KJARNAKONUR SÁÁ 2003

Alveg frá upphafi hefur ríkt góð og sterk samstað innan hópsins. Við höfum lagt metnað okkar í að taka vel á móti nýjum konum. Með því að byrja hvern fund á því að spyrja hvort nýjar konur séu í hópnum og þá fá þær fyrst orðið, kynna sig og segja okkur hvernig þær fréttu af kjarnakonum. Við tökum þær strax inn í hópinn og á næsta fundi hvetjum við þær til að kynna sig sem kjarnakonur. Við erum ánægðar með nafnið á hópnum það passar okkur einhvernvegin svo vel. Vísar til þess sem sameinar okkur allar hvort sem við erum alkóhólistar eða ekki. Að vera svona saman, alkóhólistar, dætur, makar og vinkonur hefur virkað mjög vel. Lærum af reynslu hvor annarar og skiljum vonandi betur hinar mörgu hliðar sjúkdómsins alkóhólisma. Hlutfall alkóhólista og aðstandenda er oftast nokkuð jafnt. Og oft á tíðum eru það aðstandendur sem eru í hvað mestri þörf á að tjá sig.
Árið 2003 hefur verið einstaklega fjölbreytt og skemmtilegt hjá okkur. Við hittumst vikulega á miðvikudagskvöldum kl 20-21:30 í Ármúla 18. Eftirfarandi er samantekt á því helsta sem fram hefur farið.

Í janúar mættu alls 112 konur á 3 fundi. Almenn umræða á tveim fundum og einn fræðslufundur þar sem Þórarinn Tyrfingsson læknir fjallaði um þunglyndi. Þarft umræðuefni í skammdeginu en trú okkar er sú að það er margt hægt að gera til að sporna við og létta sér lífið. Að vera edrú virkar vel gegn þunglyndi.
Í febrúar mættu alls106 konur. Þóra Björnsdóttir hjúkrunar-fræðingur var með fræðsluerindi um lífsgleði og tvær konur sögðu sögu sína önnur sem aðstandendi og hin sem alkóhólisti.
Í mars mættu 115 konur. Halldóra Jónasdóttir ráðgjafi var með fyrirlestur um sameiginlegan bata alkóhólistans og aðstandendans. Og konur sögðu sína batasögu bæði aðstandendur og alkóhólistar.
Í apríl mættu 129 konur. Þá vorum við með afmælisfund fögnuðum 2 ára samveru með flottri afmælisköku og tilheyrandi glensi.En fyrsti vikulegi fundurinn var haldin 3 apríl 2002. Áður höfðum við fundað hálfsmánaðarlega í hádeginu á Vogi frá því haustið 2001.
Í maí mættu 104 konur. Þá tókum við þátt í álfasölu og höfðum frjálsar umræður. Tvær kjarnakonur mættu í viðtal á rás 2 í útvarpinu.
Í júní mættu 69 konur. Þá voru frjálsa umræður og viðtal við kjarnakonur í Séð og Heyrt.
Í júlí mættu 48 konur. Þá voru frjálsar umræður.

Í ágúst mættu 37 konur. Áfram frjálsar umræður. Kjarnakonur færa þeim konum sem eru að útskrifast úr kvennameðferð bók að gjöf og bjóða þeim að taka virkan þátt í starfinu. Það er alltaf hátíðlegt og áhrifaríkt að vera við útskrift. Þær konur sem eru í kvennameðferð hafa verið mjög duglegar að mæta á fundi hjá kjarnakonum. Vöxtur okkar byggir mikið á því að kvennameðferðarkonurnar séu duglegar að mæta. Það er svo gott að fá þær í hópinn, þær eru svo virkar og öflugar meðan þær eru í meðferðinni og smita okkur hinar af jákvæðni sinni.
Í september mættu 101 kona. Valgerður Rúnarsdóttir læknir var með fyrirlestur um félagslega endurhæfingu kvenna eftir áfengismeðferð. Og konur sögðu frá sinni endurhæfingu. Sumar hafa verið edrú í yfir 20 ár aðrar eru að hefja sína edrúgöngu.
Í október mættu 180 konur. Hlín Agnarsdóttir rithöfundur kom og las upp úr nýrri bók sem hún var að gefa út þar sem hún segir frá ástarsambandi sínu við alkóhólista. Aldrei fyrr höfðu mætt eins margar á fund og þá eða 93 enda urðu konur að sitja upp á borðum og á gólfinu.

