|
Fimmtudagur 16. október
Gestur fundarins var Gísli S. Einarsson bæjarstjóri á Akranesi.
Fimmtudagur 18. september
Heiðursmaðurinn Ellert B. Schram var gestur Heiðursmanna á Vogi. Ellert er auðvitað fyrst og fremst þekktur fyrir að vera afburðamaður í knattspyrnu og lykilmaður í gullaldarliði KR. Einhverjir vita um langan pólitískan feril Ellerts og nú er hann á Alþingi, lykilmaður í ýmsum nefndum og þar með maður sem Heiðursmenn eiga sérstakt erindi við.
Fimmtudagur 4. september
Vegna aukaþings Alþingis afboðaði Guðlaugur Þór Þóðarson heilbrigðisráðherra heimsókn sína til Heiðursmanna. Í hans stað mætti Guðfinna Bjarnadóttir alþingismaður sem gestur Heiðursmanna fimmtudaginn 4. september..
Fimmtudagur 8. maí
Forseti ASÍ, Grétar Þorsteinsson, var gestur Heiðursmanna að Vogi fimmtudaginn 8. maí. Grétar var fyrst kjörinn forseti á 38. þingi ASÍ árið 1996, endurkjörinn á þinginu 2000 og á ársfundi 2002, 2004 og 2006.
Fimmtudagur 10. apríl
Heiðursmann SÁÁ funda á Vogi, 10. apríl klukkan 12.00. Sérstakur gestur fundarins var Bjarni Harðarson alþingismaður. Bjarni hefur verið þingmaður framsóknarflokksins í suðukjördæmi frá 2007.
Fimmtudagur 27. mars
Heiðursmenn SÁÁ funda fimmtudaginn 27. mars á Vogi og var dr. Benedikt Jóhannesson stærðfræðingur og framkvæmdastjóri gestur fundarins. Benedikt er formaður stjórnar nýrrar sjúkra-tryggingastofnunar, sem ætlað er að semja um og kaupa heilbrigðisþjónustu fyrir hönd heilbrigðisráðuneytisins.
Fimmtudagur 28. febrúar
Gestur Heiðursmanna var Árni Páll Árnason lögmaður og alþingismaður. Árni var kosinn á þing í maí 2007, sem þingmaður Suðvestur kjördæmis og er m.a. í heilbrigðisnefnd, utanríkismálanefnd og viðskiptanefnd. |