SÁÁ
13. ágúst 2010 / 10:49
Senda á Facebook

20 þúsund undirskriftir

 

 

Í desember síðastliðnum afhentu aðstandendur SÁÁ þingmönnum yfir 20 þúsund undirskriftir frá Íslendingum sem skoruðu á stjórnvöld að endurskoða niðurskurð á framlögum heilbrigðisráðuneytisins. Enn eru blikur á lofti og horfur slæmar fyrir þetta ár.

 

Borgum 150 milljónir með sjúkrahúsrekstrinum

 

„Samkvæmt okkar áælunum lítur út fyrir að SÁÁ muni þurfa að borga 150 milljónir með sjúkahúsrekstrinum á þessu ári,“ útskýrir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi.

Í fyrra þurfti SÁÁ að greiða 75-80 milljónir með sjúkrarekstrinum en þá lá fyrir að framlög heilbrigðisráðuneytis myndu skerðast ennfremur árið 2010. Því hóf SÁÁ fólk baráttu gegn niðurskurðinum og söfnuðu félagar okkar yfir 20 þúsund undirskriftum og afhentu þingmönnum. Þeir tóku við undirskriftunum á Austurvelli 15. desember en létu það hafa lítil áhrif á sig.

 

„Það má búast við frekari skerðingu af hálfu ríkisins á næstu árum,“ segir Þórarinn en hann býst við að þurfa að spara 70-80 milljónir á þessu ári. „Slíkur sparnaður næst ekki nema með því að minnka þjónustuna og gera eðlisbreytingar á meðferðinni.“

 

Sjá SÁÁ blaðið í maí 2010

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.