SÁÁ

Kaffi, kökur og rokk&ról

Tónleikaröðin Kaffi, kökur & rokk & ról fór í gang í Edrúhöllinni, Efstaleiti 7, þekkt sem Vonarhús SÁÁ, síðasta haust. Helstu og merkustu sveitir íslenskrar tónlistar léku þar þrjá þriðjudagaí mánuði og komu alls 26 sveitir og listamenn fram á þrettán tónleikum. Þar á meðal  Benni Hemm Hemm, Prinspóló, Agent Fresco, Mammút, Sóley, Snorri Helga, Retro Stefson, Reykjavík!, Dikta, Skálmöld, Lay Low, Hjaltalín, Mugison og Jónas Sig.

 

Dagskrárstjóri er Arnar Eggert Thoroddsen, blaðamaður og poppfræðingur. Benni Hemm Hemm og Prinspóló riðu á vaðið í haust en Mugison og Jónas Sig. lokuðu haustönninni með tónleikum á milli jóla og nýárs. Það var svo hinn umtalaði og mjög svo virti John Grant sem opnaði röðina á nýjan leik í janúar 2012.

 

Hugmyndin er að brjóta upp helgarform tónleika, kvöldið verður keyrt snarpt og stundvíslega og kaffi og kökur verða á boðstólum.

 

Segir Arnar Eggert: "Það sem við erum að reyna með þessu, eitthvað sem ég hef persónulegan metnað fyrir, er að búa til tónleikaröð sem snýst um tónleika, eins barnalega og það hljómar. Tónleikarnir verða á þriðjudögum og verða keyrðir snarpt, frá 20.00 til 22.00 þannig að þetta á að vera eitthvað fyrir sælkerann, að hann geti komið í upphafi viku, og NOTIÐ tónlistarinnar, án þess að eyða 5-6 tímum af dýrmætum helgartíma í það. Ég þarf þá varla að taka það fram að eina hugvíkkandi efnið sem verður liðið þarna er kaffið - og kökurnar!"

 

 Arnar Eggert Thoroddsen, blaðamaður

 

Þriðjudaginn 28. febrúar - Edrúhöllin Efstaleiti

Sólstafir

 

Hús opnar 20.00.

Tónleikar hefjast 20.30.

Tónleikum lýkur fyrir 22.00.

500 kr. inn

 

Kaffi og kökur í massavís fyrir tónleikahungraða sem -þyrsta!

 

*Nánari upplýsingar veitir Arnar Eggert í síma 822-7170.*

 

Enn meiri upplýsingar! (viðtal birt í SÁÁ blaði snemmhausts):

Rokkað eins og enginn sé morgundagurinn í Efstaleiti!

 

Vikulegir tónleikar alla þriðjudaga

"Í Efstaleiti 7 er að finna göngudeild SÁÁ í glæsilegu 1500 fm húsi sem hýsir auk göngudeildarinnar, skrifstofur samtakanna, rannsóknarstarf og forvarnadeild. Þar er og að finna forláta sal sem verður nýttur í haust undir bullandi sveitta rokktónleika.

"Hann Gunnar Smári kom að máli við mig í sumar og bað mig um að stýra þessari röð," segir Arnar Eggert Thoroddsen, framkvæmdastjóri tónleikaraðarinnar. "Við sammæltumst strax um að herja á grasrótina, draga upp það ferskasta og merkilegasta í íslenskri tónlist í dag, en auk þess langaði mig til að draga þarna sigldar merkissveitir og bjóða upp á eitthvað sérstakt, eins og t.a.m. rokkabillýtónleika, endurspegla þá smáu en mjög svo öflugu senu (hlær).

 

Það er annars stórkostlegt að geta opnað þetta með tónleikum Benna Hemm Hemm og Prins Póló. Benni er í algerum sérflokki, sýn hans á það hvernig á að gera popptónlist er einstök og hann hefur þá lítið spilað hér heima undanfarið, hefur verið búsettur í Skotlandi um árabil. Prins Póló hefur þá aflað sér orðs sem ein allra skemmtilegasta tónleikasveit landsins, en uppákomur sveitarinnar eru algerlega óútreiknanlegar. Það er því vel við hæfi að byrja þessa röð með þessum fallbyssum.

 

Hljómburðurinn í salnum er frábær og mun gera vel við Benna, prinsinn og áhorfendur veit ég. Þann 27. september munu Agent Fresco síðan spila , sem er hiklaust frambærilegasta rokkband landsins í dag og ein öflugasta tónleikasveit sem ég hef séð. Seinna í haust munu svo sigurvegarar Músíktilrauna, Samaris, troða upp og einnig Lára og víkingarokkararnir vinsælu í Skálmöld.

Þeir Mugison og Jónas Sig. munu síðan verða með sérstaka uppákomu í sameiningu þegar líður á haustið, sérstaklega vegna þessarar tónleikaraðar. Fleiri listamenn eru þá heitir fyrir framtakinu og ég er að bóka næstu vikur í þessum töluðu orðum. "

 

Arnar segir að heiti tónleikaraðarinnar sé kerknislegur útúrsnúningur á vel þekktu slagorði innan rokkheima, en það sé ekki alls kostar innantómt.

 

"Það verður nefnilega nóg af kaffi þarna og alltaf heit kaka beint úr ofninum sem fólk getur gætt sér á, sér að kostnaðarlausu. Og ég get lofað fleiri og nokk furðulegri uppátækjum. Við vildum bara snúa aðeins upp á þetta staðlaða tónleikaform. Þá verður alltaf sami prís á tónleikana, 500 kr, sama hver er að spila. Það sem við erum að reyna með þessu, eitthvað sem ég hef persónulegan metnað fyrir, er að búa til tónleikaröð sem snýst um tónleika, eins barnalega og það hljómar.

 

Tónleikarnir verða á þriðjudögum og verða keyrðir snarpt, frá 20.00 til 22.00 þannig að þetta á að vera eitthvað fyrir sælkerann, að hann geti komið í upphafi viku, og NOTIÐ tónlistarinnar, án þess að eyða

5-6 tímum af dýrmætum helgartíma í það. Ég þarf þá varla að taka það fram að eina hugvíkkandi efnið sem verður liðið þarna er kaffið - og kökurnar!"

Hús opnar 20.00.

Tónleikar hefjast 20.30.

Tónleikum lýkur fyrir 22.00.

500 kr. inn

Sjá nánar á www.saa.is

 

 

 

 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...