SÁÁ

Heiðursmenn-dagbók 2007

 

Fimmtudagur 27. september

Við starfi ráðuneytisstjóra í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti hefur tekur Berglind Ásgeirsdóttir sem áður gegndi stöðu sviðsstjóra viðskiptasviðs í utanríkisráðuneytinu. Berglind var sérstakur gestur Heiðursmanna SÁÁ á hádegisfundi þeirra fimmtudaginn 27. september.

 

Fimmtudagur 13. september

Dómsmálaráðherra Björn Bjarnason var gestur Heiðursmanna fimmtudaginn 13. september.  Þessi heimsókn var sérlega ánægjuleg í ljósi hins nýja samkomulags milli ráðuneytisins, SÁÁ og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um samstarf.

 

Fimmtudagur 30. ágúst

Fyrsti gestur heiðursmanna á þessum vetri var lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins  Stefán Eiríksson. Stefán kynnti sér starfsemina á Vogi í leiðsögn yfirlæknisins Þórarins Tyrfingssonar. Þar kom honum á óvart umfang starfseminnar og hversu breiður hópur sjúklinga er á sjúkrahúsinu hverju sinni.

 

Fimmtudaginn 8. maí

var Geir H. Haarde, forsætisráðherra gestur Heiðursmanna. Geir H. Haarde hefur verið alþingismaður síðan 1987 og ráðherra síðan 1998. Geir var varaformaður Sjálfstæðisflokksins 1999-2005 og hefur verið formaður síðan 2005.

 

Fimmtudagurinn 23. apríl

Dr. Össur Skarphéðinsson var sérstakur gestur Heiðursmanna. Af honum er mikill fengur því sá hinn sami hefur einnig gert sig gildandi í pólitík og ætlar sér mikla hluti á því sviði. Hann hefur til að mynda gert tilkall til heilbrigðisráðuneytisins, en fyrst þyrfti að fræða hann um starfsemi og þjónustu SÁÁ við áfengis- og vímuefnasjúklinga. Það er gríðarlega mikilvægt áður en hann gengur í þau björg sem HTR er. Því bjóða heiðursmenn Dr. Össur Skarphéðinsson sérlega velkominn á sinn fund á fimmtudaginn kl. 12.

 

Fimmtudaginn 10. apríl 

var hinn geðþekki fréttahaukur og fyrrum aðstoðamaður

forsætisráðherra, Steingrímur Ólafsson, gestur Heiðursmanna SÁÁ. Hjá Steingrími fengu undarmenn innsýn inn í myrkviði og ískalda þoku stjórnmálanna auk hins hlýja og upplýsandi ljóss fjölmiðlanna.

 

Fimmtudaginn 20. mars

var fjármálaráðherra gestur  Heiðursmanna. Árni M. Mathiesen er fæddur í Reykjavík 2. okt. 1958, og tók stúdentspróf frá Flensborgarskóla 1978, embættispróf í dýralækningum frá háskólanum í Edinborg 1983 og próf í fisksjúkdómafræði frá Stirling-háskóla 1985. Árni M. Mathiesen hefur verið alþm. Reykn. 1991-2003, og alþm. Suðvest. síðan 2003 (Sjálfstfl.). Sjávarútvegsráðherra 1999-2005 og fjármálaráðherra

síðan 2005.

 

Fimmtudagurinn 6. mars

Gestur fundarins var Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.  Siv Friðleifsdóttir er með stúdentspróf frá MR og lauk BS-prófi í sjúkraþjálfun frá HÍ 1986. Siv hefur verið alþm. Reykn. frá 1995-2003, og alþm. Suðvest. síðan 2003 (Framsfl.) og umhverfisráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda frá 1999-2004 og heilbrigðis- og

tryggingamálaráðherra síðan 2006.

 

Fimmtudagurinn 6. febrúar

Sérstakur gestur Heiðursmanna á þessum fundi var Agnes Bragadóttir. Agnes Bragadóttir er blaðamaður hjá Morgunblaðinu og hefur starfað þar síðan 1984. Hún lauk BA-prófi í ensku og þýsku frá Háskóla Íslands árið 1980 og stundaði framhaldsnám í Harvard-háskóla í Bandaríkjunum veturinn 1987-88 í þjóðfélagsmálum og stjórnmálafræði. Starfaði á Tímanum í fjögur ár áður en hún hóf störf hjá Morgunblaðinu, þar sem hún hefur m.a. starfað sem fréttastjóri menningarmála, innlendra frétta og viðskiptafrétta.

 

Fimmtudagurinn 22. janúar

Sérstakur gestur Heiðursmanna var Baltasar Kormákur, kvikmyndaskáld, leikari og leikstjóri. Baltasar Kormákur útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands 1990 og hefur síðan þá verið áberandi ýmist sem leikari, leikstjóri eða framleiðandi.

 

Fimmtudagurinn 11. janúar

Fyrsti fundur Heiðursmanna SÁÁ ársins 2007 var haldinn fimmtudaginn 11. janúar klukkan 12:00 á Vogi. Sérstakur gestur Heiðursmanna á þessum fundi átti að vera Baltasar Kormákur, kvikmyndaskáld, leikari og leikstjóri en hann komst því miður ekki. Baltasar verður hins vegar gestur Heiðursmanna á fundi fimmtudaginn 25. janúar. Í stað leikstjórans kom Sr. Þorvaldur Víðisson miðborgarprestur og æskulýðsfulltrúi Dómkirkjunnar. Þorvaldur starfar á vettvangi götunnar, ef svo má segja, og ræðir við og veitir sálgæslu þeim sem leita þjónustu miðborgarprests.  Þorvaldur hefur komið í Gistiskýlið, er í örlitlu samstarfi við Foreldrahús, er reglulega með helgistundir í Geðhjálp svo fátt eitt sé nefnt.  Hann er í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar í miðbæjarvakt og í hópi á þeim vettvangi sem heitir Samtaka. Einnig er Þorvaldur fulltrúi Þjóðkirkjunnar í samstarfshóp sem heitir SAMAN.

 

 

 

 

 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...