SÁÁ

Dagbók kjarnakvenna 2004

Yfirlit yfir starfsemi Kjarnakvenna 2004 (word skjal)

 

 

29. desember

mættu 4 konur á fyrsta fund Kjarnakvenna sem haldin var á Vogi

 

22. desember

mættu 12 konur á síðasta fund okkar í Ármúlanum.

 

15. desember

20 konur mættu á fund. Lesin var jólasaga og bleik batakúla gefin til áminningar um hvað það er gott að vera ódrukkin og í jafnvægi um jól og áramót

 

 

7. desember

Á jólafund Kjarnakvenna mættu 34. Séra Jóna Hrönn Bolladóttir var með upplífgandi spjall um konur ásamt því að ræða almennt um jólaundirbúninginn. Hún hvatti okkur til að staldra við og

njóta tímans sem nú fer í hönd. Ólöf Jakobsdóttir söng 3 jólalög við gitarundirleik

 

föður síns Jakobs Magnússonar. Konur spjölluðu saman við hlaðborð af piparkökum og konfekti.

 

1. desember

 

Jóhanna Kristjónsdóttir rithöfundur las upp úr nýútkominni bók sinni Arabíukonur. 19 konur mættu og hlustuð á skemmtilega og athyglisverða lesningu um raunveruleika múslimskra kjarnakvenna í Jemen. Góðar umræður á eftir. Næsta miðvikudag mun sera Jóna Hrönn Bolladóttir mæta og tala um jólahald.

 

25. nóvember

Hádegisfundur á Vogi. Margrét Frímannsdóttir var gestur Kjarnakvenna. Valgerður Rúnarsdóttir kynnti starfsemi SÁÁ. Góðar umræður um stöðu mála á eftir 28 konur mættu.

 

24. nóvember

Miðvikudagskvöldið 24. nóvember var jólastemming hjá Kjarnakonum. Ólöf Jakobsdóttir söng nokkur ljúf lög við undirleik Árna J gítarleikara. Hjördís sýndi okkur hvernig við getum búið til fallegar jólaskreytingar án mikils tilkostnaðar. Piparkökur og mandarínur í boði. 30 konur mættu.

 

17. nóvember

Hjalti Björnsson dagsskrárstjóri á Vogi var gestur Kjarnakvenna.Hann kynnti unglingameðferðina á Vogi og félagsstarfið ungt fólk í SÁÁ og U- hópinn. Góður rómur var gerður af kynningu Hjalta og tókst honum að hrífa konur með sér þegar hann fjallaði af innlifun um reynslu sína af því að starfa með ungu fólki. 23 konur voru á fundinum.

 

10. nóvember

34 konur mættu á fund hjá Kjarnakonum SÁÁ. Guðrún Einarsdóttir hjúkrunarfræðingur var gestur fundarins. Hún sagði sína sögu og greindi á opin og einlægan hátt hvernig hún vinnur með sína meðvirkni.Góðar og gagnlegar umræður á eftir m.a um svefn og þunglyndi og ábyrð okkar á að leita okkur aðstoðar ef vanlíðan sækir á okkur.

 

27. október

28 konur mættu á fund Kjarnakvenna.

Aðstandendi sem hefur unnið í prógraminu í mörg ár leiddi fundinn og skýrði frá líðan sinni þegar alkóhólistinn er ný komin heim úr meðferð. Áhugi og einhugur hjá konum um að nóg sé komið af volæði og hörmungum. Nú sé rétti tíminn til að gleðjast og fagna.

 

27. október

Fundur hjá stýrihópi kjarnakvenna.

Mættar voru Vallý, Lilja, Íris, Hjördís, Lára og Þóra. Ræddum starfið almennt og ákváðum að bæta okkur í móttöku nýrra kvenna sem og þeirra sem koma alltaf. Þannig að ein kona standi frammi við hurðina og heilsi öllum konum og bjóði þær velkomnar.

Affhending gjafa við útskrift úr kvennameðferð gengur vel. Konur eru ánægðar með að mæta þar.

Ræddum um mikilvægi þess að halda tímaáætlun, e.t.v er gott að gefa orðið laust 15 mín. áður en fundurinn á að vera búinn.

Fyrirhuguð Vestmannaeyjaferð kynnt. Áætlað er að fara 6 nóvember í tengslum við kynningafund sem SÁÁ mun halda þar.

