SÁÁ

Dagbók 2009

 

 

Fimmtudaginn 10. desember

Gestur Heiðursmanna að þessu sinni er Höskuldur Þórhallsson alþingismaður sem á m.a. sæti í fjárlaganefnd og er mikilvægt að hann fái að sjá sterkan og samstæðan hóp í heimsókn sinni. Nú er undirskriftarsöfnunin okkar á lokametrunum og um að gera að koma saman og skipuleggja fundinn sem verður á Austurvelli 15. desember kl. 17:00 þar sem undirskriftirnar verða afhentar.

 

Fimmtudaginn 26. nóvember

Gestur Heiðursmanna að þessu sinni er Vigdís Hauksdóttir alþingismaður og er mikilvægt að hún fái að sjá sterkan og samstæðan hóp í heimsókn sinni. Heiðursmenn hafa staðið sig með eindæmum vel í að safna undirskriftum undir

áskorun til stjórnvalda og nú er um að gera að hittast og þétta hópinn.

 

Fimmtudaginn 12. nóvember

Ásbjörn Óttarsson, alþingismaður gestur Heiðursmanna SÁÁ

Heiðursmenn SÁÁ funda á Vogi, fimmtudaginn 12. nóvember kl 12.00.  Ásbjörn á m.a. sæti í fjárlaganefnd Alþingis og er mjög mikilvægt að heiðursmenn sendi kröftug skilaboð til nefndarinnar. Allir eru hvattir til að mæta og taka með sér gesti.

 

Fimmtudaginn 29. október

Heiðursmenn SÁÁ funda fimmtudaginn 29. október kl 12:00 á Vogi. Gestur að þessu sinni verður útvarpsmaðurinn góðkunni og guðfræðingurinn Ævar Kjartansson. Ævar er þekktur fyrir vandaða dagskrárgerð í útvarpi og greinar um hin ýmsu málefni.

 

Fimmtudagur 15. október

Heiðursmenn halda sinn reglulega fund næstkomandi fimmtudaginn, 15. október, á Vogi kl 12:00. Gestur heiðursmanna verður Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri á Seltjarnarnesi.

Á stórfundi SÁÁ í Háskólabíói 7. október sl., gáfu Heiðursmenn 500 þúsund krónur í Styrktarsjóð SÁÁ. Sigurður Friðriksson, talsmaður Heiðursmanna, afhenti peningagjöfina og einnig tvær innrammaðar myndir fyrir Vin, hið nýja áfangahús SÁÁ.

 

Fimmtudagur 17. september

Heiðursmenn SÁÁ hefja vetrarstarf sitt á ljóðrænum nótum Fyrsti fundur Heiðursmanna SÁÁ á þessu hausti, verður á Vogi næsta fimmtudag, 17. sept., klukkan 12:00. Gestur Heiðursmanna á fundinum verður Gerður Kristný Guðjónsdóttir rithöfundur.

 

Fimmtudagur 14. maí

Fundur Heiðursmanna SÁÁ 14. maí. Gestur fundarins er Sigríður Ingibjörg Ingadóttir alþingiskona. Sigríður hóf þáttöku í pólitisku starfi með Kvennalistanum árið 1991 og gegndi ýmsum trúnaðarstöfumfyrir flokkinn. Hún hefur verið í Samfylkingunni frá stofnun hennar og sl. tvö ár varaformaður Samfylkingarfélagsins í Reykjavík.

 

Fimmtudagur 30. apríl

Á fundi Heiðursmanna 30. apríl, var Valgerður Matthíasdóttir, dagskrárgerðarmaður og arkitekt sérstakur gestur fundarins.

 

Fimmtudagur 16. apríl

Svandís Svavarsdóttir var gestur Heiðursmanna SÁÁ, fimmtudaginn 16. apríl klukkan 12:00 á Vogi.

 

Fimmtudagur 19. mars

Gestur fundarins var Össur Skarphéðinsson utanríkis- og iðnaðarráðherra.

 

Fimmtudagur 5. mars

Fundur Heiðursmanna SÁÁ á Vogi fimmtudaginn 5.mars klukkan 12:00. Sérstakur gestur fundarins var Kristján Þór Júlíusson alþingismaður.

Vigdís Hauksdóttir alþingismaður

Ásbjörn Óttarsson, alþingismaður

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir alþingiskona

Svandís Svavarsdóttir

 

 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...