|
2. febrúar var haldinn fundur hjá Kjarnakonum SÁÁ Vestfjarða og mættu 15 konur frá 5 sveitafélögum. Soffía Vagnsdóttir hélt þema um sjálfsvirðingu eða lágt sjálfsmat og samhæfðu konur um sína reynslu og um lausnina að hafa trú á sjálfum sér. Hlusta á sína rödd en margar hafa látið brjóta sig niður við að búa við alkóhólisma og misst trúna á sjálfa sig. Konur eru almennt mjög ánægðar að þessi félagskapur sé kominn til að vera hérna fyrir vestan og þær hlakkar alltaf til fundar sem við höfum fyrsta fimmtudag hvers mánaðar.
5. janúar var fundur hjá Kjarnakonum SÁÁ Vestfjarða og mættu 12 konur sem er mjög gott, því veðrið var slæmt og erfitt að keyra, en þær létu sig nú hafa það að keyra í dimmu Óshlíðina og klettana lausa fyrir ofan ...kjarkaðar konur! Þema fundarins var "Hvað ætla ég að gera fyrir minn bata?" Það komu ýmsar hugmyndir hjá konum, fara á Alanon fundi, stunda líkamsrækt, taka meðvirknina sem verkefni og vera bjartsýnar á Kjarnakonur. Þetta var þriðji fundurinn okkar og konur eru að kynnast og byrja að treysta. Það var stofnaður stýrihópur sem samanstendur af Arndísi Björnsdóttir Ísafirði, Soffíu Vagnsdóttir Bolungarvík, Sigríði Ragnarsdóttur Ísafirði og Rósu Ólafsdóttir Súðavík. Það var mikil samkennd á fundinum og líka hlegið saman.
Annar fundur Kjarnakvenna SÁÁ Vestfjarða var haldinn 1. desember í safnaðarheimili Ísafjarðarkirkju (en okkur hefur verið lofað aðstöðu þar án greiðslu) og kom séra Stína Gísladóttir prestur í Holti og hélt jólahugvekju. 9 konur mættu og var andrúmsloftið yndislegt. Konur eru að byrja að þora að tjá sig og aukning er á þátttöku kvenna í Alanon.
Helgina 19-20 nóvember komu Dóra og Súsanna fjöskylduráðgjafar frá SÁÁ og haldið var fjölskyldunámskeið á Friðarsetrinu Holi í Önundarfirði með 9 konum. Frábært námskeið og frábærir ráðgjafar. Konur voru mjög ánægðar og staðurinn var yndislegur.
Fyrsti fundur eftir stofnfund var haldinn 3. nóvember og mættu 14 konur af Vestfjörðum. Þær voru allar mjög ánægðar með stofnun Kjarnakvenna. Margar hverjar hafa ekki stundað alanon en gætu hugsað sér að koma á þennan fund. Hér eru miklir fordómar og í smæðinni vita flestir allt um alla. Rósa Ólafsdóttir stjórnaði fundi og sagði sögu Kjarnakvenna. Tilgangur með Kjarnakonum er að eyða fordómum og hvetja konur til að stunda Alanon og AA.
Stofnfundur Kjarnakvenna SÁÁ Vestfjarða var haldinn 14.október 2005 og er frásögn, ferðasaga og myndir inn á Kjarnakonum dagbók 2005.
|