Áfram góður hugur í stýrihópnum um að hlúa vel að starfinu

 

20. október

24 konur héldu áfram að tala um áhugamál sín. Þóra sagði stuttlega frá ráðstefnu sem hún fór á til San Diego þar sem verið var m.a. að tala um fordóma og gildi þess að einstaklingar tali um það opinberlega að þeir sé alkahólista.

 

13. október

25 áhugasamar konur mættu og ræddu saman um áhugamál sín. Gaman var að heyra konur lýsa sínum áhugamálum og gildi þess að sinna þeim í "edrúmennskunni"

 

6. október - afmælisfundur í Háskólabíó

Íris Kjarnakona var fulltrúi okkar á fundinum. Hún greindi frá sinni reynslu af því að starfa með Kjarnakonum. Kjarnakonur dreifðu kynningarspjöldum til fundargesta og buðu öllum áhugasömum konum að mæta á fund.

 

30. september - Umhverfisráðherra með Kjarnakonum

Kjarnakonur buðu til sín nýjum umhverfismálaráðherra Sigríði Önnu Þórðardóttur.  Þórarinn Tyrfingsson læknir kynnti starfsemi SÁÁ og lýsti þróun mála síðustu ár. Hann lagði áherslu á að samtökin þyrftu á því að halda að til væri hópur eins og Kjarnakonur og einnig að stuðningur og skilningur á starfseminni þyrfti að koma bæði frá ríkinu og sveitafélögum landsins.  Sigríður Anna lýsti ánægju sinni með gott boð og óskaði okkur velfarnaðar.

 
29. september ..
.. hélt Dunna (Guðrún Þóra Hafliðadóttir) ráðgjafi fyrirlestur um sjálfsvirðingu.Góð mæting á fundinn 39 áhugasamar konur mættu og létu vel af fyrirlestrinum. Kjarnakonur eru staðráðnar í því að halda áfram að vinna að sínum bata m.a með því að passa vel upp á sjálfsvirðingu sína. Mikill áhugi var á að mæta á afmælisfund SÁÁ n.k. miðvikudag þar sem Íris kjarnakona mun tala fyrir okkar hönd. Síðan ætla Kjarnakonur að fjölmenna á árshátið SÁÁ á Hótel Sögu  8. október.

 

Gjöf afhent

Kjarnakonur SÁÁ færðu sjúkrahúsinu Vogi nýjan hjólastól að gjöf.  Á hverju ári gefa Kjarnakonur Vogi tæki sem nýtast áfengis-og vímuefnasjúklingum vel á meðan þeir dvelja á Vogi.  María Loftsdóttir sjúkraliði og Hanna Vigdís Jóhannesdóttir tóku við hjólastólnum. Kjarnakonurnr Lára, Lilja og Íris afhentu hjólastólinn fyrir hönd Kjarnakvenna.

 

22. september
Góður rómur var gerður af erindi Guðbjargar. Hún lýsti vel hvernig hún þurfti að breyta hugsun - viðhorfum og hegðun til að vera edrú einn dag í einu. Konur mættu vel, vorum 39 þar af 5 að koma í fyrsta sinn. Áfram munum við styrkja okkur næsta miðvikudag en þá ætlar Dunna ráðgjafi halda áfram að fjalla um leiðir til að láta sér líða vel.

 

15. september
Dóra ráðgjafi í Síðumúlanum var með gott innlegg um sjálfsstyrkingu. Hún tengdi sjálsstyrkingu við bataferlið og lagði inn hjá okkur margar góðar hugmyndir, sem við munum svo halda áfram að ræða á næstu fundum í september. Guðbjörg kjarnakona mun á næsta fundi 22 september segja okkur  hvernig hún vinnur í því að styrkja sína sjálfsvirðingu. 28 konur mættu og fengu gott veganesti með sér heim

 

8. september
Vetrarstarf Kjarnakvenna kynnt. Stýrihópurinn greindi frá því helsta sem framundan er.

 

  1. Ætlum að hittast einu sinni í mánuði í hádeginu á Vogi.
  2. Hver mánuðir verður tileinkaður einhverju ákveðnu þema. Núna í september er það sjálfstyrking. 
  3. Afmælisfundur SÁÁ 6 október og árshátíð 8. okt., svo október verður tileinkaður félagslífi.

