Styrktarsjóður

Tilgangur Styrktarsjóðs SÁÁ er að styrkja fátæka alkóhólista til þess að greiða sinn hluta í áfengis- og vímuefnameðferð.

Könnun

Ætti SÁÁ að opna sérstakt fjölskyldu- og barnahús?

Ársrit 2007-2010. Gert er grein fyrir starfseminni undanfarin 3 ár og fyrstu áhrifum kreppunnar á meðferðarþjónustu og vímuefnaneyslu.

Pistlar

Senda á Facebook
7. júní 2010

Veikustu áfengis- og vímuefnafíklarnir í aukinni hættu

 

Þó að fyrstu áhrif hrunsins og kreppunnar virðist ætla að verða þær að úr vímuefnavandanum dregur má ekki líta fram hjá því að þjónustan við þá sem eru veikastir hefur minnkað hjá SÁÁ og fyrirhugað er að minnka hana enn frekar. Endurkomufólkið hefur það greinileg verra en áður ef litið er í sjúklingabókhaldið á Vogi og verður það fólk að sækja sér þjónustu í vaxandi mæli annað, einkum á bráðmóttökur sjúkrahúsanna.

 

Mikilvægt er við þær aðstæður að afla upplýsinga sem segja okkur hvort þessi breyting sé að stofna heilsu skjólstæðinga okkar í voða og minnka lífslíkur þeirra. Þarna er mikilvægt að skoða ótímabær dauðsföll, fjölda hættulegra fylgikvilla og fylgjast með biðlistum.

 

Góður mælikvarði á hvert stefnir í þessum málum eru ótómabær dauðsföll hjá áfengis- og vímuefnafíklum sem hafa verið á Vogi. Auðvitað deyja fleiri úr áfengis- og vímuefnafíkna ótímabært en þeir sem í gagnagrunninn eru skráir. Þessi skráning tekur þó til svo margra að hún segir okkur ákveðið og marktækt hvert stefnir.

 

Áfengis og vímuefnafíkn er alvarlegur sjúkdómur og það verður öllum ljóst þegar þeir skoða ótímabær dauðsföll hjá fíklum sem hafa verið á Vogi. Á undanförnum 10 árum hafa á milli 40 og 50 einstaklingar dáið ótímabært, eða fyrir 55 ára aldurinn, sem skráðir eru í gagnagrunninn. Þrjú ár hefur þessi tala farið yfir 50, árið 2000, 2005 og 2007. Við vitum ekki nánar úr hverju þetta fólk deyr en getum séð af öðru að háa talan fyrir 2000 og 2005 svarar til ungra vímuefnafíkla sem tóku of stóran skammt af morfíni. Talan fyrir árið 2009 er ásættanleg miðað við árin á undan þó að hlutfall þeirra sem eru 20-30 ára þegar þeir deyja sé nokkuð hátt.

 

Hafa verður í huga að þjónustuskerðing er ekki komin til framkvæmda sem nokkru nemur árið 2009 og að á árinu 2010 hafa verið boðaðar minni fjárveitingar til bráðamóttöku sjúkrahúsanna, sjúkraflutninga, löggæslunnar og sjúkrahússins Vogs. Þessi þjónustuskerðing bitnar vissulega á veikum vímuefnafíklum sem þurfa hvað mest á þessari þjónustu að halda. Það vekur því ugg, þótt allt of snemmt sé að segja hvernig árið 2010 mun endanlega koma út, að tölur um dauðsföll úr gagnagrunni Vogs fyrir fyrstu 4 mánuði ársins 2010 eru hærri en á vondu árunum eftir 2000.

 

Leiðari úr SÁÁ blaði 2010, 1.tbl

 

eftir Þórarin Tyrfingsson, yfirlækni á Vogi

 

meira
Til baka...
Er það svo?
- 7.6.2010 11:21:34 Sína tölur SÁÁ allan sannleikan þ.e.s. hvað með þá sem leita sér meðferðar við áfengis- og fíkniefnavanda annars staðar? Erfitt er að segja fyrir um ótímabær dauðsföll ef ekki er tekin heildarmyndin.
Jón Bragi
Ég er ekki sáttur við það að menn sem brjóta af sér aftur og aftur gagnvart lögum og eru í vímuefnaneislu,skuli notfæra sér Sáá með því að lofa betrun og bót og fara í meðferðir á vegum Sáá,skuli geta stunndað þetta og gera svo ekkert í sýnum málum,bara til þess að fá vægari refsingar og farið að stunnda sýna glæpamennsku aftur.Það er engin afsökun til fyrir þessa menn sem eru að eiðileggja fyrir öðrum sem vilja og þurfa á hjálp að halda.Sem styrkþeigi Sáá er ég alls ekki sáttur að lofa fólki að stunda þetta.
- 25.6.2010 00:21:30 Karl B Þórðarson.
Styktaraðili(afs prentvilla í grein)Karl.

 

SMAST-greining, Short Michican Alcoholism Screening Test, telur 13 spurningar sem sem hjálpa þér að ákvarða hvort áfengisneyslan er í lagi.
Spjallið
S
M
Þ
M
F
F
L
29
1
2
3
4

5
6
7
8
9
10
11

12
13
14
15
16
17
18

19
20
21
22
23
24
25

26
27
28
29
30
1
2

3
4
5
6
7
8
9

Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Leiðir til bata Reynsluspor Al-Anon, erfðavenjur og þjónustuhugtök 7-9
7.-9. spor. Þessi vinnubók er sett saman af reynslu, styrk og vonum hundruð Al-Anon félaga.

Minningarkort er einföld en áhrifarík leið til að sýna samúð í verki þegar orða er vant.