna hefur sopið í samskiptum sínum við kerfið.  Eftir stuttan stofugang með Þórarni yfirlækni  var sest að léttum málsverði fram bornum af Hauki yfirkokki og hans fólki og hafi þau bestu þakkir fyrir. Innlegg Þórarins að þessu sinni var um rekstur samtakanna og lagði hann sérstaka áherslu á, að SÁÁ eru samtök áhugafólks,  en í huga margra er litið á þau sem stofnun.  Í máli Þórarins kom einnig fram ýmis fróðleikur um það góða starf sem SÁÁ stendur fyrir og samskipti samtakanna við hið opinbera.

Jóhannes gerði í stuttu máli grein fyrir uppyggingu fyrirtækja sinna, þróun smásölu og heildverslunar frá því hann hóf starfsemi sína ásamt Jóni Ásgeiri syni sínum.   Mörg góð gullkorn fuku þegar Jóhannes svaraði fyrirspurnum fundarins.
Næsti fundur verður fimmtudaginn 18. mars  nk., og  þá verður gestur okkar Einar Kristinn Guðfinnsson  alþingismaður.

 
19. febrúar 2004 - Menntamálaráðherra hjá Heiðursmönnum
Gestur okkar í dag er sá fallegasti sem heimsótt hefur okkur í vetur, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra. Eftir góða kynningu hjá Þórarni okkar um starfsemi sjúkrahússins var sest að borðum og góðra veitinga Jóa kokks og hans fólks notið. Séra Hjálmar Jónsson vinur okkar sendi okkur ábendingu í vísukorni þar sem Þorgerður Katrín væri að koma í hópinn okkar.

Þorgerði ekki þjakar stress,
Þorgerði virðing sýnið.
Enda þótt konan kát og hress
sé komin í brennivínið.
 
Séra Hjálmar lét einnig fljóta með vísu, sem hann sendi Þorgerði Katrínu í tilefni embættistöku hennar.
 
Ýmsir hljótt og undur létt
æviveginn stikla,
en þú ert komin á þeysisprett 
Þorgerður Katrín mikla.
 
Valgerður Rúnarsdóttir læknir á Vogi var með mjög gott og vel framsett innlegg sem innihélt mikinn fróðleik.  Þorgerður Katrín ávarpaði síðan fundinn og var mjög gott að hlusta á hennar hugmyndir varðandi stofnun embættis forvarnarfulltrúa í vímuefnamálum fyrir skólakerfið.  Þorgerður Katrín lauk máli sínu með því að líkja starfsemi SÁÁ í uppbyggingarmálum við bátasmíði og fór með þessa stöku af því tilefni.

Ýtir mér í ýmsa þraut
örlaganna kraftur,
vona minna bát ég braut
en byggði hann samt upp aftur.

Næsti fundur okkar verður fimmtudaginn 4. mars n.k. og þá mun félagi okkar Jóhannes Jónsson í Bónus verða gestur okkar.
 
 
5. febrúar- Skólamaður hjá Heiðursmönnum
Gestur okkar í dag var góður skólamaður Þórður Kristjánsson  skólastjóri Seljaskóla hér í Reykjavík. Eftir góðan ,,stofugang" og kynningu um starfsemi sjúkrahússins með Þórarni okkar  var sest að borði og notið veitinga, sem Haukur yfirkokkur bar fram af miklum myndarskap eins og honum og hans fólki er lagið. Þórarinn var með gott innlegg eins og svo oft áður og fjallaði eðlilega aðallega um unglingameðferð og eftirfylgni hennar.  Þórður er bóndasonur vestan úr Miklaholtshreppi á
Snæfellsnesi,  ákaflega áheyrilegur og fjallaði um starf sitt með nemendum og foreldrum þeirra. Mjög skemmtileg umræða var síðan um skólamál og fundarmenn lögðu ýmislegt gott til málanna.  Næsti fundur okkar verður fimmtudaginn 19. febrúar  og þá verður gestur okkar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra. 
 
 
22. janúar - Ómar hjá Heiðursmönnum
Góður fundur var í hádeginu í dag hjá Heiðursmönnum. Gestur fundarins var Ómar Einarsson, framkvæmdastjóri ÍTR. Ómar flutti mál sitt í máli og myndum sem var fróðlegt að hlusta og horfa á. Mjög ánægjulegt að fá gest úr þessum geira mannlífsins. Næsti fundur verður fimmtudaginn 5. febrúar, þá verður gestur okkar skólamaður.
 
 
8. janúar - Kári hjá Heiðursmönnum
Mjög ánægjulegur fundur var hjá okkur Heiðursmönnum að Vogi í dag. Gestur fundarins var Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar Erfðagreiningar. Kári var mjög hress og sagði skemmtilega frá, og kitlaði í okkur hláturtaugarnar svo um munaði. Fundarmenn voru um 40 og nutum við góðra veitinga, sem Haukur yfirkokkur og hans fólk bar fram fyrir okkur að miklum myndarskap. Næsti fundur okkar verður fimmtudaginn 22. janúar n.k. Þá verður gestur okkar Ómar Einarsson, framkvæmdastjóri ÍTR og verður eflaust fróðlegt að ræða við hann m.a. um félagslega endurhæfingu, sem er okkur öllum afar hugleikin og er stór hluti af endurhæfingar ,,prógrami" SÁÁ, sem að mínu mati er stórlega vanmetinn af samfélagi okkar.
 
18. desember - Biskup hjá Heiðursmönnum
Heiðursmannafundurinn okkar í dag var mjög ánægjulegur. Herra Karl Sigurbjörnsson biskup var með okkur og var ákaflega gott að hlusta á hann. Hann ávarpaði sjúklinga okkar í fyrirlestrarsal og voru sjúklingar ákaflega ánægðir með það. Þórarinn Tyrfingsson læknir og formaður okkar hélt framsögu og var innblásinn af andagift og okkur til mikils sóma. Ég vil taka undir með góðum félaga Gunnari Kvaran. Það væri mjög gaman og þarft að fá herra Karl Sigurbjörnsson biskup til okkar á síðasta fund fyrir jól framvegis og gera þetta að föstum lið í starfsemi okkar.
 
 

 

 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...