SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Dagbók 2010

Júní – Júlí - Ágúst

Þema þessa mánuði hefur verið- Slökun- Útivera- Dagurinn í dag

Þrátt fyrir sumarblíðu mættu að jafnaði 10  konur á fund. Slökun, útivera- að hreyfa sig reglulega, sofa nóg og borða heilsusamlega það er grunnurinn að góðri heilsu. Að viðhalda batanum er að sinna öllum þessum þáttum einn dag í einu. Nýjar konur hafa verið að bætast í hópinn.

 

Maí

Þema mánaðarins er Álfasala.

Álfasala í Kringlunni. Kjarnakonur létu sig ekki vanta í álfasöluna, þó vorum við færri í ár en oft áður. Seldum vel af álfum og höfðum gaman af.

Var okkur vel tekið og margir þökkuðum SÁÁ fyrir sig og sína.

 

Apríl

Þema afmælisfundur Kjarnakvenna.

Kjarnakonur fögnuðu 8 ára afmæli sínu 7. apríl með léttum veitingum. Ásgerður Björnsdóttir,framkvæmdastjóri fjármálasviðs, hjá SÁÁ,, leiddi fundinn. Fallegu blómin sem kjarnakonur fengu frá SÁÁ í tilefni afmælisins fór upp á Vog. Við höfum dafnað vel.

Góður kjarni mætir vel á fundi og nýjar konur eru alltaf  boðnar velkomnar.

 

Mars

Þema mánaðarins er Bati við meðvirkni.

10 mars hélt Helga Óskarsdóttir, ráðgjafi SÁÁ, fyrirlestur um bata við meðvirkni. Góður rómur var gerður af fyrirlestrinum. Alls mættu 45 manns en fundurinn var opinn öllum áhugasömum. Miðvikudag, 17 mars, hélt Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, fyrirlestur hjá Kjarnakonum um fíknisjúkdóminn, fjölmennt var og voru margar fyrirspurnir.

 

Febrúar

Þema mánaðarins er Fíknisjúkdómar og bati við þeim. Konum hefur enn fjölgað á fundunum. 12-16 konur. Allar konur eru velkomnar á fund.

 

Janúar

Þema mánaðarins er Nýtt ár -vinátta. Konum hefur fjölgað á fundunum á nýju ári. Kjarnakonur gáfu Sjúkrahúsinu Vogi lyfjavagn í samvinnu við Heiðursmenn. Í jólagjöf gáfu Kjarnakonur bækur til sjúklinga á Vogi og Vík. Allar konur eru velkomnar á fund.

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.