SÁÁ

Kjarnakonur - dagbók 2005

 

28. desember mættu 25 konur til að eiga góða stund saman milli jóla og nýárs.

 

21. desember fengu Kjarnakonur séra Karl V. Matthíasson prest í heimsókn. 21 kona mætti á fundinn.

 

14. desember var jólafundur Kjarnakvenna séra Anna Pálsdóttir hélt jólahugvekju og Valborg  Sigurðardóttir kynnti nýútkomna bók sína Íslensk menntakona verður til. 31 kona mætti á fundinn

 

7. desember hélt  Hjödda blómaskreytinga-kjarnakona sýnikennslu á jólaskreytingum. Greni og slaufur léku  í höndunum á Hjöddu og ætlum við hinar að æfa okkur heima. 21 kona mætti á fundinn

 
30. nóvember mættu 33 konur og hlustuðu á Eddu Andrésdóttur lesa upp úr bók sínni um ævi séra Auðar Eir Vilhjálmsdóttur. Sólin kemur alltaf upp. Góðar og gagnlegar umræður á eftir yfir kaffi og piparkökum

 

23. nóvember mættu 21 kona og hlustuðu á Margréti geðhjúkrunarfræðing deila reynslu sinni af sínum bata.

 

16. nóvember mættu 25 konur og tóku þátt í   líflegum umræðum um gildi þess að halda dagsplan á hverjum degi. Sérstaklega núna þegar annir eru miklar.

 

9. nóvember mættu 22 konur og héldu áfram að stilla á “batarásina” sína.

 

2. nóvember mættu 22 konur þema nóvembermánaðar er bati/dagsplan. Sumar konur nota dagsplan með góðum árangri og minntu okkur á hvað það er gott sérstaklega þegar mikla annir eru í dögum okkar

 

26. október mættu 26 konur og studdu við batann sinn.

 

19. október mættu 26 konur og héldu áfram að deila reynslu sinn um hin ólíku áhugamál sem við eigum. Gaman að kynnast konum í gegnum áhugamál þeirra.

 

Kjarnakonur SÁÁ  /  Kjarnakonur verma Vestfirði !!!

Ein af stofnendum Kjarnakvenna Rósa flutti búferlum til Súðavíkur fyrir nokkru síðan og að hennar frumkvæði var ákveðið að stofna Kjarnakonur Vestfjarða. Ákveðið var að leggja land undir fót föstudaginn 14.október 2005. Brottför var frá sjúkrhúsinu á Vogi kl.13.00 og voru til taks tveir bílaleigubílar , 14 manna “fjallabíll “ og jeppi nokkuð voldugur !!! Í ferðina voru skráðar 20 konur. Á meðan við söfnuðumst saman í andyrinu á Vogi drukkum við kaffi ,borðuðum kleinur og vínarbrauð sem Fríða kjarnakona kom með, það var vel þegið því margar okkar voru í vinnu til hádegis og var því ljúft að fá smá hressingu áður en haldið var af stað. Alma forfallaðist og komst ekki með í ferðina,en kom til að kveðja okkur og færði okkur 20 rósir til að afhenda á stofnfundi Kjarnakvenna á Vestfjörðum.

 

Þegar  20 konur höfðu raðað sér í bílana var lagt af stað. Keyrt var mjúkt og kvennlega sem leið lá í Borganes, Þóra hjúkrunarfræðingur og kjarnakona keyrði jeppann en Árdís litla fínlega með meiraprófið keyrði “fjallabílinn” !! Þegar lagt var af stað úr Borganesi fór fjallabíllinn eitthvað að sýna

óeðlilega hegðun og rásaði á veginum, svo mikið ...að jafnvel Kjarnakonum þótti nóg um !!!!!  Og slógu nú merarhjörtun hratt.... ekki var laust við ótta í augum þeirra! En Kjarnakonur hafa lært að taka ábyrgt á málum og tjáðu sig nú kröftuglega um það hvað gera skildi !!!!!! En þar sem kjarnakonur eru bæði úr hópi alkóhólista og aðstandenda.....segir sig auðvitað sjálft að þegar allar leita lausnarinnar saman...leysast málin !!!  En einhverja meðferð þarf það er nokkuð ljóst !!!  Við fengum hana !!!!  Eins og send frá himnum....Kata kjarnakona og hennar maður Birgir voru á leið til Hólmavíkur og urðu á vegi okkar !!! Birgir leysti málið........drifið var læst !!! maður kemst ekki langt ef allt er læst !!!