Í nóvember kom Vilborg Davíðsdóttir ritstýra Al-anon vefsins í heimsókn. Og Helga Braga leikkona var með uppistand. Við tókum á leigu sal til að getað boðið öllum sæti. Helga Braga fór á kostum og við áttum skemmtilega kvöldstund saman.
Í desember hafa mætt 58 konur á tvo fundi Hjördís blómakona var með sýnikennslu í jólaskreytingum og við buðum upp á piparkökur og mandarínur. Séra Anna S. Pálsdóttir var með jólahugvekju og Lára Rúnarsdóttir söngkona söng nokkur falleg lög. Á síðasta fundi ársins las Linda Vilhjálmsdóttir rithöfundur upp úr bók sinn Lygasaga.
Kjarnakonur haf líka verið að hittast í hádeginu á Vogi einu sinni í mánuði og hafa þá boðið til sín góðum gestum. Það er liður í því að kynna starfsemi SÁÁ fyrir stjórnmálakonum og heilbrigðisstarfsfólki. Eftirfarandi er yfirlit yfir það helsta:
Í janúar gáfu kjarnakonur sjálfvirkan blóðþrýstimæli á Vog sem hefur komið að góðum notum. Einar Axelsson læknir á Vogi var með fyrirlestur um verki og kynnt nálarstungumeðferð 19 konur mættu.

Í febrúar komu þingkonurnar Katrín Fjelsted og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir í heimsókn. Þórarinn Tyrfingsson var með kynningu á starfi SÁÁ og góðar umræður á eftir 25 konur mættu.
Í mars komu þingkonurnar Rannveig Guðmundsdóttir og Guðrún Ögmundsdóttir í heimsókn og fengu kynningu á starfseminni 26 konur mættu. Landlæknir Sigurður Guðmundsson heimsótti okkur í mars og hlustaði á kynningu á starfsemi SÁÁ 20 konur mættu á fundinn.
Í apríl kom bæjastjóri Garðabæjar Ásdís Halla Bragadóttir í heimsókn 14 konur mættu á fundinn.
Langt hlé varð á hádegisfundunum og hittumst við ekki fyrr en í október en þá komu þingkonan Þuríður Bachman og Kristín Halldórsdóttir frá vinstri grænum í heimsókn 21 kona mætti á fundinn. Léttar og líflegar umræður.

Í nóvember komu hjúkrunarfræðingar og annað starfsfólk Heilsugæslunnar í Lágmúla í heimsókn 24 konur voru á fundinum. Gagnlegt og gott að hitta heilbrigðisstarfsfólk því enn skortir mikið á að viðeigandi fræðsla sé í boði fyrir það. Hin víðtæka starfsemi SÁÁ þarf að vera heilbrigðisstarfsfólki kunn svo það geti vísað skjólstæðingum sínum sem eiga við áfengis-og vímuefnavanda á réttan stað.
Þessar heimsóknir hafa allar verið mjög ánægjulegar og vonandi árangursríkar í þá átt að minnka fordóma og efla samstarf. Á nýju ári bíða okkar enn frekari verkefni. Kjarnakonur munu áfram sem hingað til leggja sitt af til þess að viðhalda umræðunni um sjúkdóminn alkóhólisma og eru tilbúnar til að styðja við starfsemi SÁÁ eins og þeim er unnt.
Fyrir hönd stýrihóps kjarnakvenna
Þóra Björnsdóttir