SÁÁ

Dagbók 2007

Í desember er þamað jólahald þá ætla Kjarnakonur að bjóða til sín séra Önnu Sigríði Pálsdóttur Dómkirkjupresti og rithöfundinum Vigdísi Grímsdóttur.
 
14. nóvember mættu 32 konur og  horfðu  saman á myndina Peacefull Warrior. Mjög athyglisverð mynd sem hvatti okkur til dáða.
 
Í nóvember hafa Kjarnakonur verið að deila reynslu sinni af áhugamálum sínum.
 
31. október hélt Lárus Blöndal sálfræðingur hjá SÁÁ kynningu á nýju úrræði sem er í boði fyrir börn alkahólista á aldrinum 8 til 18 ára.
 
24. október mættu 25 konur og deildu reynslu sinni af bata innan sinnar fjölskyldu.
 
17. október mættu 37 konur og hlýddu á Helgu Óskarsdóttur ráðgjafa halda fyrirlestur um sameiginlegan bata alkahólistans og hins meðvirka.
 
10. október mættu 26 konur á  myndasýningu frá haustferðinni til Akureyrar og frá afmælisfundinum. Gaman að rifja upp góðar stundir saman.
 
Kjarnakonur mættu vel á  30 ára afmælisfund SÁÁ þar sem Edda Larsen Kjarnakona var heiðruð. Kjarnakonur gáfu SÁÁ 2 hægindastóla í afmælisgjöf.
 
Í september mættu  20 – 23 konur á fundi Kjarnakvenna þar sem þema fundanna var sjálfstyrking í allri sinni mynd. Góðar umræður um gildi þess að vera í bata frá áfengis- og vímuefnafíkn til þess að njóta lífsins.
 
Föstudaginn 7. september lögðu af stað 15 Kjarnakonur á vit ævintýra til Akureyrar. Þóra hjúkrunarforstjóri á Vogi var aðalbílstjórinn okkar en Árdís tók í stýrið á heimleið. Við komum til Akureyrar kl. 22.45 og fyrir utan Göngudeild SÁÁ var bara ein kona sem tók á móti okkur. En það var tilkomumikil sjón sem blasti við okkur þegar við komum inn, því hinar Akureysku Kjarnakonur stóðu heiðursvörð í stiganum og biðu okkar. Það læddist eitt og eitt tár yfir móttökunum og veitingunum sem við fengum. Eftir þessa viðhöfn var keyrt að áningastað sem heitir Öngulsstaðir og er í ca. 15km fjarlægð frá Akureyri.
 
Laugardagurinn rann upp bjartur og fagur en pínulítið kaldur. Þetta var tilvalinn dagur til að fara í góðan göngutúr í Kjarnaskógi með þeim Akureysku sem við hittum kl. 10.40. Þar lékjum við okkur í leiktækjum og fórum í Ástarlundinn. Þar hittum við eldra fólk sem var þar á gangi og hafði þar gamall maður áhyggjur af því að við værum allar herralausar.
 
Okkur var boðið í súpu og salat á Greifanum um hádegið. Þar áttu 28 Kjarnakonur góðan málsverð saman. Síðan var ákveðið að ganga til sameiginlegs Kjarnakonufundar þar sem þemað var "ÞAKKLÆTI". Það var yndislegur fundur. Eftir fundinn var farið að Blómaskálanum Vín og keyptir þessir risastóru ísréttir, marengetertur og kaffi. Jólahúsið var næst á dagskrá og sveif þá jólaandinn yfir hjörtum okkar.
 
Við héldum til gististaðar okkar til að búa okkur undir kvöldverð og skemmtidagskrá á Hótel KEA. Þar vorum við orðnar 39 Kjarnakonur sem borðuðu góða Humarsúpu, lambafillé og súkkulaðiköku. Þar var boðið upp á ýmis skemmtiatriði svo sem Björn Þorláksson fréttamann á Stöð 2 sem las upp úr handritinu "AUKVISAR" sem fer í útgáfu haustið 2008. Þetta var mjög skemmtilegur lestur. Svo kom Sigurður Ingimarsson spilaði á gítar og söng með okkur yndisleg lög. Við vildum ekki leyfa honum að hætta þó að hann væri búin að slíta streng. Þórhalla miðill frá Sálarrannsóknarfélaginu skakklappaðist einhvern veginn inn í salinn, féll í trans en datt svo út úr sambandi aftur. Hún ákvað að endurgreiða okkur öllum. Það kom ýmislegt fleira til skemmtunar.
 