 

Eftir “meðferð” lék fjallabíllinn á alls oddi og kjarnakonur tóku ró sína og sungu af gleði !!!!  Vissulega drógst ferðin svolítið á langinn, en bíllinn var kominn í lag og Árdís keyrði af öryggi fjörð eftir fjörð eftir fjörð .....þangað til við komum í Súðavík. Í Súðavík beið okkar íslensk kjötsúpa á heimili Rósu og Steina.....yndislegar móttökur sem engum komu á óvart sem þekkja Rósu. Þegar gleðin og fagnaðarfundurinn við heimamenn var að fara úr böndunum var tímabært að ganga til hvílu. Með mettann maga eftir dásamlega gestrisni var okkur vísað í “heila blokk” sem við fengum not af !!!!!! Þar biðu okkar uppbúin rúm !!! Er hægt að hugsa sér það betra !!! ÞAÐ ER HLÝTT Á VESTFJÖRÐUM !

 

Á laugardagsmorguninn vöknuðu kjarnakonurnar í “blokkinni” sælarog ánægðar . Ein hafði farið snemma út á svalir að blása reyk...kyrrðin var  algjör, hafið spegilslétt og selir að funda í fjöruborðinu !!!!  ógleymanleg sjón !!!!! Morgunverðarfundur  var með hlaðborði í boði Rósu og Steina.

Skipulag dagsins rætt !!!  Tilhlökkunin var mikil.....fyrst yrði Þórainn læknir með fyrirlestur um meðvirkni ,fundurinn opinn...síðan yrði körlum vísað út og stofnaðar yrðu Kjarnakonur Vestfjarða

 

 ...................................

Kjarnakonur voru mættar tímalega í safnaðarheimilið til að taka vel á móti fundargestum !!! Eitthvað fannst okkur það skrýtið að standaí dyrum Ísafjarðarkirkju og bjóða heimamenn velkomna í sitt eigið safnaðarheimili !! Á fundinum voru um 60 manns og hlýtur að teljast góð mæting í ca.3000 manna bæjarfélagi.

 

Rósa Ólafsdóttir kjarnakona setti fundinn, Hjördís kjarnakona sagði  nokkur orð á Vogi. Fyrirlesturinn um meðvirkni sem Þórarinn flutti var hreint frábær. Og erum við Kjarnakonur honum þakklátar fyrir hans framlag, því á “stefnuskrá” okkar er GAGN Í BLAND VIÐ GAMAN. Þegar Þórainn hafði lokið máli sínu gengu herrarnir af fundinum og eftir sátu  21 konur  ásamt okkur 20 að sunnan og eru það fleiri konur en við þorðum að vona. Vorum því 42 konur á stofnfundinum. Fundurinn var magnaður og greinilega allt rétt sem sagt er um orkuna á Vestfjörðum !! Við óskum Kjarnakonum á Vestfjörðum til hamingju. Og þar sem við erum nú á Akureyri, Vestfjörðum og Reykjavík hlýtur að verða sett í gang “landsmótsnefnd”  fljótlega !!!!  Einu sinni á ári verður landsmót kjarnakvenna væntanlega haldið !!!?????

