SÁÁ

Heiðursmenn-dagbók 2005

Fimmtudaginn 22. desember

Séra Ása Björk Ólafsdóttir prestur í Fríkirkjunni í Reyjkjavík var jólagestur Heiðursmanna á Vogi á þessum síðasta fundi ársins. Var henni að venju sýnt sjúkrahúsið og var hún ánægð með allan aðbúnað og sýndi unga fólkinu áhuga. Eftir þessa yfirferð með Þórarni og Jakobi var sest að snæðingi í fundarsal. Var boðið uppá gott Lasagne að þessu sinni. Jakob setti fundinn kl 13.00 og kynnti gestinn og jafnframt nýjan framkvæmdastjóra félags og útbreiðslusviðs SÁÁ, Ragnar Sær. Þórarinn fór síðan yfir stöðuna hjá SÁÁ og kom fram að 79% sjúklinga hafa komið 3 svar sinnum eða sjaldnar á Vog sem verður að teljast frábær árangur með tilliti til þess að alkóhólismi  er  ólæknandi sjúkdómur.  Jakob þakkaði fyrir þann tíma sem hann hefur verið í stýrihópi Heiðursmanna en hann lætur af stöfum í hópnum. Þetta hefur verið dýrmætur tími fyrir hann og honum mikil ánægja að kynnast þessum mörgu góðu  Heiðursmönnum.  Þá var séra Ásu boðið orðið og fór hún yfir sögu sína sem aðstandandi og þær rótæku breytingar sem hafa orðið á hennar lífi. Kom meðal annars fram að hún og vinkona hennar sem er djákni eru að fara í gang með forvarnarfræðslu fyrir ungar stúlkur og drengi. Benti hún síðan  á að frá og með þessum degi tæki daginn að lengja og það væri bara meiri birta framundan fyrir alla. Var Séra Ása létt og skemmtileg og lauk frásögn sinni með hugvekju og bæn. Að því loknu komu nokkrar spurningar frá fundarmönnum til hennar sem hún svaraði vel og sleit Jakob síðan fundi kl. 13.00.

 

Fimmtudaginn 8. desember

Gestur Heiðursmanna að þessu sinni var fyrrum útvarpsmaðurinn og núverandi borgarfulltrúinn og frambjóðandinn Stefán Jón Hafstein. Þessi fundur var með breyttu sniði, en hann hófst kl 11.30 á því að fundarmenn snæddu ásamt starfsfólki Vogs af dýrindis jólahlaðborði með frábærri síld og purusteik ásamt mörgu öðru góðgæti. Þórarinn, Gunnar Sig og Stefán Jón fóru um Vog í hefðbundna skoðunarferð og komu síðan í hlaðborðið til hinna. Eiga kokkarnir miklar þakkir skilið fyrir þennan góða mat.  Klukkan rúmlega 12.00 var haldið uppí fundarsal þar sem Þórarinn kveikti á tölvunni og fór yfir helstu mál Sáá. Eftir góða kynningu var Stefáni Jóni boðið orðið. Þakkaði hann fyrir að vera boðið til Heiðursmanna og lagði áherslu á að það væri einmitt á þennan hátt sem ætti að kynna fyrir framámönnum starfsemi sem þessa og kallaði hann fundinn upplýsingafund. Sagði hann síðan frá sjálfum sér á notalegan hátt, meðal annars frá  uppeldisárum sínum í Vogunum, sögur af séra Árelíusi, frá árum sínum í sveit á Tjörnesi og fleiru. Gaf hann síðan kost á spurningum sem fundarmenn nýttu sér. Var meðal annars rætt um hvort borgin ætti ekki að hafa samráð við SÁÁ um ákvarðanir í málum sem snerta áfengis og vímuefnaneyslu .Var Stefán Jón ánægður með líflegar umræður og gaf kost á fleiri spurningum þegar fundi átti aðljúka. Gunnar fundarstjóri tól vel í þetta og sleit síðan þessum líflega fundi um kl 13.00

 