 

Góð eining og samstaða um að efla starfið ríkti á fundinum 31 kona mætti.

 

6. september

Fundargerð stýrihóps Kjarnakvenna (WORD skjal)

 

1. september
Gestir fundarins voru Edda Björgvinsdóttir og Bjargey Aðalsteinsdóttir. Þær kynntu sjálfstyrkinga-ferðir sem þær eru með til Spánar. 36 konur mættu.

 

25. ágúst
Líflegur fundur þar sem 34 konur hlustuð á frásögn konu sem hefur reynslu af margra ára edrúmennsku.

 

18. ágúst
Ein úr hópnum sem náð hefur jafnvægi í sínu lífi eftir erfitt sjúkdómsstríð við tvo sjúkdóma leiddi fundinn. Áhrifarik frásögn, sem sýnir að batinn er til staðar þegar honum er vel sinnt. 23 konur mættu á fundinn

 

11. ágúst
Fundarsókn hefur verið sérlega góð í sumar 18 konur mættu og héldu áfram að efla sig félagslega.

 

4. ágúst
Konur hafa verið að hittast kl. 18:15 og ganga saman og farið á veitingahús fyrir fundi. Vinátta og samhugur ríkir í hópnum. Eftir fundi hittast konur á kaffihúsi og hlæja og kynnast enn frekar. Allar konur velkomnar. Frjálsar umræður voru á fundinum 23 konur mættu.

 

28. júlí
Aðstandendi alkóhólista, (dóttir og móðir ungs alkóhólista) sagði frá sínum bata eftir að hún fór að vinna á sinni meðvirkni. Lýsti góðri líðan sem næst þegar unnið er jafnt og þétt í því að láta sér líða vel. Batinn kemur ekki af sjálfu sér, hvorki hjá alkóhólistanum né aðstanendanum. Áfram góð mæting 24 konur.

 

22. júlí
Kvennameðferð SÁÁ hefur skilað mörgum konum nýju lífi. Ein þeirra sagði frá þeim breytingum sem hafa orðið á hennar líðan síðan hún fór í kvennameðferð fyrir nokkrum árum. Góð mæting var á fundinum 27 konur.

 

14. júlí

Góð mæting á fundinn, 24 konur stilltu saman strengi undir styrkri stjórn einnar sem hefur náð 6 mánaða edrú tíma. Á næsta fundi ætla 2 konur að segja frá hvernig þeim gengur í sinni kvennameðferð.

 

7. júlí

Góð mæting á fundinn, mættu 24 konur og ein frá Kjarnakonum á Akureyri. Gaman að fá gest að norðan. Kvennagrúbbukona leiddi fundinn og sagði frá hvernig hún notar þær leiðbeiningar sem hún fær í meðferðinni einn dag í einu til að láta sér líða vel. Konur í kvennameðferð munu stjórna fundunum í júlí.

 

30. júní

30. júní mættu 30 konur á fund hjá Kjarnakonum SÁÁ. Kona sem er í kvennameðferð leiddi fundinn. Hún sagði frá á líflegan og skemmtilegan hátt hvernig hún notar þær aðferðir sem kenndar í meðferð til að lifa einn dag í einu í jafnvægi. Hún sagði frá dagsáætlun og heilbrigðum lífsháttum. Áfram góð sumarstemming í hópnum. Í júlí munu kvennameðferðarkonur stýra fundunum því göngudeildin í Síðumúlanum er í sumarfríi til 3. ágúst. Allar konur velkomnar á fundi, aðstandendur og alkóhólistar.

 

23. júní

Fundur Kjarnakvenna 23 júní var vel sóttur.

Nokkrar nýjar konur mættu, sem voru að ljúka meðferð á Vik. Frábært að fá nýjar konur inn í hópinn. Kjarnakonur vilja taka vel á móti öllum nýjum konum. Aðstandendur alkóhólista, makar eða mæður mæta líka og gengur vel að tilheyra hópnum. Sumarstarfið mun verða óbreytt, frjálsar umræður og hvatning. Skipulagning á fræðslu mun hefjast eftir sumarfrí. Góð samstaða og vilji til að halda ótrauðar áfram ríkti á fundinum.

