SÁÁ
14. mars 2011 / 09:02
Senda á Facebook

Bati frá áfengis- og vímuefnafíkn

Höfundur, Sigurður Gunnsteinsson, áfengis- og vímuefnaráðgjafi á sjúkrahúsinu Vogi, hefur starfað með alkóhólistum síðan í desember 1978.

 

Sjúklingurinn í afneitun

Skilgreining á bata frá alkóhólisma snertir ekki eingöngu alkóhólistann sjálfan heldur alla sem að málinu koma, hvort sem það er fjölskyldan eða fagfólk úti í samfélaginu. Það er mjög mikilvægt að sem flestir séu sammála um hvað sé bati frá áfengis- og vímuefnafíkn.

 

Þegar fólk er inni á sjúkrahúsinu Vogi eða í eftirmeðferð á stofnunum SÁÁ þá reynum við sem hér vinnum að útskýra fyrir fólki hvað bati frá sjúkdóminum sé í raun og veru. En þá erum við fyrst og fremst að tala um upphaf batans, eða bataferilsins. Sjúklingurinn er tiltölulega stutt hjá okkur, allavega hvað bataferlið varðar. Hér er alkóhólistinn kannski bara rétt fyrstu vikurnar eða mánuðina.

 

Þetta er upphafið að batanum, edrúmenskan sjálf. Viðkomandi hefur leitað sér aðstoðar og fengið hjálp til að koma sér út úr vímuefnaneyslunni. Það gerir fólki bara kleift að byrja bataferlið. Oft gleymist það að alkóhólismi er sjúkdómur þar sem sjúklingur hefur tilhneigingu til að neita því að hann sé veikur. Ef þú ert með annan sjúkdóm þá eru flestir fljótir til að hlaupa til og biðja um hjálp. En þegar áfengis- og vímuefnafíkn gegnir það öðru máli.

 

Skilningur okkar á bata

Bati er sjálfvalin og viðvarandi lífstíll sem einkennist af því að vera algáður, heilbrigður og ábyrgur þjóðfélagsþegn. Hér erum við að tala um bata frá því að vera háður áfengi eða öðrum vímuefnum. En hvað er bati umfram að vera ekki í neyslu? Hvað þýðir það í raun og veru að vera í bata?

 

Skilyrði númer eitt er auðvitað að stöðva alla neyslu á öllum vímuefnum, punktur. Það eru engin frávik. Ef þú ert með þennan heilasjúkdóm, alkóhólisma, þá ertu ekki að taka inn efnihleypa inn í þig efnum sem hafa þau áhrif að þú getir velt þessu líferni þínu úr sessi. Þessi skilningur þarf að ná festu úti í samfélaginu. Okkar fólk sem að fær meðferð og upplýsingar gerir sér grein fyrir þessu, með einhverjum undantekningum þó, en það er ekki þessi skilningur hjá öllum  sem að málinu koma. Við sjáum það því miður gerast að alkóhólisti fer kannski til læknis út af svefntruflunum eða kvíða vegna einhvers ástands og þá er oft  ávísað lyfjum sem manneskjan þolir ekki. Margir hafa farið þá leiðina aftur inn í harða neyslu. Og þetta er kannski gert með góðum ásetningi. Læknirinn ætlar kannski bara að hjálpa og treystir viðkomandi, segir alkóhólistanum að hann eigi bara að taka eina töflu fyrir svefninn, en það fer oft öðruvísi þegar alkóhólisti er annars vegar. Neyslumunstrið hans er þannig að tvær gera meira en ein, fjórar meira en tvær og svo rúllar það upp á sig.

 

Fimm ára ferli

Síðan er það tíminn. Hvað erum við að tala um í tíma þegar við tölum um bataþróun? Við tölum alltaf um bata sem þróunarferil, sem við gerum líka þegar vímuefnafíknin er annars vegar. Meðferðin er bara fyrsta skrefið í langri þróun. Alkóhólistanum er ekkert batnað eftir 40 daga meðferð. Hann hefur eftirvill aðeins náð einhverju lágmarks jafnvægi og varla það stundum. Alkóhólistinn þarf mikinn stuðning í upphafi ferilsins og bataferlið tekur langan tíma. Maður talar jafnvel  um þetta í misserum eða árum eða áraröðum.

