SÁÁ
18. maí 2010 / 09:27
Senda á Facebook

Eftir hrunið sækja sprautufíklar af vaxandi þunga í rítalín

 

Eftir hrunið er það áberandi að örvandi vímuefnafíklar draga úr kókaínneyslu og sækja með auknum þunga í rítalín. Nú er svo komið að 56% þeirra sem eru að sprauta örvandi vímuefnum æð segjast nota rítalín og 36% sjúklinganna segja rítalín þeirra aðalefni.

 

Á síðasta ári greindust rúmlega 700 örvandi vímuefnafíklar á Sjúkrahúsinu Vogi. Þessir sjúklingar nota ýmist ólöglegt amfetamín, kókaín, E-pillur eða rítalín. Tæplega helmingur örvandi vímuefnafíklanna er að sprauta efnum í æð.

 

Á þessu ári er gerð sérstök athugun á neysluvenjum örvandi vímuefnafíklanna á Sjúkrahúsinu Vogi. Eftir fyrstu fjóra mánuðina kemur í ljós að rúm 60% sjúklinganna er að nota örvandi vímuefni og um 40 % sjúklinganna greinast fíknir í örvandi efni.

 

23% þeirra sem hafa notað örvandi vímuefni hafa sprautað þeim í æð. 56% þeirra nota til þess rítalín eða um 200 sjúklingar á ári.

 

Þegar þessar upplýsingar liggja fyrir ásamt því að rítalín gengur í vaxandi mæli kaupum og sölum á hinum ólöglega vímuefnamarkaði er ljóst að ávísun lækna á rítalín er komin úr böndunum.

 

 

Til baka...
 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...