 

16. júní

16. júní mættu 26 áhugasamar Kjarnakonur á fund. Fundinn leiddi ein af þeim konum sem hefur verið með frá upphafi. Konur deildu reynslu sinn af því að lifa "venjulegu lífi" án áfengis eða lyfja. Mörgum var tíðrætt um það hvað þær væri gott að vera edrú amma.

 

9. júní

Miðvikudaginn 9 júní mættu 19 konur á fund Kjarnakvenna. Tvær kjarnakonur sem fóru í heimsókn til Akureyrar sögðu frá ferðinni. Þær voru mjög ánægðar með að hitta 17 hressar kjarnakonur á Akureyri sem ætla að stofna hóp og hittast reglulega. Nánar um það síðar. Áfram áhugi á að halda fundi í sumar. Næsti fundur verður miðvikudaginn 16 júní kl. 20.

 

2. júní
Mættu 31 kona á fund. Kjarnakonur verða með kynningu á starfi sínu á fundi á Akureyri 3/6. Tvær konur fara norður. Almennar umræður um batann.

 

26. maí
Mætu 34 konur á fund. Almennar umræður. Góður hugur í konum og mikill vilji fyrir því aðhalda úti fundum í sumar. Kjarnakonur ætla ekki að loka í sumar.

 

19. maí
Mættu 21 kona á fund. Hjördís álfasölustýra gerði grein fyrir vel heppnaðri álfasölu. Kjarnakonur seldu 900 álfa.

 

12. maí
Mættu 28 konur á fund. Undirbúningur fyrir álfasölu. Kjarnakonur verða í Kringlunni með sölu og ætla að dreifa nýju bókamerki, sem ein kjarnakonan hannaði. Almennar umræður eftir að ein kjarnakona hafði sagt sína sögu, sem hófst með alan-on göngu áður en hún þróaði sinn alkóhólisma.

 

5. maí

Miðvikudaginn 5. maí mættu 30 konur á fund hjá Kjarnakonum SÁÁ. Skipulagnig fyrir álfasölu. Kjarnakonur ætla að vera í Kringlunni 13-15 maí og hafa gaman af því að bjóða fólki álfinn til styrktar ungum alkóhólistum og eiturlyfjafíklum. Við stefnum líka að því að kynna Kjarnakonur fyrir áhugasömum konum. Hjördís verður sölustýra okkar og geta konur haft samband við hana og skráð sig í söluna í sími 6928637 eða mæta bara í Kringluna og leysa hinar af.

 

30. apríl

Vorferð Kjarnakvenna SÁÁ í Skálholt 30 apríl - 2 maí.
Ferðin var ógleymanleg, vel skipulögð og skemmtileg. Þátttakan mjög góð 42 konur.
Á föstudagskvöldið var róleg stund, náttfatapartý með fótabaði, axlarnuddi, höfuð- og andlitsnuddi og andlitsmaska. Heilsudrykkir á borðum, engiferte og sítrónuvatn. Ljúf tónlist og söngur. Laugardagurinn leið fljótt, grúbbur, fundir, gönguferð og góður matur.
Kvöldvakan tókst vel, píanóleikur, gítarspil, söngur og gleði. Salsa dans, leikþáttur, gamansögur og brandarar ofl. og ofl. Góð eining og systralag ríkti.Á sunnudaginn heimsóttum við Skálholtskirkju fórum í messu og gönguferð. Það voru vel úthvíldar og ánægðar konur sem héldu heim á leið síðdegis á sunnudag ákveðnar að gera vorferðir að árlegum viðburði fyrir álfasölu.

 

28. apríl

Miðvikudaginn 28 apríl mættu 40 konur á fund hjá Kjarnakonum SÁÁ. Undirbúningur fyrir vorferð Kjarnakvenna SÁÁ gengur vel. Mikil áhugi og góð þáttaka. Ein úr hópnum sem er aðstandendi (dóttir alkóhólista) sagði sína batasögu. Sagði hún m.a. að hún hafi fengið nýja sýn á líðan sína eftir meðvirknifyrirlesturinn í janúar. Aðstandendur þurfa markvisst að vinna í sínum bata rétt eins og alkóhólistinn.

 

21. apríl

Miðvikudaginn 21 apríl mættu 24 konur á fund kjarnakvenna SÁÁ. Kvennameðferðarkona leiddi fundinn. Undirbúningur fyrir vorferðina heldur áfram.