Fimmtudagur 24. nóvember

Heiðursmenn buðu Bjarna Benediktssyni alþingismanni á þennan fund. Þórarinn,   Jakob og Diddi gengu með honum um ganga Vogs og en kynningin var í styttra lagi í þetta skipti. Eftir að gestur og fundarmenn höfðu gætt sér á frábærum hamborgarhrygg með kartöflusalati setti Diddi fundinn klukkan  rúmlega 12.00. Þórarinn fór yfir mál SÁÁ að vanda og kom meðal annars fram að 80% þeirra sem komið hafa á Vog hafa komið 3svar eða sjaldnar. 500 manns hafa komið 10 sinnum eða oftar og er oft litið á það fólk sem hina dæmigerðu  alkahólista og  eina fólkið sem kemur á Vog.  Einnig kom fram að 5,18% pilta fæddir í kringum 1981 komu á Vog innan við tvítugt. Eftir innlegg Þórarins var Bjarna boðið orðið og fannst honum þetta sláandi tölur. Hann lýsti síðan stuttlega starfi fjárlaganefndar Alþingis sem hann situr í og viðurkenndi að erfitt gæti verið fyrir samtök einsog SÁÁ að fá það sem þau þyrftu frá þeirri nefnd. Þá fannst honum að frjáls félagasamtök einsog SÁÁ væru mjög mikilvæg fyrir þjóðfélagið og ættu SÁÁ allt hið besta skilið. Síðan var mikil umræða um vímuefna og áfengisneyslu unga fólksins og lækkun aldurs til áfengiskaupa. Svaraði Bjarni einnig  nokkrum spurningum frá félagsmönnum. Diddi sleit síðan þessum ágæta fundi klukkan rúmlega 13:00.

 

Fimmtudagur 10. nóvember 

Ísólfur Gylfi Pálmason varaþingmaður og sveitastjóri Hrunamannahrepps var gestur Heiðursmanna á þessum fundi. Þórarinn, Diddi, Gunnar Sig. og Jakob  fóru með honum um ganga Vogs og var honum sýnt sjúkrahúsið og  Þórarinn útskýrði starfssemina. Spurði Ísólfur margra spurninga og sýndi mikinn áhuga á öllu. Þá var haldið í fundarsal og menn gæddu sér á ljómandi góðri ekta íslenskri kjötsúpu. Jakob bauð fundarmenn og gestinn velkomna og setti fundinn kl.12.00. Þórarinn fór síðan yfir þau mál Sáá sem honum fannst þurfa að koma fram og var Ísólfi síðan boðið orðið sem hann þáði. Kvaðst hann gera sér fulla grein fyrir hinni miklu alvöru sem býr að baki starfsemi Sáá. Sagði hann að  á vallarhelmingi sveitafélaga væri því miður  lítið um peninga sem gætu styrkt svona nauðsynlega og góða starfsemi sem starf Sáá er. Peningarnir væru hjá ríkinu. Ræddu fundarmenn síðan um leyfi til sölu áfengis í matvöruverslunum og hve fljótt unglingarnir leiðast útí fíkniefni og drykkju eftir tilkomu bjorsins sem margir líta ekki á sem áfengi. Var Ísólfur sammála því sem fram kom. Þá var slegið á létta strengi og má segja að þingmaðurinn hafi farið á kostum í skondnum sögum af sjálfum sér og fleyrum. Þakkaði Ísólfur síðan fyrir að vera gestur Heiðursmanna og er víst að gott er að hann hafi kynnt sér starfsemi Sáá. Jakob sleit síðan fundi kl. 13.00.

 

Fimmtudagur 13. október 

Á þennan Heiðursmannafund kom Aðalsteinn Sigfússon Félagsmálastjóri Kópavogsbæjar sem sérstakur gestur. Að lokinni hefðbundinni kynningu á sjúkrahúsinu með Þórarinni og Didda var haldið í fundarsal og snæddur kjúklingur með súrsætri sósu. Þar bauð Diddi gestinn og fundarmenn velkomna  og setti fundinn kl 12.00. Þórarinn fór yfir málin og minnti á að við erum grasrótarsamtök og notum margar meðferðarhugmyndir og heyrum ekki undir heilbrigðisráðuneytið. Þurfum við stöðugt að leiðrétta þann miskilning. Fram kom að 9,8% landsmanna hafa komið í meðferð hjá SÁÁ. Þá mun vanta sárlega úrræði eftir afeitrun þegar verst settu sjúklingarnir koma út. Eftir þessa yfirferð var Aðalsteini boðið orðið og kvaðst hann þekkja alkóhólisma í gegnum  starf sitt í sambandi við barnaverndarmál og fl. Benti hann á að sífellt yngri börn væru uppvís að neyslu vímuefna. Þá sagði hann að sveitafélög gætu komið inn í starfsemi SÁÁ á eyrnamerktan hátt enda njóta einstaklingar úr þessum sveitafélögum þjónustu samtakanna. Einnig las hann úr skýrslu um Byrgið sem hann hafði samið.  Fékk Aðalsteinn síðan nokkrar spurningar í lokin. Diddi þakkaði síðan gestinum og fundarmönnum fyrir góðan fund og sleit honum kl.13.00

