SÁÁ

Dagbók 2008

Desember

Margrét Pála kom og las upp úr bók sinni Ég skal vera grýla. Skemmtileg lesning um viðburðaríkt líf.

Séra Anna Pálsdóttir heimsótti okkur og var með sína árlegu jólahugvekju.

 

Nóvember

Mættu 14 konur á fund.

Erla Bolladóttir var gestur okkar og las upp úr nýútkominni bók sinni Erla góða Erla. Ótrúlegar lýsingar á erfiðri lífsreynslu.

 

Október

Mættu 11 – 14 konur á fund.

Vallý sagði okkur ferðasögu frá detox- meðferð í Póllnadi. Sýndi myndir og gaf góðar leiðbeiningar um mataræði.

 

September

Þema mánaðarins  var sjálfstyrking. 8 – 17 konur mættu á fund.

Það er eilífðarverkefni i að styrkja sjálfa sig, að heyra hvernig hinar fara að því er lærdómsríkt og þroskandi.

 

Ágúst

Þema ágúst mánaðar var  jafnvægi/bati.

15 konur mættu að jafnaði á fund og tóku virkan þátt í því að æfa sig í því að viðhalda líkamlegu-tilfinningalegu-andlegu jafnvægi.

Alltaf koma einhverjar nýjar konur á fund og fögnum við þeim sérstaklega.

 

Júlí

Þema júlí mánaðar er vellíðan.

 

Júní

Þema júní mánaðar var gleði/bati. Þóra Björnsdóttir hélt fyrirlestur um lífsgleði. Konur æfðu sig í slökun.

 

Maí

Kjarnakonur tóku þátt í álfasölu og seldu álfinn af miklum móð í Kringlunni. Eftir vel heppnaða söluhelgi fóru sölukonur í hádegisverð á Caffi París og fögnuðu góðri helgi.

 

9. apríl hélt Valgerður Rúnarsdóttir læknir á Vogi fyrirlestur um sjúkdóminn alkóhólisma. 25 konur mættu og fræddust um nýjustu  þekkingu á sjúkdómnum.

 

40 Kjarnakonur SÁÁ héldu upp á 6 ára afmæli sitt með pomp og prakt 2. apríl s.l.. Tvær konur sögðu frá reynslu sinni af því að starfa með Kjarnakonum s.l. ár.  Þær voru  sammála um gildi þess að hitta aðrar konur sem eru markvist að vinna að því að styrkja bata sinn hvort sem þær eru alkóhólistar eða aðstandendur. Íris Edda söng einsöng við góðar undirtektir lag af geisladisk sem hún gaf úr í fyrra. Ásgerður færði okkur veglegan blómvönd í tilefni dagsins.  Flottar kaffiveitingar í boði SÁÁ. Góður hugur í konum um að halda starfinu áfram. Sjá myndaalbúm Kjarnakvenna.

 

Mars

Þemað í mars er bati frá meðvirkni.

 

Febrúar

Í febrúar var þemað alkóhólismi er fjölskyldusjúkdómur. Þórarinn Tyrfingsson læknir hélt fyrirlestur um efnið  en þá mættu 40 konur.

 

Janúar

Fyrsti fundur Kjarnakvenna á nýju ári var 2. janúar. Þá mættu 20 konur og gerðu plön um að eiga gott ár framundan einn dag í einu. Góð mæting var á alla fundina okkar í jánúar eða 17 -28 konur.