 

14. apríl

Miðvikudaginn 14 apríl mættu 33 konur á fund hjá Kjarnakonum SÁÁ. Almennar umræður og upphitun fyrir vorferðina í Skálholt eftir hálfan mánuð. Í hverri viku fá 150 konur tölvupóst um hvað sé að gerast hjá Kjarnakonum.
Ein kona sem býr í Þýskalandi hefur mætt á fundi og hefur áhuga á að stofna sambærilegan hóp þar. Myndbandspóla með upptöku af þætti þar sem Kjarnakonur komu fyrst obinberlega fram gengur nú á milla kvenna. Umræður er um frekari kynningu.

 

31. mars

Afmælisfundur Kjarnakvenna SÁÁ tókst með afbrigðum vel. 60 konur fögnuðu 2 ára afmæli með söng og gleði. Ung söngkona Ólöf Jakobsdóttir söng 3 lög við góðar undirtektir. Glæsilegar  veitingar voru bornar fram og góð stemming ríkti.

 

24. mars

Miðvikudaginn 24 mars mættu 26 konur á fund hjá Kjarnakonum SÁÁ. Ein úr hópnum sagði sögu sína og almennar umræður á eftir. Góð stemming að venju.

 

17. mars
Þrjátíu kjarkaðar konur mættu og hlustuðu á Valgerði Rúnarsdóttur halda mjög hvetjandi fyrirlestur gegn reykingum. Hún útskýrði á einfaldan og skýran hátt hvernig fíknin býr um sig í heilanum. Góður rómur var gerður að þessari nauðsynlegu fræðslu. Næsti fundur verður 24. mars en þá verða opnar umræður og  2 ára afmælisfundur skipulagður.

 

10. mars

Miðvikudaginn 10. mars mættu 44 konur á fund Kjarnakvenna. Ein konan sagði frá langri laráttu sinni við sjúkdóminn alkóhólisma og hvernig batinn væri hjá henni í dag. Hún er ánægð með kvennameðferðina sem hún stundar í dag og sagðist gera allt sem henni væri ráðlagt, þannig næði hún að vera í bata. Næsta miðvikudag 17. mars ætlar Valgerður Rúnarsdóttir læknir á Vogi að vera með fyrirlestur um nikótín fíkn.

 

4. mars

Fundur Kjarnakvenna SÁÁ 4 mars tókst vel og var vel sóttur. Nokkrar nýjar konur koma alltaf á hvern fund, konur sem eru að koma úr eftirmeðferð og konur sem hafa haft það á dagskrá lengi að koma alls mættu 34 konur. Mikill áhug er á vorferð í Skálholt 30 apríl - 2 maí. Þar er ætlunin að þjappa hópnum enn frekar saman, kynnast og skemmta okkur. Þema helgarinnar verður konan ég.

 

 

25. febrúar

Góðar og gagnlegar umræður sköpuðust eftir fyrilestur sem Þóra Björnsdóttir hjúkrunarforstjóri hélt um konur og áfengissýki miðvikudaginn 25 febrúar. Góð mæting var á fundinn 49 konur mættu og tóku virkan þátt í umræðunni. Næsti fundur verður 3. mars þá mun Íris fjalla um vorferð í Skálholt sem farið verður í síðustu helgina í apríl.

 

18. febrúar

Góðar umræður voru á fundinum. 34 konur tóku þátt í að ræða um bata sinn frá áfengissýki og eða meðvirkni. Nokkrar nýjar konur mættu. Kjarnakonur ætla að halda upp á 2 ára afmæli sitt í næsta mánuði. Á næsta fundi ætlar Þóra Björnsdóttir hjúkrunarforstjóri Vogs að fjalla um konur og áfengissýki.

 

11. febrúar

Miðvikudaginn 11. febrúar mættu 45 konur á fyrirlestur um sameiginlegan bata alkóhólista og aðstandenda sem Halldóra Jónasdóttir ráðgjafi flutti. Athygli vakti hvað bataferlið er líkt hjá báðum. Mikill áhugi er hjá hópnum að tala áfram um hvað konur eru að gera í sínum bata, hvernig þeim gengur að fylgja eftir bataáætlun sinni. Næsta miðvikudag mun ein Kjarnakona sem fór í kvennameðferð segja sína batasögu.