 

Fimmtudagur 29. september 

Hallgrímur Helgason rithöfundur og myndlistarmaður var gestur Heiðursmanna á þessum fundi. Þórarinn, Jakob og Diddi  tóku á móti honum í anddyri Vogs kynntu honum staðhætti og aðbúnað á sjúkrahúsinu eins og venja er. Spurði gesturinn margs enda ekki komið á Vog áður. Jakob setti síðan fundinn og minnti á baráttufund SÁÁ og árshátíðina. Gunnar Kvaran kom þá til bjargar með réttar dagsetningar. Síðan fór Þórarinn nánar yfir stöðuna og verður að segjast að gestir okkar Heiðursmanna verða oft ansi langleitir þegar þeir heyra og sjá tölur og línurit um fjölda innlagna, aukningu á neyslu lyfja og fleira. Þá var gestinum boðið orðið og lýsti hann ánægju sinni með boðið og Þórarinn og las síðan kafla upp úr nýjustu bók sinni sem kemur út núna í haust. Vakti lesturinn gríðarlega kátínu fundarmanna enda var lesið upp með þeim tilþrifum sem Hallgrími einum er lagið. Þakkaði Jakob síðan gestinum og fundarmönnum fyrir fundinn sem var slitð laust fyrir kl. 13.00

 

Fimmtudagur 15. september 

Á fyrsta fundi Heiðursmanna á nýju starfsári var Elín Hirst frétta og sjónvarpskona sérstakur gestur. Þorsteinn J setti fundinn klukkan 12.00 og bauð gestinn og fundarmenn  velkomna. Áður hafði Elín farið um ganga Vogs með Þórarni, Þorsteini og Jakobi. Fannst henni mikið til koma og spurði Þórarin um ýmislegt varðandi sjúktrahúsið. Eftir innlegg Þórarins í fundinn var Elínu boðið orðið og sagði hún að sér kæmi á óvart umfang starfseminnar og kvaðst tilbúin að gera það sem í hennar valdi stæði til að vekja athygli á málefnum SÁÁ og Vogs. Fundarmenn spurðu um fréttamennsku varðandi alvarlegar fréttir af drykkju og dópi og sagði Elín að alltaf væri vandi að segja frá þannig fréttum að það særði eða skaðaði hvorki viðkomandi né aðstandendur. Diddi stóð upp og greindi Elínu frá alvarleika þessara mála og minnti á að margir sjúklingar sem kæmu á Vog væru mjög veikir og þyrftu meðhöndlun strax. Þorsteinn J þakkaði síðan gesti og fundarmönnum og tilkynnti að hann léti af störfum í hópi þeim sem sér um að fá gesti á fundina. Þá bauð hann Didda velkominn í sinn stað. Er Þorsteini hér með þakkað fyrir vel unnin störf í þágu Heiðursmanna. Þessum vel sótta fundi var síðan slitið kl 13.00. 

 

Fimmtudagur 12. maí  

Þetta var síðasti fundur heiðursmanna fyrir sumarfrí og var ákveðið að hafa almennar umræður á þessum fundi. Gunnar Sig setti fundinn og gaf orðið svo til Þórarins sem fór víða í sínum inngangi benti m.a. fundarmönnum á þær miklu breytingar sem orðið hafa á meðferðarstarfi undarfarinn áratug og ýmsa hluti sem betur mættu fara og einnig á það jákvæða og það sem áunnist hefur á  þessum árum. Að þessu loknu tóku við almennar umræður um starfið undarfarinn vetur og var ekki annað að heyra á mönnum að ánægja væri með starfið og þá gesti sem til okkar hafa komið. Var það samdóma álit manna að halda áfram því góða kynningarstarfi sem þessir fundir hafa verið. Fundi var  slitið kl. 13:00. Næsti fundur heiðursmanna verður fimmtudaginn 15. sept.

