SÁÁ

Kjarnakonur 2006

27. desember mættu 16 konur og slökuðu á saman og töluðu um nýliðna jólahátíð.

 

20. desember  fengum við góða gesti í heimsókn sér Anna Sigríður Pálsdóttir var með jólahugvekju og Margrét Frímannsdóttir las upp úr bók sinni Stelpan frá Stokkseyri. 27 konur mættu og nutu kvöldsins.

 

13. desember mættu 16 konur og hlustuðu á upplestur úr bók Sigríðar Dúnu Kristmundsdóttur um Ólafíu Jóhannesdóttur.

 

6. desember mættu 13 konur á fund og fylgdust með Hjöddu töfra fram glæsilegar jólaskreytingar.

 

29. nóvember mættu 15 konur á fund og deildu með sér reynslusögum af áhugamálum sínum. Allar voru sammála um það að batinn væri númer eitt tvö og tíu að  vera edrú og í jafnvægi  er lykillinn að hinum ólíklegustu áhugamálum.

 

22. nóvember mættu 18 konur á undirbúningsfund fyrir opnun á nýja húsinu. Ákveðið var að panta flatbrauð með hangikjöti, kleinur og konfekt. Mikil eftirvænting og tilhlökkun ríkir í hópnum varðandi nýja húsið. Sjá myndaalbúm Kjarnakvenna

 

15. nóvember fóru 16 konur í heimsókn í Efstaleiti 7 nýtt forvarnar-og fjölskylduhús SÁÁ. Ari Matthíasson framkvæmdastjóri félags-og útbreiðslusviðs tók á móti okkur og sýndi okkur húsið. Kjarnakonur ætla að fjölmenna og taka þátt þegar nýja húsið verður opnað 25 nóvember.

 

8. nóvember mættu 10 konur og deildu reynslu sinni af batanum. Hvernig batinn verður eins konar áhugamál.

 

1. nóvember mættu 17 konur og sögðu frá áhugamálum sínum allt frá bókalestri til mótorhjóla. Gaman að heyra af  mismunandi áhugamálum.

 

24. október mættu 16 konur og ræddu um fjölskyldusjúkdóminn alkahólisma og sameiginlegan bata allra fjölskyldumeðlima.

 

18. október fengum við góða gesti þær Ingunni Ástu Sigmundsdóttur og og Evu Harðardóttur sem héldu áhugaverðan fyrirlestur um BA verkefni sitt í uppeldisfræði við HÍ. Verkefnið heitir ”Það vilja nátturlega allir vera mjóir......þar sem þær könnuðu líkamsímynd unglingsstúlkna, og vilja þeirra til að breyta líkamlegu útliti sínu í samræmi við útlit kvenna í tónlistarmyndböndum. 25 konur mættun og hlustuð á þær stöllur fara á kostum.

 

11. október mættu 15 konur á fund ánægðar eftir vel heppnaðan afmælis-og baráttufund SÁÁ  í Háskólabíó kvöldið áður. Kjarnakonur mættu vel á baráttufundinn og dreyfðu kynningaspjöldum um starf Kjarnakvenna.

 

Á næsta fund okkar þann 18. október mæta tvær stúlkur þær Ásta og Eva og kynna BA verkefni sitt í uppeldis- og menntunarfræðum. Verkefnið fjallar um hvort áhorfslengd íslenskra unglingsstúlkna á tónlistamyndbönd tengjast líkamsímynd þeirra.

 

4. október mættu 15 konur. Þema október er fjölskyldan. Kjarnakonur ætla að fjölmenna á hátíðarfund SÁÁ  10 október og vera með kynningu á starfinu í andyri Háskólabíó.

 

27. september mættu 16 konur hlustuðu á slökunardisk og deildu reynslu sinni.

 

20. september mættu 25 konur fóru í stutta slökun í upphafi fundarins og áttu góða stund saman.

 

3. september mættu 24 konur og deildu sinn á því hvað þær gera til að styrkja sig og batann sinn.

 

6. september mættu 31 konur. Þema september er sjálfstyrking.

 

30. ágúst mættu 29 konur og héldu áfram að æfa sig í slökun til að viðhalda jafnvægi og hugaró.