 

Upphafið að algáðu líferni hefur verið skilgreint sem tímabil sem nemur frá einum mánuði til eins árs. Að það sé upphafstímabil batans. Og í því ferli eru verkefni sem viðkomandi þarf að vinna að ef vel á að vera. Svo kemur viðvarandi algáð líferni eftir þann tíma. Sem spannar þá frá einu til tveimur árum upp í fimm ár. Þá er vinnan að læra að lifa einhverju stöðugu  líferni. Og síðan kemur kannski það sem hægt er að kalla traust algáð líf. Við erum því í raun að tala um  fimm ára ferli.

 

Ef við berum þetta saman við sjúkdóminn sjálfan og hvernig hann getur leikið fólk þá er þetta ekkert fjarri lagi. Menn eru lengi að jafna sig, bæði líkamlega, sálarlega, félagslega, andlega og svo framvegis. Það eru afleiðingar og viðgerðir sem þurfa að fara fram á svo mörgum sviðum.

 

Gera meira en bara hætta

Alkóhólismi er krónískur sjúkdómur sem getur tekið sig upp aftur. Þá skiptir engu máli hvort þú ert búinn að vera í bata í eitt eða tvö eða tíu eða tuttugu ár. Ef alkóhólisti fer að fúska við batann sinn eftir að hafa lifað mjög traustu og algáðu líferni lengi er voðinn vís.

 

Það er mikilvægt að í batanum felist það að viðkomandi teygi sig eftir auknum lífsgæðum. Að alkóhólistinn stuðli að eigin heilbrigði og auki á gæði síns persónulega lífs. Hér horfum við til líkamlegrar og andlegrar heilsu. Það eru auðvitað til ýmsir staðlar yfir það hvað er gott heilbrigt líf og við leggjum áherslu á að fólk geri meira en bara setja tappann í flöskuna. Reglusemi og heilbrigði er hér lykilatriði. Hvort sem það er varðandi mataræði eða hreyfingu. Okkar fólk þarf að kunna að takast á við streitu og kvíða án þess að taka inn lyf. Algáð líferni er lífstíll og við höfum séð rosalegan árangur af því þegar okkar fólk tekur sig í gegn eftir að hafa orðið algáð. Það fer að endurmeta sín lífsgæði, hættir að reykja og svo framvegis.

 

Vöxturinn batasamfélagsins á Íslandi hefur haldist í hendur við árangurinn sem við höfum náð í meðferðinni hér á sjúkrahúsinu Vogi og eftirmeðferðarstofnunum SÁÁ. Fyrir þrjátíu árum voru bara þrjár eða fjórar AA-deildir á Íslandi en nú eru þær um tvö hundruð. Varanlegur bati frá áfengis- og vímuefnafíkn og regluleg fundasókn í þessu samfélagi helst í hendur.

 

Höfundur, Sigurður Gunnsteinsson, áfengis- og vímuefnaráðgjafi á sjúkrahúsinu Vogi, hefur starfað með alkóhólistum síðan í desember 1978.

 

"Á þeim rúmu þrjátíu árum sem ég hef starfað með alkóhólistum á Íslandi hafa batahorfur breyst frá því að vera mjög litlar yfir í að vera mjög miklar. Það er samt ekki hægt að horfa fram hjá þeirri staðreynd að enn deyja um 40-50 manns á ári vegna alkóhólisma.

 

Oft tölum við sem störfum við þetta um góðan bata en hvað er góður bati? Hvað þýðir það þegar þessi eða hinn er í góðum bata frá alkóhólisma? Í hverju er batinn fólginn? Fjölskylda alkóhólistans sjálfs veit að ef alkóhólistinn er ekki að drekka þá er allt í lagi, en það ekki endilega góð skilgreining á bata.

 

Þegar sjúkdómur er annars vegar, hvaða sjúkdómur sem er, þá skiptir máli að sem flestir sem að málinu koma viti hvað sé góður bati frá sjúkdóminum."

 

SÁÁ blaðið 2010, 1.tbl

 

 

 

Til baka...
 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...