SÁÁ

Heiðursmenn dagbók 2006

Fimmtudaginn 7. nóvember

Gestur Heiðursmanna var Einar Oddur Kristjánsson alþingismaður. Einar Oddur hefur verið þingmaður Vestfirðinga frá 1995 og er varaformaður fjárlaganefndar.

 

Fimmtudaginn 11. október

Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður var gestur Heiðursmanna. Guðlaugur hefur verið í borgarstjórn Reykjavíkur síðan 1998 og setið á Alþingi frá 2003. Guðlaugur Þór er einnig í stjórn Vímulausrar æsku.

 

Fimmtudaginn 31. ágúst.

Heiðursmenn SÁÁ hófu vetrarstarf sitt fimmtudaginn 31. ágúst. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri var gestur Heiðursmanna á Vogi. Vilhjálmur þekkir vel starfsemi SÁÁ, enda var hann framkvæmdastjóri SÁÁ á árunum 1978-1984 og hefur verið í stjórn SÁÁ frá árinu 1984.

 

Fimmtudaginn 18. maí

héldu  Heiðursmenn sérstakan fund í Perlunni þar

sem gestur þeirra var Þorsteinn Pálsson. Það var síðasti fundur Heiðursmanna fyrir sumarfrí. Boðið var upp á fiskisúpu og brauð og fl. að hætti Perlunar.

 

Fimmtudaginn 4. maí

Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi var gestur Heiðursmanna

 

Fimmtudaginn 30. mars

Sérstakur gestur fundarins var Lúðvík Bergvinsson alþingismaður.

 

Fundur á Vogi þann 16. mars 2006

Gestur fundarins var Borgar Þór Einarsson, formaður SUS. Farin var skoðunarferð um Vog og eftir það flutti Þórarinn pistil þar sem hann stiklaði á stóru um starfsemina.  Síðan tók Borgar Þór til máls.  Hann hafði villst af leið upp á Vog en skilaði sér þó, örlítið of seint.  Borgari Þór fannst sér sýndur mikill heiður með því að vera boðið.  Hann lýsti undrun sinni varðandi tölur um innlagnir og hafði á orði hversu rækilega einkageirinn væri búinn að standa sig. Honum fannst mega vera meira samræmi milli aldurs, hvenær þú tekur bílpróf, ert sjálfráða, mátt gifta þig og kaupa áfengi. Um þetta ætti að gilda sami aldur.  Í raun snérist þetta ekki um hversu gamall þú ert þegar þú mátt kaupa áfengi eða hvort áfengi verði selt í matvöruverslunum heldur vantaði frekar meiri fræðslu um skaðsemi áfengis- og vímuefnaneyslu. Hann ætlar að koma þessu á framfæri hjá sínum mönnum.  Áhugi hans var virkilega vakinn í þessari heimsókn og lýsti hann því yfir að hann vildi efna til opinnar umræðu með Þórarni og fleirum um þessi mál.

 

Fundur á Vogi þann 2. mars 2006 

Fundinn sátu 36 manns og var gestur fundarins Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Farin var hefðbundin skoðunarferð um Vog. Fundur settur klukkan 12, og byrjaði Þórarinn fundinn með pistli og fór yfir starfsemi og markmið SÁÁ. Síðan tók Árni til máls.  Hann hefur áður verið gestur á fundi hjá Heiðursmönnum og lýsti hann ánægju sinni með að vera boðið aftur og fá að fylgjast með uppbyggingu og þeim breytingum sem átt hafa sér stað.

Hann ræddi einnig um mikilvægi forvarnarstarfs og upplýsingum til barna og unglinga á grunnskólaaldri og það hversu mikilvægt væri að virkja foreldra í því starfi.  Var honum þakkað af einum fundargesta fyrir að grunnskólar Reykjanessbæjar væru gemsalausir, því það gerði fíkniefnasölum erfiðara fyrir í að ná sambandi við krakkana.