 

Eftir frábæran fund fórum við aftur til Súðavíkur og borðuðum kvöldverð saman á bensínstöðinni, pöbbnum, matvöruversluninni! Já! á Súðavík er þetta einn og sami staðurinn !! Kjarnakonur ásamt   Steina hennar Rósu okkar og Þórarni. En það var aldeilis ekki endirinn á kvöldinu ....... eftir matinn var okkur öllum boðið enn og aftur á heimili Rósu og Steina í þvílíkt tertutrall að svona lagað sést ekki í minni sýslu nema einhver sé að skírast, fermast, giftast eða eiga stórafmæli !!!!   Í partýinu svaka stuð......fram eftir kvöldi var tjáningin mjög fjörug og brandarar fuku um stofuna.....elsta kjarnakonan okkar hún Edda fékk góð ráð hjá doktor Þórarni við sinadrætti !!! Að loknum frábærum degi sem seint gleymist fóru allir ánægðir að sofa. 

 

Í “blokkinni” vöknuðu 20 glaðar konur og héldu kjarnakonufundí Súðavík með heimakonunum Rósu, Laufey og Siggu. Frábær fundur þar sem svo sterkt kom fram samkenndin í hópnum þar sem kærleikurinn er allsráðandi !!!!  Sigga  kjarnakona á Súðavík er mikil listakona og fórum við nokkrar með málverk með okkur heim!!!!!  glaðar konur röðuðu sér í bílana og brunuðu af stað fjörð fyrir fjörð fyrir fjörð í átt til Reykjavíkur.

 

Kjarnakonur skiluðu sér til Reykjavíkur um kl 20.00 á sunnudagskvöld sælar og ánægðar eftir frábæra helgi sem allar myndu vilja endurtaka. LENGI LIFI KJARNAKONUR HÚRRA HÚRRA HÚRRA !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

 

12. október mættu 22 konur og undirbjuggu ferð vestur á Ísafjörð.

 

5. október mættu 26 konur á fund og ræddu um áhugamál sín. Gaman að heyra hvað konur eru áhugasamar um að prófa ólíka hluti sumar hafa áhuga á mótorhjóla akstri meðan aðrar stunda útivist og sund og allt þar á milli.

 

26. september mættu 18 konur og hlustuðu á frásögn konu sem er aðstandendi fíkils lýsa sinni batagöngu.

 

21. september mættu 20 konur og héldu áfram að ræða um sjálfsstyrkingu.

 

14. september mættu 17 konur og sögðu frá hvernig þær byggja upp sína sjálfsmynd. Kona sem er fullorðið barn alkahólista leiddi fundinn og lýsti á áhrifaríkan hátt hvernig hún hefur náð að styrkja sína sjálfsmynd.

 

7. september mættu 18 konur. Þema September er sjálfsstyrking.

 

31. ágúst mættu 19 konur og lögðu á ráðin um hvernig vetrarstarf Kjarnakvenna SÁÁ verður. Líflegar og skemmtilegar umræður.

 

24. ágúst mættu 18 konur og deildu reynslu sinn á því að vera í deginum í dag.

 

17. ágúst mættu 24 konur á fyrirlestur sem Þóra Björnsdóttir hjúkrunarforstjóri Vogs hélt um lífsgleði.

 

10. ágúst mættu 16 konur á fund. Nokkrar nýjar konur voru að mæta á sinn fyrsta fund og voru þær sérstaklega boðnar velkomnar.

 

3. ágúst mættu 14 konur á fund. Þema ágúst mánaðar er bati/gleði.

 

27. júlí mættu 14 konur á fund þrátt fyrir sól og blíðu gáfu þær sér tíma til að styðja hvor við aðra í batanum.

 

20. júlí mættu 10 konur á fund og héldu áfram að ræða þá list að lifa lífinu í jafnvægi og sátt við sjálfa sig og aðra.

 

13 júlí mættu 10 konur á fund og studdu hvor aðra í því að vera í jafnvægi.

 

6. júlí mættu 13 konur á fund og deildu reynslu sinni. Þema júlí mánaðar er bati/jafnvægi

 

29. júní mættu 14 konur á fund og hlustuðu á batasögu konu sem fór í kvennameðferð fyrir nokkrum árum. Hún lýsti á mjög áhrifaríkan hátt hvernig líf hennar hefur tekið algjörum stakkaskiptum. Í dag hefur hún lokið námi og er í skemmtilegu starfi á sjúkrahúsi og nýtur lífsins edrú einn dag í einu.

