|
Október, nóvember og desember
Kjarnakonur fóru á námskeið hjá Sollu að læra að elda holla og góða grænmetisrétti. Góðir gestir heimsóttu okkur og lásu upp úr nýútkomnum bókum sínum. Séra Anna Pálsdóttir mætti að venju í desember og var með jólastund með okkur.
September
Kjarnakonur kynna starf sitt einu sinni í mánuði fyrir konum sem eru í eftirmeðferð fyrsta laugardag í mánuði.Markmið okkar er að styðja við konur sem fara í eftirmeðferð með því að greiða 50.000 í styrktarsjóð annað slagið. Þema mánaðarins er dagurinn í dag.
Allar konur eru velkomnar á fund.
Ágúst
Heilsuefling var þema ágúst mánaðar. Að hreyfa sig reglulega sofa nóg og borða heilsusamlega það er grunnurinn að góðri heilsu. Að viðhalda batanum er að sinna öllum þessum þáttum einn dag í einu.
Júli
Þrátt fyrir sumarblíðu mættu að jafnaði 10 konur á fund. Þema júlí var slökun. Margar konur eru haldnar viðvarandi spennu og hafa því mjög mikið gagn af því að kunna slökunartækni. Kjarnakonur byrja alla fundi með slökun og eru því orðnar vel slakar eftir hvern fund tilbúnar að takast á við þau verkefni sem bíða þeirra. Nýjar konur koma annað slagið en kjarninn samanstendur af 10 konum.
Júní
Þema júní mánaðar er útivera.
Maí
Álfasala í Kringlunni. Kjarnakonur létu sig ekki vanta í álfasöluna þó vorum við færri í ár en oft áður. Seldum um 500 álfa og höfðum gaman af. Fólk tók okkur mjög vel og margir þökkuðum SÁÁ fyrir sig og sína.
Þóra Björnsdóttir hjúkrunarforstjóri hélt fyrirlestur um ofát- matarfíkn - tengsl við fíknisjúkdóminn.
Mæting að meðaltali 12 konur á fundi.
Apríl
Kjarnakonur fögnuðu 7 ára afmæli sínu 1 apríl með myndasýningu af starfinu og léttum veitingum.
Tíminn hefur liðið hratt og finnst okkur við hafa dafnað vel. Góður kjarni mætir vel á fundi og nýjar konur eru alltaf boðnar velkomnar.
Þema apríl mánaðar var vinátta.
Kjarnakonur gáfu tvær veglegar blómaskreytingar á Vog til minningar um Rósu Guðmundsdóttur kjarnakonu sem lést af slysförum fyrir nokkrum árum.
Hjördís blómadrottning sá um að útbúa þessar falllegu skreytingar sem eru í stiganum fyrir fram fyrirlestrarsalinn sjúklingunum til mikillar ánægju.
Mæting að meðaltali 10 konur.
Mars
Þema mars mánaðar var fjölskyldan.
Kjarnakonur eru óvirkir alkahólistar, makar alkahólista, mæður eða ömmur ungra fíkla svo umræðurnar voru fjölbreyttar og gagnlegar.
Mæting 10 – 13 konur á fundi.
Mikilvægustu skilaboðin voru að halda áfram að sinna vel sjálfum sér og sínu nánasta umhverfi. Vera til staðar styðja og uppörva.
Febrúar
Kjarnakonur frá Akureyri heimsóttu okkur og áttum við ánægjulega helgi saman. Fræðsla og skemmtun. Gaman að hittast og kynnast nýjum konum. Fáum aukinn kraft til að efla starfið enn frekar. Sjá myndaalbúm.
Janúar
Björk Guðjónsdóttir hjúkrunarfræðingur kynnti BA- ritgerð sína í mannfræði um bata nokkurra kvenna eftir áfengismeðferð og starf í AA.
Athyglisverð ritgerð um þarft efni.
|