 

Árna barst fyrirspurn frá einum fundargesta um átakið Vímulaust Ísland. Sagði hann að það hefði ekki skilað tilætluðum árangri vegna þess að skort hefði eftirfylgni og jafnvel hefði þurft sérstaka stofnun um þetta verkefni.

 

Fundi var slitið kl. eitt

 

Fundur á Vogi 16. febrúar.

Fundinn sátu 24 og var gestur fundarins Egill Helgason fréttamaður og stjórnandi Silfur Egils. Fundurinn hófst á því að Þórarinn flutti pistil um starfsemi SÁÁ. Minntist m.a. á að búið væri að opna bráðamóttöku og að minna væri um lifrarbólgu meðal sprautufíkla svo eitthvað sé nefnt. Síðan var Agli boðið orðið. Hann sagðist ekki vera að koma í fyrsta sinn á Vog og tók fram að hann væri mjög hrifinn af allri starfsemi samtakanna. Taldi að betur mætti upplýsa um starfsemi SÁÁ í fjölmiðlum og sagðist tilbúinn að taka á móti pósti frá Þórarni og koma upplýsingum á framfæri.

 

Fundi slitið kl. 13:00

 

Fundargerð Heiðursmanna 2.  febrúar 2006 

Gestur Heiðursmanna í dag var Magnús Scheving.  Magnús skoðaði sjúkrastöðina en að því loknu fór Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á Vogi yfir staðreyndir og tölur úr starfi samtakanna.  M.a. fór hann yfir mikilvægi áfengisráðgjafa og allt það starf sem fer fram eftir dvöl á Vogi.  Starf þeirra gengur út á það að tengja fólk að nýju við umhverfið.

Þórarinn sagði m.a. frá mikilvægi þess að sinna öllum, líka þeim sem þurfa að koma oft til meðferðar.  Sannleikurinn við það væri að 2,8% áfengissjúklinga þyrfti að koma verulega oft til meðferðar.  Þessi sjúklingahópur þyrfti enn ítarlegri úrræði og aðstoð en SÁÁ er að veita í dag en alls eru þetta um 500 einstaklingar.

 

Næst tók gestur dagsins til máls. Magnús sagði að þegar verið er að vinna grasrótarstarf gleymist oft að huga að almannatengslum og samskiptum sem skipta gríðarlega miklu máli til að afla tekna fyrir það starf sem verið er að vinna að hverju sinni.  Þetta ætti m.a. við um SÁÁ.  Auðlind SÁÁ lægi í þeirri þekkingu sem samtökin hafa og eru nú að vinna með í samstarfi við Íslenska erfðagreiningu.

 

Magnúsi var hugleikið uppeldi barna í dag.  Hann heyrði oft talað um uppeldismál hjá ömmu sinni.  Í dag er umburðalyndi orðið svo mikið að það eru ekki lengur haldið í fastar reglur, það er enginn skammaður.  Ef sjö ára barn brýtur rúðu er það bara beðið að gera þetta ekki aftur.  Þetta þarf að skoða betur. Um kennslu sagði Magnús m.a. að það ættu að vera kennararnir en ekki börn sem ættu að óttast próf.

 

Hann sagði frá atburðum úr eigin lífi sem líklega eru undanfarar á sköpun íþróttaálfsins.  Það er frá þeim tíma sem hann bjó sem barn í Borgarnesi og hljóp með símskeyti frá 6 ára aldri.  Erfiðast var að hlaupa lengstu leiðirnar, allt að 6 km.  Á þessum árum lærði Magnús nokkuð í leiklist.  Þar með var íþróttaálfurinn skapaður!

 

Magnús sagði frá eigin baráttu við sköpun Latabæjar.  Hann hélt t.d. 460 fundi til að fá orkubókina í gang.  Hann fór 4000 sinnum í búning íþróttaálfs fyrstu 12 árin.  Magnús telur að það þurfi að gera röð mistaka til að ná árangri.  Við lærum af mistökum okkar. Ísland var góður staður til að reyna nýja hluti.