 

23. ágúst mættu 18 konur á fund byrjuðum fundinn á því að fara í stutta slökun og áttum svo góðar umræður um gildi slökunar í dagsins önn.

 

16. ágúst mættu 24 konur og ræddu um jafnvægi/bata.

 

9. ágúst mættu 26 konur og minntust látinnar Kjarnakonu sem lést í bílslysi.

 

26. júlí mættu 23 konur og áttu góða stund saman. Gott að vera í hóp sem leitast við að vera í vellíðan.

 

19. júlí mættu 20 konur héldu áfram að deila reynslu sinni á því hvað þær gera til að viðhalda vellíðan í batanum

 

12. júlí mættu 24 konur og deildu reynslu sinni á því hvað það er mikilvægt að viðhalda vellíðan sinni einn dag í einu. Frábær mæting um mitt sumar.

 

5. júlí mættu 24 konur og hlustuðu á Helgu Óskarsdóttur ráðgjafa fjalla um vellíðan og bata.

 

28. júní mættu 18 konur og héldu áfram að fjalla um það sem vekur upp gleði hjá þeim í batanum.

 

21. júní mættu 15 konur og hlustuðu á Þóru Björnsdóttur hjúkrunarforstjóra halda fyrirlestur um lífsgleði.

 

14. júní mættu 19 konur á fund og sýndu myndir frá vel heppnaðri vorferð.

 

9. til 11. júní lögðu 15 konur af stað í óvissuferð

Lagt var af stað frá Vogi kl. 18 og lá leiðin upp í Bláfjöll þar sem við dvöldum í vel útbúnum skála Breiðabliks til kl. 15 á sunnudag. Þema helgarinnar var unglingurinn ég. Helgin leið fljótt og var margt brallað. 

Fyrsta kvöldið var haldið náttfatapartý þar sem dansinn dunaði fram yfir miðnætti. Veðrið var millt og gott að fara ú kvöldgöngu. 

Vöknuðum í niðdimmri þoku næsta morgun og hófumst handa við að fjalla um löngu liðinn tíma þegar við vorum unglingar. Um kvöldið var kvöldvaka þar sem farið var í leiki, spilað á gítar og sungið af mikilli innlifun. 

Unglingar mættu þarna nokkrir í aðeins eldri búkum og mikill spuni fór í gang. 

Helgin leið fljótt og vel og vorum við allar vel haldnar eftir flottar veitingar og góða samveru.

 

Þema júnimánaðar er gleði. 7. júni mættu 18 konur og stilltu sig inn á gleði hvers dags.

 

31. maí mættu 20 konur og lögðu á ráðin fyrir vorferð. Ákveðið var að fara í óvissuferð 9-11 júní.

 

24. maí mættu 20 konur og fögnuðu vel heppnaðri álfasölu. Framundan er ferð í Bláa Lónið fyrir þær sem tóku þátt í álfasölunni.

 

17. maí  mættu 31 kona til að undirbúa álfasölu. Kjarnakonur seldu álfinn í Kringlunni.

 

10. maí mættu 30 konur. Ari Matthíasson framkvæmdastjóri útgáfu og útbreyðslusviðs kynni sig og sitt starfssvið.

 

3. maí  mættu 26 konur og hlustuðu á Dóru ráðgjafa fjalla um sjálfsvirðingu. Gott og þarft umræðuefni.

 

26. apríl mættu 32 konur og hlustuðu á skemmtilegan fyrirlestur um fíknisjúkdóma sem Valgerður Rúnarsdóttir læknir á Vogi hélt. Margar spurningar vöknuðu og ætla kjarnakonur og tala áfram um efni fyrirlestursins á næsta fundi.

 

18. apríl mættu 18 konur  á fund hjá Kjarnakonum SÁÁ. Áfram er umræðan um “streituspjörun” , æfðum slökun og hvöttum hvor aðra til að minnka streituvalda í okkar nánasta umhverfi.

 

12. apríl mættu 13 konur á fund hjá Kjarnakonum SÁÁ. Fundurinn hófst með stuttri slökun síðan ræddu konur um áhrif streitu á líf  sitt. Gott að kunna slökun sem hægt er að grípa til hvar og hvernær sem er.