Við ákváðum að fara í messu í Akureyrarkirkju á sunnudagsmorguninn áður en lagt var af stað í bæinn. Séra Sólveig Halla Kjarnakona og sóknarprestur  predikaði. Við komum í bæinn um kl. 18.00 að Vogi.
 
Ég skildi eftir vísu á Öngulsstöðum þar sem við gistum. Hún er svona:
 
 
               KJARNAKONUR KOMU HÉR
               OG GISTU Á ÖNGULSSTÖÐUM.
               MIKÐ VEL ÞÆR SKEMMTU SÉR
               EN HÉLDU VEL Á SPÖÐUM.
 
     Takk kærlega vel fyrir mig og alla yndislega samveru.
                 
                  Sólrún Ósk Sigurðardóttir 
                    solrunosksig@hotmail.com    
 
 
25. júli mættu 19 konur og hlustuðu á óvirkan alkahólista lýsa því hvernig hún viðheldur sinni vellíðan eftir margra ára edrúmennsku.
 
18. júlí mættu 8 konur og hlustuðu á móðir ungs fíkils segja frá sinni líðan eftir að fíkillinn hafði farið í meðferð á Staðarfelli. Gaman var að heyra hvað hún upplifði mikla breytingu á sinni líðan eftir að fíkillinn varð óvirkur.
 
4. og 11. júlí mættu 15 konur.
 
Þema júní mánaðar var gleði/bati.  
20. og 27. júní mættu 15 og 23 konur til að taka þátt í þeirri umræðu. Í júli var þemað vellíðan.
 
13. júní mættu 23 konur á fund Kjarnakvenna og hlustuðu á Þóru Björnsdóttur hjúkrunarforstjóra Vogs halda fyrirlestur um lífsgleði. Góðar umræður á eftir um gildi þess að taka ákvörðun á hverjum degi um að láta sér líða vel og vera glöð.
 
6. júni mættu 18 ánægðar konur eftir vel heppnaða álfasölu. Náðum að selja rúmlega 1000 álfa og er það mjög gott því færri konur en í fyrra gátu lagt okkur lið.
 
30. maí mættu 14 konur og skiptu með sér verkum. Við verðum með tvo innganga í Kringlunni og ætlum okkur að selja yfir 1000 álfa.
 
23. maí mættu 13 konur og héldu áfram að hita upp fyrir komandi álfasölu.
 
16. maí mættu 16 konur á fund og byrjuðu að undirbúa álfasölu. Kjarnakonur hafa undanfarin ár selt álfinn í Kringlunni.
 
9. maí hélt Anna Hildur Guðmundsdóttir ráðgjafi á Unglingadeildinni á Vogi fyrirlestur um meðferðina á Unglingadeildinni og stuðningin við foreldra.
 
2. maí mættu 15 konur og ræddu um efni fyrirlestursins frá því á síðasta fundi. Ljósrit af fyrirlestrinum voru afhent.
 
25. apríl hélt Lárus Blöndal sálfræðingur fyrirlestur um mikilvægi þess að setja mörk í samskiptum. Góð mæting var á fyrirlesturinn 30 konur
 
18. apríl mætttu 15 konur á fund og héldu áfram að styrkja vináttuböndin.
 
11. apríl mættu 18 konur á fund. Þema aprílmánaðar er vinátta. Konan sem leiddi fundinn hefur verið mjög virk í starfi Kjarnakvenna í mörg ár. Hún lýsti ómetanlegegum stuðningi frá hópnum í gegnum  erfið veikindi sín.
 