 

Magnús ferðaðist til 56 landa við að sýna þolfimi og sá að hvergi voru menn að sinna heilsufari barna.  Magnús horfði mikið á börn, þau vilja öll hreyfa sig en það eru foreldrarnir sem útiloka það oft.

 

Við getum gert betri hluti varðandi heilsurækt og hugað betur að því hvað við látum ofaní okkur.  Allir getum við t.d. búið til betri og hollari hamborgara en Macdonalds.  Samt er fólk að kaupa þessa hamborgara.  Það er vegna þess að þeir eru sérfræðingar í að pakka sinni söluvöru í umbúðir sem henta fólki.  Þetta þurfum við að taka okkur til fyrirmyndar.   Magnús fór um allan heim og spurði foreldra hvað þeir vildu sjá breytast til batnaðar hjá börnum sínum.  Þetta gerði hann til að geta betur áttað sig á því hvernig Latibær ætti að vera.

Núna er íþróttaálfurinn það barnaefni í heiminum sem selst hraðast í heiminum.   Það tók aðeins sjö mánuði frá því að framleiðsla á efninu hófst sem er sjaldgæft. 

 

Hugsjónir og hugmyndafræði:

Magnús lýsti því hvernig hann vildi byggja upp sitt fyrirtæki og yfirfærði það yfir á samfélagið að allir í samfélaginu ættu að vera að hugsa um næsta mann.  Þá fór hann yfir ABBA hugmyndafræðina sem felst í því að skipuleggja sig fyrirfram, vera klár þegar kallið kemur.

 

Hann nefndi einnig þá hugmynd að ráða latasta manninn í vinnu, því hann væri sérfræðingur í að finna auðveldustu leiðina.  Ekki gafst tími fyrir spurningar en Magnús fór á kostum með látbragði og hressilegri framkomu sem honum einum er lagið.

 

Fundargerð 2. fundar Heiðursmanna, 19. janúar 2006 

Þórarinn bauð gesti þá Jens Andrésson formann SFR og Árna Stefán Jónsson framkvæmdastjóra velkomna og fjallaði að þessu sinni um menntun áfengisráðgjafa og mótun þekkingar í áfengis- og vímuefnavörnum hjá SÁÁ.

 

Þekkingin kom fyrst með þeim sem notið höfðu þjónustunnar á Fríport í Bandaríkjunum.  Síðan fór að byggjast upp reynsla hér heima sem nýttist vel í meðferðarstarfi.  Þá tók við nám og handleiðsla fyrir nýja áfengisráðgjafa hjá SÁÁ.  Fyrstu tvo mánuðina var eingöngu handleiðsla en alls tekur grunnnám áfengisráðgjafa að lágmarki tvö ár en einnig er hægt að taka lyfjapróf eftir að þriggja ára starf sem áfengisráðgjafi.  SÁÁ hefur 40 áfengisráðgjafa við störf og er mikilvægt að þeir séu vel menntaðir og fái góð laun. 

Það þarf sterk bein til þess að vera áfengis- og fíkniefnaráðgjafi.

 

Jens sagði frá stéttarfélagi því sem hann er formaður fyrir m.a. nafnabreytingu sem stéttarfélagið fór í,  frá því að heita Stéttarfélag ríkisstofnanna í Stéttarfélagi í almannaþágu.  Stéttarfélagið nýtir sér ennþá eldri skammstöfun, SFR og líkti þar eftir m.a. SÁÁ sem hélt sinni skammstöfun þrátt fyrir nafnabreytingu.

 

Jens fór yfir hlutverk stéttarfélaga að vinna fyrir fólk.  Hann fjallaði um gott orðspor SÁÁ.

 

Nokkrar spurningar voru bornar fram:

Spurt var um launakjör og þær hækkanir sem nýverið hafa orðið hjá Eflingu.  Hvernig koma þær við starfsfólk hjá SÁÁ.

Árni framkvæmdastjóri svaraði að af sjálfsögðu væri gert ráð fyrir því að þeirra félagsmenn fengju sambærilegar hækkanir.