 

Miðvikudaginn 22. júni mættu 14 konur og deildu reynslu sinn af því hvernig ábyrðin er okkar á eigin vellíðan og bata.

 

Miðvikudaginn 15. júni mættu 16 konur og héldu áfram að tala um leiðir til að auka vellíðan með því að sinna sér vel líkamlega andlega og tilfinningalega. En þema júnimánaðar er bati-vellíðan

 

Miðvikudaginn 8. júni mættu 17 kjarnakonur á fund og stilltu saman batastrengina.

 

Miðvikudaginn 1. júní mættu 17 konur og hlýddu á ferðasögu þeirra sem fóru í vorferðina að Reykjum í Hrútafirði. Kjarnakonur ecru ákveðnar að halda úti fundum í sumar og hittast vikulega.

 

Kjarnakonur fóru að Reykjaskóla í Hrútafirði helgina 27-29 maí og voru 19 konur í ferðinni. Þessi helgi skildi mikið eftir en þema þessarar helgar var barnið í mér. Við vorum mjög ánægðar að fá konur víða að og þá sérstaklega konurnar frá Akureyri og náðum við mjög vel saman. Hér eru nokkrar myndir úr ferðinni og látum þær tala sínu máli.

 

Kjarnakonur tilbúnar í ferðalag

Náttfatapartý á föstudagskvöld

Fjöruganga í yndislegu veðri

Verið að njóta veður blíðunnar

Barnið í okkur látið njóta sín og við bjuggum okkur  til kórónur fyrir kvöldið

Glæsilegur hópur við kvöldverðaborðið

Kvöldvaka var á laugardagskvöldið og voru þar ýmsar uppákomur eins og þessi með sápukúlurnar

Konur komu víða að ,frá Reykjavík ,Akureyri,Keflavík og Súðavík.

 

Ég þakka fyrir frábæra helgi fyrir mig og gerði þetta mér gott. Kveðja  Íris Kristjánsdóttir

 

Miðvikudaginn 25. maí

mættu 19 konur og tóku þátt í umræðum um gildi þess að taka þátt í álfasölu og að fara saman í vorferðalag. Góð þátttaka er í vorferðalagið sem verður farið um helgina að Reykjum í Hrútafirði.

 

Álfasala Kjarnakvenna 19-21 maí í Kringlunni 

Salan hófst klukkan 16  fimmtudaginn 19 maí. Þá seldu 9 konur 180 álfa til klukkan 18. Á föstudeginum seldu 7 konur 350 álfa frá klukkan 10 til 19. Á laugardag seldu 12 konur 280 álfa frá klukkan 10 til 18. Markmiðið var að selja 1000 álfa en salan var rúmlega 800 álfar. Forföll urðu á mætingu á föstudeginum.

 

Kjarnakonur eru ánægðar meða að hafa tekið þátt  í álfasölunni og fannst það mjög lærdómsríkt að virða fyrir sér mannlífið í Kringlunni. SÁÁ á sér mikinn velvilja hjá almenningi það fundu við vel fyrir.

 

Að loknu góðu dagsverki buðu eigendur World Class Kjarnakonum í slökun í Baðstofuna í Laugum. Þangað fóru 10 kjarnakonur og áttu góða stund saman. Síðan var endað heima hjá einni í kvöldkaffi. Niðurstaðan er sú að það að taka þátt er gott fyrir sjálfvirðinguna og batann.

 

Miðvikudagur 11. maí

Undirbúningur fyrir Álfasölu er hafinn. Kjarnakonur munu vera áberandi í Kringlunni í ár eins og í fyrra og leggja sig fram við aða selja Álfinn. Vel gengur að fá konur til að taka þátt. 24 konur mættu á fundinn.