 

4. febrúar
Miðvikudaginn 4 febrúar mættu 36 konur á fund hjá Kjarnakonum. Fyrir fundinn hittist stýrihópurinn og var að skipuleggja starfið fram á vor. (11 konur mættu) Það sem um var rætt: Tveggja ára afmæli Kjarnakvenna er framundan við munum halda afmælisfund 31. mars. Álfasala SÁÁ fer fram í lok maí og ætla Kjarnakonur að láta til sín taka þá að vanda. Form fundanna var rætt og ákveðið að útbúa ramma til að styðjast við til að auðvelda konum að stjórna fundum. Mikilvægi trúnaðar var rætt. Fundurinn var mjög léttur og skemmtilegur umræðan snérist um það frelsi sem konur skynja þegar þær fara í meðferð og verða frjálsar frá áfengi og pillum. Aðstandendur lýstu líka sínu frelsi sem fæst við það að leita sér aðstoðar hjá ráðgjafa fara á fjölskyldunámskeið og taka þátt í Al-anon. Gaman var að heyra í nýjum konum sem eru rétt komnar úr meðferð. Góð stemming ríkti á fundinum.

 

28. janúar
Á fundi Kjarnakvenna 28. jan. mættu 33 konur og tóku þátt í umræðu um batann frá meðvirkni. Kjarnakona sem er óvirkur alkóhólisti og móðir óvirkra fíkla sagði sína batasögu. Hvernig hún hefur með hjálp AA og Al-anon samtakanna tekist að bæta sína líðan og auka jafnvægi sitt einn dag í einu. Í febrúar munu Kjarnakonur beina athyglinni að því frelsi sem fylgir því að fara í meðferð og ná bata.

 

21. janúar
Fundur Kjarnakvenna 21. janúar sl. tókst með afbrigðum vel. Metaðsókn var, en 103 konur mættu til að hlusta á fyrirlestur um meðvirkni þar sem Þórarin Tyrfingsson fór á kostum . Konurnar sátu á gólfinu, upp á borðum og stóðu, því húsnæðið var engan veginn nógu stórt. Kjarnakonur munu hugsa til þess að fá stærra húsnæði næst þegar von er á góðum gesti.

14. janúar
Fundurinn 14. janúar var vel sóttur. 29 konur mættu og treystu bönd vináttu og samstöðu. Ein konan sagði frá nýlokinni vikudvöl á Vík. Hún lýsti vel áhrifum þess að taka batagöngu sína til endurskoðunar. Hún var mjög ánægð með dvölina á Vík og hvatti konur til að muna eftir því að hægt er að umbuna sér með því að sækja um vikudvöl á Vík. Aðstandendur alkóhólista sögðust gjarnan vilja getað átt þann möguleika að sækja um vikudvöl. Fundurinn var kröftugur að vanda og ábyrgar umræður áttu sér stað um áhrif meðvirkniástands á líðan okkar. Tilhlökkun ríkir fyrir næsta fundi en þá eigum við von á Þórarni Tyrfingssyni með fyrirlestur um meðvirkni.

7. janúar
Fyrsti fundur Kjarnakvenna 2004 var vel sóttur en 25 konur mættu. Mikill áhugi á að efla starfið enn frekar á þessu afmælisári Vogs. Kjarnakonur hittast vikulega á miðvikudagskvöldum kl. 20:00-21:30 í húsakynnum SÁÁ, Ármúla 18. Allar konur eru velkomnar á fundi. Fundirnir eru haldnir til að fræðast um fjölskyldusjúkdóminn alkóhólisama. Til að vinna gegn fordómum, gera sjúkdóminn sýnilegan (ljá honum andlit) efla og styrkja konur félagslega. Fundirnir eru ýmist fræðslufundir eða opin umræða um hin ýmsu mál sem hvíla á konum. En umfram allt höfum við það skemmtilegt saman, hlæjum og hvertjum hvor aðra. Í janúar ætla Kjarnakonur að taka fyrir meðvirkni. Þórarinn Tyrfingsson læknir á Vogi mun halda fyrir lestur um meðvirkni 21. janúar í Ármúla 18 og aftur 29. janúar í hádeginu á Vogi.