 

Miðvikudaginn 5. apríl fjölmenntu Kjarnakonur og fögnuðu fjögurra ára afmæli sínu með myndasýninu af starfinu. Rifjaðar voru upp góðar minnigar af fundum og ferðalögum. Framundan er álfasala og ætla Kjarnakonur að taka virkan þátt í henni og halda síðan í sína árlegu vorferð.  Allar konur eru velkomnar á fundi Kjarnakvenna SÁÁ á miðvikudagskvöldum kl. 20 á Vogi.

 

Kjarnakonur luku umræðu sinni um börnin og batan þann 29 mars. 21 kona mætti á fundinn. Á næsta fundi ætla Kjarnakonur á halda upp á 4 ára afmæli sitt.

 

22. mars mættu 14 konur og ræddu um fyrirlesturinn frá því í síðustu viku. Allar hafa jákvæða reynslu af því hvernig batinn hefur góð áhrif á líðan barna.

 

15. mars hélt Margrét Birna Þórarinsdóttir sálfræðingur fyrirlestur um hvernig stutt er við jákvæða hegðun barna. Góð mæting 27 konur og líflegar umræður.

 

8. mars mættu 23 konur og héldu áfram að ræða um áhrif batans á fjölskyldulífið.

 

1. mars mættu 23 konur . Þema marsmánaðar er batinn/börnin. Hvetjandi umræður voru um gildi þess að vera í bata og hvernig börnin njóta góðs af því.

 

22. febrúar mættu 22 konur og skiptust á skoðunum og deildu reynslu sinni af því að vinna sig frá meðvirkni.

 

15. febrúar mættu 20 konur og ræddu hugmyndir sínar um batann eftir að hafa hlustað á fyrirlestur í síðustu viku.

 

Fjölmenni var á fundi Kjarnakvenna  8. febrúar. 40 konur mættu til að hlusta á Þórarin Tyrfingsson lækni  halda fyrirlestur um batann í allri sinni mynd. Góð stemming ríkti og voru konur ánægðar með að fá tækifæri til að skoða sinn eigin bata hvort sem konur eru alkóhólistar eða aðstandendur. Allar höfum við jú áhuga á bata alkóhólistans en þurfum í leiðinni að sinna okkur sjálfum ef við erum aðstandendur.

 

1. febrúar mættu 24 konur á fund hjá Kjarnakonum SÁÁ. Þema febrúar er bati frá meðvirkni. Því fór vel að byrja  að tala um gildi hreyfingar í batanum frá meðvirkni. Góðar umræður um mikilvægi þess að hreyfa sig reglulega, ganga, synda, hjóla eða fara í leikfimi til að losa um spennu og hlaða “batteríin”. Allar konurnar voru sammála um gildi hreyfingar fyrir batann og eru með áform um að hreyfa sig reglulega. Hugurinn ber okkur hálfaleið. Þórarinn Tyrfingsson verður gestur okkar á næsta fundi 8. febrúar með fyrirlestur um bata við meðvirkni og alkóhólisma.

 

25. janúar mættu 23 konur og áttu saman notarlega stund. Í janúar hefur umræðan verið bati fjölskyldunnar. Góðar og gagnlegar umræður .

 

18. janúar mættu 31 kona á fund Kjarnakvenna. Stýrihópurinn hittist fyrr um daginn og kynnti starfshugmyndir sínar fyrir hópnum. Þær eru m.a þær að ákveðið var að efla móttöku okkar þannig að helst sé ein kona frammi í andyri og bjóði konur velkomnar á fundinn. Konur skiptast á að vera í kaffiþjónustu.

 

11. janúar kom Guðrún Hafliðadóttir (Dunna) fyrrum ráðgjafi hjá SÁÁ og hélt fyrirlestur um sjálfsmat. Dunna fór í gegnum það  hvernig vanmat og ofmat getur haft áhrif á líðan.

 

4. janúar

Fyrsti fundur kjarnakvenna var vel sóttur. 28 konur hittust og lögðu á ráðin fyrir komandi ár. Þema janúar mánaðar er fjölskyldan.