 

Miðvikudagur 4. maí

Þema maímánaðar er sjálfsvirðing. 13 konur tóku þátt í umræðu um hvernig þær hafa unnið að því að efla sjálfsvirðingu sín með því að vinna bataprógramið sitt. Að taka þátt í félagsstarfi Kjarnakvenna hefur hjálpa mörgum konum í að rjúfa einangrun og kynnast nýjum konum.

 

Miðvikudaginn 27. apríl

ræddu Kjarnakonur um “streituspjörun”. Aðstandandi alkóhólista leiddi umræðuna og greindi frá hvernig henni hefur tekist að beina athyglinni meira og meira að sér sjálfri í stað þess að vera með hugann stöðugt við alkahólistann sinn, hvort sem það er maki eða sonur. Gagnlega umræður, 13 konur mættu.

 

Miðvikudagur 20. apríl

20. apríl héldu Kjarnakonur upp á 3 ára afmæli sitt. Við fengum blóm frá Kjarnakonum á Akureyri og stjórn SÁÁ. Íris Kjarnakona söng nokkur lög við mjög góðar undirtektir. Glæsileg terta og snitur voru í boði og konur litu um öxl og framávið staðráðnar í því að halda áfram að byggja upp starf SÁÁ. Skoða myndir frá afmæli.

 

Miðvikudagur 13. apríl

Góð stemming á fundi Kjarnakvenna 13. apríl. 28 konur tóku þátt í fundinum.  Nokkrar konur voru að koma heim NÝJAR og BREYTTAR  frá Kanarýeyjum þar sem 20 Kjarnakonur voru á skemmtilegu námskeiði í sjálfsstyrkingu. Næsta miðvikudag höldum við upp á 3 ára afmæli Kjarnakvenna með “pomp og prakt”. Skoða myndasögu frá Kanarí.

 

Miðvikudagur 6. apríl

20 Kjarnakonur mættu og tóku þátt í umræðu um streitu – hvernig getum við stoppað streituviðbrögð okkar og lært að annast okkur þannig að streita nái ekki eins mikið tökum á okkur dags daglega. Á næsta fundi eigum við von á Kanarýförum en 20 Kjarnakonur eru þar á námskeiði. Gaman verður að heyra frá þeim.

 

Miðvikudagur 30. mars

30. mars mættu 10 konur á fund hjá Kjarnakonum. Nokkuð margar Kjarnakonur eru komnar til Kanarýeyjar og verða þar næsta hálfa mánuðinn. Lára sagði frá vel heppnaðri heimsókn til Kjarnakvenna á Akureyri. Góðar umræður voru á fundinum sem var samsettur af  6 konum sem hafa verið lengi og 4 konum sem eru í kvennameðferð. Góð samsetnig á hópnum þar sem konur geta stutt konur í batanum.

 

Þriðjudaginn 29. mars

Þóra og Lára heimsóttu Kjarnakonur SÁÁ á Akureyri þriðjudaginn 29. mars. Þóra hélt fyrirlestur um konur og áfengi og slökun. Lára kynnti starf kjarnakvenna í Reykjavík.  Gaman var að hitta 23 Kjarnakonur á Akureyri og heyra frá starfi þeirra. Áhugi er að hittast aftur í vor.

 

Miðvikudagur 16. mars 

Margar Kjarnakonur tóku þátt í leiklistanámskeiði sem boðið var upp á sl. helgi. Þar lærðum við m.a. að leika öruggar og ánægðar konur. Góður rómur var gerður af námskeiðinu.  

28 konur mættu á fundinn 16. mars þar sem rætt var um bata fullorðinna barna alkóhólista. Nokkrar nýjar konur bættust við í hópinn. Framundan er Kanarýeyja ferð hjá 20 Kjarnakonum. Næsti fundur verður að viku liðinni.