 

Fimmtudagur 28. apríl  

Gestur okkar heiðursmanna var guðsmaðurinn og fangaprestur þjóðkirkjunar séra Hreinn Hákonarson. Að venju var gesti boðið að skoða Vog og þá starfsemi er þar fer fram í fylgd Þórarinns og með í för var annar og ekki síður frægur guðsmaður séra Karl Matthíasson oft nefndur Karl fimmti. Fundurinn hófst síðan stundvíslega kl. 12:00 og setti séra Karl fundinn og gaf síðan orðið til Þórarinns sem ræddi m.a. um ólögleg og lögleg fíkniefni svokallað læknadóp og einnig um samvinnu við fangelsi og þær stofnanir sem þeim tengjast. Tók síðan við orðinu séra Hreinn og fór hann vítt og breytt yfir starf sitt á meðal fanga og þeirra aðstandenda. Gaf þetta fundarmönnum nokkuð glögga mynd af þeim fangelsum sem starfa hér á landi og innsýn inn í það starf sem kallað er endurhæfing á slíkum stofnunum. Góður rómur var gerður af tali hans og þökkuðu fundarmenn honum vel að lokum. Næsti fundur Heiðursmanna verður fimmtudaginn 12. maí og verður það síðasti fundur fyrir sumarleyfi.

 

Fimmtudagur 14. apríl 

Guðjón Arnar Kristjánsson alþingismaður og formaður Frjálslynda flokksins var gestur Heiðursmanna á þessum fundi. Þorsteinn, Jakob og Einar Axelsson læknir fylgdu gestinum um Vog og greindi Einar honum vel frá ferli sjúklinga allt frá því að þeir koma inn á spítalann og þar til þeir fara í framhaldsmeðferð.  Þá var sest að snæðingi í fundarherbergi og Jakob bauð gestinn velkominn og setti fundinn. Sigurður Gunnsteinsson dagskrárstjóri á Vík fékk síðan orðið og ræddi hann ítarlega um meðferðarúrræði karla sem komnir eru á virðulegan aldur - stórfróðlegt erindi sem góður rómur var gerður að. Guðjón tók síðan til máls og gerði grein fyrir uppruna sínum. Ræddi hann um aðgengi að áfengi, heimabrugg o.fl. Hann nefndi að honum sýndist umgengni um áfengi hafi batnað. Vill hann líka að forvörnin hefjist hjá börnum allt niður í 6 til 7 ára.  

Guðjón fékk að lokum nokkrar spurningar sem hann svaraði og var fundi slitið kl. 13:00. Fundargestir voru 25.

 

Fimmtudagur 31. mars 

Steingrímur J Sigfússon alþingismaður og formaður vinstri grænna var sérstakur gestur Heiðursmanna fimmtudaginn 31. mars 2005 á Vogi.  Þórarinn og Þorsteinn gengu með Steingrími um spítalann og kynntu honum aðbúnað og starfssemi. Eftir ágætt spjall frammi í móttöku var sest að snæðingi og var gúllas með katöflumús í boði að hætti kokkana á Vogi. Hinn besti matur. Þórarinn hóf fundinn og fór mikinn í ræðu sinni um nýjustu tölur í aukinni fíkniefnaneyslu ásamt málum því tengdu og ræddi einnig  rýra fjárhagsaðstoð ríkisins til SÁÁ. Steingrímur hafði á orði að sig vantaði einmitt svona skeleggan ræðumann sem Þórarinn er í framboð sitt. Steingrímur ræddi um ýmis viðmið í öðrum löndum gagnvart áfengi og vill láta ræða um sölu áfengis í búðum og vandamálin sem því fylgja heildstætt. Hann vill líka að SÁÁ styðji reykingarbannið. Steingrímur fór víða í ræðu sinni og fékk nokkrar spurningar sem hann svaraði í lokin. Þorsteinn sleit síðan þessum góða fundi kl. 13:00

 

Fimmtudagur 17. mars

Til okkar Heiðursmanna kom í dag Karl Steinar Guðnason forstjóri Tryggingastofnunar. Skoðaði hann Vog í fylgd Þórarins og Þorsteins og var ánægður með að hafa verið boðið hingað og þótti mikið til starfsins er unnið er á Vogi  koma. Þorsteinn setti fund að venju kl. 12:00 og við tók svo Þórarinn og fór víða í sínum inngangi.

Síðan fékk Karl Steinar orðið og var eftir tekið hve einlægur hann var í tali um sína persónu og fjölskyldu og tengsl þeirra við  SÁÁ. Fór Karl yfir sögu almannatrygginga á Íslandi og var þar margt fróðlegt að heyra. Að lokum gafst fundarmönnum tækifæri á að spyrja og tjá sig um þessi málefni og voru fjörugar umræður í gangi til enda fundar sem Þorsteinn sleit kl 13:00. Næsti gestur Heiðursmanna verður Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður.