 
Kjarnakonur fögnuðu 5 ára afmæli sínu með því að bjóða öllum velunnurum sínum og SÁÁ upp á tónleika með Borgardætrum 4 apríl. Mjög góð mæting var á fögnuðinn eða um 120 manns og skemmti fólk sér vel. Borgardætur fóru á kostum og léku við hven sinn fingur við góðar undirtektir viðstaddra. Afmæliskaka var í boði og fengu færri en vildu svo kaffihúsið kom að góðum notum og bætti úr hið snarasta. Kjarnakonur ætla að halda áfram að hittast vikulega og hvetja konur til að huga vel að batanum. Framundan er vorferð til Akureyrar sem verður auglýst síðar. Sjá einnig myndaalbúm.
 
4. apríl munu Kjarnakonur halda upp á 5 ára afmæli sitt með tónleikum í Von kl. 20:30 þar ætla Borgardætur á skemmta okkur. Afmælisterta í boði.
 
28. mars mættu 26 konur og deildu reynslu sinn af því að lifa í bata frá fíknisjúkdómnum og  meðvirkni.
 
21. mars mættu 15 konur og hlustuða á óvirkan alkahólista deila reynslu sinn af sínum bata frá meðvirkni. Hennar ráð voru að sleppa tökunum og vera góð við fólkið sitt.
 
14. mars mættu 14 konur og hlustuðu á Þóru Björnsdóttur hjúkrunarforstjóra á Vogi halda fyrirlestur um sameiginlegan bata alkahólistans og aðstandendans.
 
7. mars mættu 21 kona og deildu reynslu sinn af því að vinna sig frá meðvirkni. Niðurstaða n var að það er góð líðan sem fæst þegar við náum að lifa og leyfa öðrum að lifa.
 
28. febrúar mættu 40 konur og hlustuðu á Þórarinn Tyrfingsson halda fyrirlestur um vímuefnafíkn og meðvirkni. Sýndi hann okkur athyglisverðar glærur af heilanum. Góðar og gagnlegar umræður.
 
21. febrúar mættu 15 konur og hlustuð á móðir ungs fíkils deila reynslu sinn af því að sækja sér bata í Alanon og fjölskyldumeðferð SÁÁ. Áfengis-og vímuefnasjúkdómurinn er svo sannalega fjölskyldusjúkdómur.
 
14. febrúar horfðum við á fyrirlestur af DVD diski um sjúkdóminn áfengis- og vímuefnafíkn sem Þórarinn Tyrfingsson hélt 20 konur mættu.
 
7. febrúar þema febrúar er fjölskyldan 20 konur tóku þátt í umræðu um bata fjölskyldunar þegar alkahólistinn fer í meðferð og aðstandendur á fjölskyldunámskeið.
 
31. janúar mættu 24 konur og áttu notarlega stund saman. Slökun og umræður.
 
24. janúar hélt Þórdís Davíðsdóttir ráðgjafi erindi um kvennameðferð SÁÁ  sagði frá fyrirkomulaginu og helstu verkefnum sem konur eru að vinna að á Vogi á Vík og í Göngudeild.
 
17. janúar mættu 30 konur og stilltu saman strengi og settu sér markmið fyrir komandi ár. Ánægja í hópnum með að vera komnar í Von.
 
10. janúar fyrsti fundur Kjarnakvenna í nýju húsi SÁÁ Von Ari Matthíasson tók á móti okkur og kynnti þá miklu starfsemi sem er í gangi í húsinu. Mikil eftirvænting og vonir eru bundnar við starfið. 28 konur mættu.
 
3. janúar mættu 18 konur á síðasta fund okkar á Vogi. Umræðuefnið var nýtt ár hverjar eru væntingar mínar .

 

 

 

 

 Félag ungs edrúfólks

UNG-SÁÁ er nýtt félag ungs edrúfólks á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum uppá-komum og hvetur ungt fólk til að koma og kynna sér starfsemina.

 

Ertu í vanda? Spurningar og svör

 Úr myndaalbúmi SÁÁ

 

 

 

 

   

 Reynslusögur á RÚV !

Frábær viðtöl á Rás 2 við Guðlaugu Kjartansdóttur og Arnar Eggert. Einnig við Önnu Jónu Ármannsdóttur og Valgeir Skagfjörð. Við mælum með þessu.

 

Bankað upp á

Í þættinum Bankað upp á heimsækir Erla Tryggvadóttir

göngudeild SÁÁ í Efstaleiti í Reykjavík.