 

Spurt var um lögverndun starfsheita, m.a. áfengisráðgjafa.  Jens svaraði því til að lögverndun starfa væri víkjandi í okkar lagaumhverfi.

 

Spurt var:  Hver er staða alkóhólista innan SFR m.a. með tillits til sjúkrasjóðs?  Jens svarað því til að þjónustan vegna þessa væri sú sama og gagnvart öðrum sjúkdómum. 

Fram kom einnig að við gerð kjarasamninga hefur sjúkrasjóður, starfsmenntunarsjóur verið að eflast.

 

Komið var inná það í umræðunni að verulegra fordóma gætir í íslensku samfélagi.  Spurt var hvort ráðherrar á Íslandi þyrftu að segja af sér ef þeir ættu við áfengisvanda að stríða og færu í meðferð!  Jens taldi að eins og samfélagið væri þá væri fóki stætt á því að halda starfi sínu.

 

Fimmtudaginn 5. janúar

Fyrsti gestur Heiðursmanna á nýju ári, 2006,  var Karl Blöndal aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins.   Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir og formaður SÁÁ og Sigurður Friðriksson gengu með Karli um Vog og upplýstu hann um starfsemi samtakanna og þeirra stofnanna sem samtökin reka.  Eftir léttan hádegisverð fór Þórarinn yfir tölulegar upplýsingar um fjölda þeirra sem hafa nýtt sér þjónustu SÁÁ.  Kynntar voru m.a. tölur um fjölda ungra fíkniefnaneytanda eftir árgöngum.  Þá var sagt frá rannsóknarstarfi sem er í gangi í samvinnu við Íslenska erfðagreiningu og að sú vinna gangi mjög vel.  Hugmyndin er að finna “alka genið” en margvíslegar aðrar upplýsingar koma einnig út úr rannsókninni sem munu nýtast vel.

 

Karl sagði frá upplifun sinni á meðhöndlun áfengis á vinnustöðum hér á árum áður m.a. í blaðamannastétt og að Morgunblaðið hafi ekki farið varhluta af þeirri misnotkun áfengis. Breytingar hafi orðið mjög miklar á undanförnum 15 árum til hins betra og nú þekkist varla að starfsmaður mæti drukkinn til vinnu.  Karl lýsti fyrstu frétt sinni fyrir Morgunblaðið frá þeim tíma þegar hann var fréttaritari þess í Þýskalandi.  Fyrirsögnin var helst til of gróf fyrir íhaldsamt blað og því var henni breytt í meðhöndlun þó að innihaldið væri hið sama.

 

Karl óskaði eftir að svara spurningum og voru þær fjölmargar. Karl var spurður hvers vegna það þyrfti fjölda blaðamanna þegar ný bjórtegund kæmi á markað en færri kæmu þegar um væri að ræða ný lækningatæki.  Karl kannaðist ekki við tiltekið dæmi og fannst það ekki eðlilegt að sinnu slíku máli með þeim hætti sem gert var en eflaust er um að ræða arf frá því þegar boðið var uppá vín á fjölmörgum fréttamannauppákomum á árum áður. (verið var að fjalla um jólabjór sem framleiddur er fyrir á Akureyri). Þá var Karl spurður hvers vegna ekki væru blaðamenn á Mogganum sem sérhæfðu sig í því að skrifa um heilbrigðismál.  Karl taldi sig hafa fólk sem þekkti til þessara mála og benti á unga blaðakonu sem hefði verið með heildarúttekt á heilbrigðismálum. Þá var Karl spurður hvort Mogginn væri að fara í sjónvarpsrekstur en það taldi hann blaðið ekki vera að gera þrátt fyrir það að í nýju húsi blaðsins yrði eitt studio fyrir slíkar upptökur.  Þær yrðu nýttar til að senda út upptökur á netinu þannig að viðtöl og annað yrði sýnt beint og milliliðalaust fyrir notendur netmiðila. Sigurður (Diddi) þakkaði Karli fyrir að koma til heiðursmanna og sleit fundi kl. 13:00.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...