 

Fimmtudagur 9. mars

Hlín Agnarsdóttir kom í heimsókn til okkar að Vogi 9. mars. Þórarinn fór með hana ásamt Jakob og undirritaðan í kynnisferð um sjúkrastöðina. Hlín spurði margs og þótti mikið til koma enda hafði hún aldrei komið inn á Vog áður. Að kynnisferð lokinni hófst fundur kl.12.00 með heiðursmönnum. Þorsteinn setti fund og Þórarinn flutti

erindi um starfsemi SÁÁ. Hlín sagði frá sér og samskiptum sínum við sambýlismann er lést um aldur fram af völdum alkahólisma. Frásögn Hlínar var mjög áheyrileg og grípandi. Fjölmargar fyrirspurnir komu fram að frásögn Hlínar lokinni. Þessari ánægjulegu heimsókn lauk klukkan 13.00. Á fundi mættu 36.  

 

Fimmtudagur 17. febrúar

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra kom í heimsókn til heiðursmanna SÁÁ fimmtudaginn 17. febrúar.  Þórarinn, Þorsteinn og Gunnar fóru með ráðherrann um sjúkrastöðina að Vogi. Þórarinn sagði frá hvað færi fram á staðnum og svaraði spurningum Guðna sem lýstu áhuga á því hvað hér fer fram. 

Gunnar Sigurðsson setti síðan fund heiðursmanna SÁÁ og Þórarinn kom með nýjar tölur varðandi starfsemina og þann árangur sem náðst hefur. Þórarinn sagði frá áformum um að byggja meðferðarstöð í holtinu austur af Vogi. Guðni vildi beita sér fyrir framgangi þess máls í ríkisstjórn og borgarstjórn Reykjavíkur. Fyrirspurnir komu fram og þeim var svarað. Ánægjulegum fundi lauk klukkan 13.00. Fundarmenn voru 41. 

 

Fimmtudagur 3. febrúar

Einar Már Guðmundsson stórskáld og menningarviti var gestur heiðursmanna í dag og að vanda var vel tekið á móti gesti Heiðursmanna og gengu skáldið og vísindamaðurinn (Þórarinn) um ganga Vogs. Lét skáldið vel af þessari kynningu og var mjög þakklátur fyrir boðið á fundinn. Jakob stjórnaði fundi Þórarinn brá út af vananum og gerðist sögumaður og fór alveg aftur til aldamóta 1800-1900 í inngangi sínum sem gerður var góður rómur af. Einar skáld las síðan upp úr nokkrum af sínum bókum og var ekki laust við að margir þeir heiðursmenn er á fundinum voru könnuðust við sjálfan sig í sögupersónum Einars. Mikil gleði og hlátur einkenndi þennan fund sem og Þorramatur góður enda eiga þeir kokkar á Vogi miklar þakkir skyldar frá okkur Heiðursmönnum fyrir góðan mat á þessum fundum.

 

Fimmtudagur 20. janúar

Mörður Árnasson alþingismaður var gestur í dag , mætti að vísu hálftíma of seint, fór snöggan túr um staðinn í fylgd Þórarins sem leiddi gestinn í allan sannleikann um Vog. Fundurinn hófst að þessu loknu. Þorsteinn stjórnaði ,Þórarinn hélt sína tölu og svo tók Mörður til máls . Ekki vannst tími til umræðu að þessu sinni.

 

Fimmtudagur 6.jan.

Þórhallur og Svanhildur af Stöð 2 komu í heimsókn til Heiðursmanna SÁÁ. Fyrir fundinn fór Þórarinn Tyrfingsson fór með þau um sjúkrahúsið og fannst gestunum mikið til koma. Þau höfðu orð á að ekki hefðu þau gert sér grein fyrir hve mikil starfsemi færi hér fram. Gunnar Sig. setti fundinn í hádeginu og kynnti gesti. Þórarinn kynnti starfsemi SÁÁ og þann árangur sem náðst hefur.

 

Þórhallur sagði frá góðri reynslu fjölskyldu sinnar af SÁÁ og Svanhildur lýsti undrun sinni og aðdáun á starfseminni og að hún hefði áttað sig á því í heimsókninni hve margar fjölskyldur sem hún þekkti til hefðu notið góðs af því sem hér fér fram. Fyrirspurnir komu fram og þeim var svarað. Mjög ánægjulegum og opinskáum fundi lauk kl.13.00.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...