 

Miðvikudagur 9. mars 

9. mars mættu 28 konur á fund hjá Kjarnakonum SÁÁ - tvær komu utan af landi frá Sauðárkrók og Súðavík og voru við mjög ánægðar með þá heimsókn. Góðar umræður voru um tilfinningatamningu og voru konur einróma um gildi þess að nota prógramið ein dag í einu í þeirri tamningu. Margar minntust þess hvað það er gott að stíga út úr pirring, gremju og aumingja ég tilfinningunni. Margar konur ætla að taka þátt í leiklistarnámskeiði SÁÁ núna um helgina 12-13. mars.

 

Miðvikudagur 2. mars

Rúnar Guðbjartsson sálfræðingur hélt fyrirlestur um tilfinningatamningu. Góð mæting og líflegar umræður.

 

 

Fimmtudagur 24. febrúar - hádegisverðafundur á Vogi

Formaður Félags Íslenskra Hjúkrunarfræðinga Elsa Friðfinnsdóttir og ritstjóri Hjúkrunar Valgerður Katrín Jónsdóttir ásamt starffólki á skrifstofu félagsins komu í heimsókn. Þóra Björnsdóttir hjúkrunarforstjóri hélt fyrirlestur um konur og áfengi og Lára kjarnakona sagði frá sinni reynslu. Góðar og gagnlegar umræður.

 

Miðvikudagur 23. febrúar

Gunnar Sigurðsson kynnti leiklistanámskeið sem SÁÁ ætlar að bjóða upp á um miðjan mars. Mikill áhugi hjá konum að taka þátt og skemmta sér í góðum hóp.

 

Miðvikudagur 16. febrúar

Sameiginlegur bati alkahólistans og aðstandendans. Dunna ráðgjafi hélt fyrirlestur um hvernig alkóhólistar og aðstandur vinna að því að bæta líðan sína og þau verkefni sem oft blasa við í batagöngunni. Áhugaverður fyrirlestur sem kemur að góðum notum fyrir alla.

 

Miðvikudaginn 9. febrúar

tóku 16 Kjarnakonur þátt í umræðu um hvernig þeim líður þegar þær finna fyrir meðvirkni og hvernig þær bregðast við þeirri líðan. Vorum sammála um að nauðsynlegt er að halda vöku sinni og halda alltaf áfram að hlúa að batan um einn dag í einu. Næsta miðvikudag mun Dunna ráðgjafi og Kjarnakona halda fyrirlestur um sameiginlegan bata alkóhólistans og aðstandandans.

 

Miðvikudagur 2. febrúar

24 konur mættu á fund hjá Kjarnakonum. Nokkrar voru að koma á sinn fyrsta fund. Við bjóðum allar nýjar konur innilega velkomnar og fögnum því að fá þær í  hópinn. Febrúarmánuður verður tileinkaður bata frá meðvirkni og voru umræður á fundinum í þeim anda.

 

Fimmtudagur 27. janúar

Kjarnakonur tóku á móti hjúkrunarfræðingum af Heilsugæslunni í Árbæ. Góðar umræður voru um hvernig Heilsugæslustarfsfólk gæti þjónustað fólk sem á við áfengisvanda eða aðra fíkn að stríða. Þórarinn Tyrfingsson kynnti starfsemi SÁÁ.

 

Miðvikudagur 26. janúar

Kjarnakonur hlustuðu á fyrirlestur um slökun sem Þóra Björnsdóttir hjúkrunaforstjóri á Vogi hélt. Mikil værð og ró sveif yfir vötnum en fyrirlestrinum lauk með verklegum æfingum í slökun. Alls mættu 28 konur.

 

Miðvikudagur 19. janúar

Þórarinn Tyrfingsson hélt erindi fyrir 34 konur.  Góðar umræður um áhrif áfengissýki á einstaklinga og fjölskyldur. 

 

Miðvikudagur 12. janúar

17 konur mættu á fund hjá Kjarnakonum á Vogi. Rætt var um fyrirhugað vetrarstarf og ýmsar hugmyndir eru í skoðun hjá stýrihópnum. Næsta miðvikudagskvöld klukkan 20 mun Þórarinn Tyrfingsson læknir á Vogi halda fyrirlestur um fjölskyldusjúkdóminn alkahólisma.