Styrktarsjóður

Tilgangur Styrktarsjóðs SÁÁ er að styrkja fátæka alkóhólista til þess að greiða sinn hluta í áfengis- og vímuefnameðferð.

Könnun

Ætti SÁÁ að opna sérstakt fjölskyldu- og barnahús?
 

 

Kjarnakonur á Akureyri

 

Kjarnakonur SÁÁ Akureyri eru hópur kvenna sem eru óvirkir alkóhólistar og aðstandendur alkóhólista sem og konur sem hafa áhuga á þessu málefni. Kjarnakonur hittast mánaðarlega, á þriðjudögum í Göngudeild SÁÁ, Hofsbót 4, kl. 21:00 – 22:00.

 

Megin tilgangur með starfinu er að styðja við konur sem vilja fræðast um sjúkdóminn alkahólisma og áhrif hans á fjölskylduna. Áhersla er lögð á að efla umræðu og vinna gegn fordómum með því að fræðast um alkahólisma og ljá sjúkdómnum andlit. Sérstök áhersla er lögð á bataleiðir. Skiptast konur á að deila reynslu sinni af því hvernig þær hafa náð bata frá alkahólisma eða meðvirkni og hvernig þær viðhalda batanum. Kjarnakonur bjóða til sín gestum í hvert skipti sem þær hittast. 

 

Slagorð okkar er:

VIÐ STYÐJUM KONUR GEGN ÁFENGIS OG VÍMUEFNAVANDANUM. VIÐ ÞORUM, VIÐ VILJUM OG VIÐ FRAMKVÆMUM. 

 

Dagskrá Kjarnakvenna SÁÁ Akureyri verður kynnt í atburðadagatali vefsins með góðum fyrirvara en nánari upplýsingar um Kjarnakonur gefur Anna Hildur í síma 824 7660 eða annahildur@saa.is

 

Á vef SÁÁ er hægt að lesa dagbók Kjarnakvenna á Akureyri og skoða myndaalbúm Kjarnakvenna.

 

 

 

 

 

Cage-spurningalistinn samanstendur aðeins af fjórum spurningum - með því að svara þeim samviskusamlega ættir þú að fá nokkuð nákvæma tilsögn um hvort hvort áfengisneysla þín eða einhvers sem þú þekkir er eðlileg.
Spjallið
S
M
Þ
M
F
F
L
28
1
2
3
4
5
6

7
8
9
13

14
20

21
27

28
1
2
3

4
5
6
7
8
9
10

Fyrri mánuður
mars 2010
Næsti mánuður
Einn dagur í einu í AL-ANON
Þessi bók leggur til að við lifum einn dag í einu..

Minningarkort er einföld en áhrifarík leið til að sýna samúð í verki þegar orða er vant.