SÁÁ
19. ágúst 2010 / 08:24
Senda á Facebook

Það voru eitt sinn feðgar...

Kristmundur Axel Kristmundsson

 

Kristmundur Axel Kristmundsson er ungur rappari sem vann Söngkeppni framhaldsskóla með lagi um pabba sinn sem féll 16. Júní 2008. Þeir höfðu búið saman tveir í Grafarvogi, edrú pabbi og strákurinn hans, í ellefu ár. Á einu bretti missti Kristmundur pabba sinn og heimilið sitt en hann býr nú hjá mömmu sinni og þakkar fyrir að pabbi sinn sé nú í meðferð í Svíþjóð.

 

„Pabbi var edrú í ellefu ár þar til hann féll 16. júní 2008,“ útskýrir rapparinn og tónlistarmaðurinn Kristmundur Axel Kristmundsson um tilurð lagsins Komdu til baka sem hann flutti í Söngkeppni framhaldsskóla og sigraði á dögunum.

„Pabbi, Kristmundur Sigurðsson, hafði átt sína vondu fortíð áður en við fórum að búa saman í Grafarvogi. Ég þekkti hann bara edrú og við vorum mjög nánir. Það voru bara við tveir í Grafarvogi. Feðgarnir.“

Og lagið lýsir þessu sambandi þeirra feðga og er mjög tilfinningaríkt. Það hefur algerlega slegið í gegn á Íslandi og þegar viðtalið var tekið stóð lagið í þriðja sæti yfir mest seldu lögin á Tónlist.is. Það hefur einnig átt fast sæti á vinsældarlista FM 957 og klifrað hátt á Lagalistanum sem mælir hvaða lög eru mest spiluð á Íslandi.

 

Einlægur rappari

Kristmundur flutti ungur inn á pabba sinn en mamma hans er líka alkóhólisti. Hún er nú, samkvæmt Kristmundi, búinn að vera edrú í bráðum áratug en hlutirnir æxluðust þannig að Kristmundur bjó alltaf hjá pabba sínum.

„Mamma er frábær og við búum saman núna ásamt systur minni. Þær hafa reynst mér ótrúlega vel og fjölskyldan mín er sterk þrátt fyrir allt sem á hefur gengið,“ segir Kristmundur en bæði mamma hans og systir starfa á heimili fyrir heimilislausa menn, sem er á Njálsgötu.

Hvað kemur til að þú sért svona einlægur rappari en ekki töffari eins og þeir eru svo oft?

„Ég hef alveg gefið út svona hörð lög líka en finnst samt mikilvægt að semja lög um eitthvað sem skiptir mig miklu máli,“ segir Kristmundur en í lögunum hans talar hann ekki niður til fólks og er ekkert fyrir að lofa dóp eða pening eins og segir í lagi hans, Illað, sem er vinsælt meðal ungs fólks:

„Rappa ekki um dóp og pening því hvorugt er kúl.“

 

Alkóhólismi í fjölskyldunni

Kristmundur er fæddur 1993 og ætti að fá bílpróf síðar á árinu. Hann er ekta Grafarvogsungmenni. Flutti ungur í Engjahverfið og gekk í Engjaskóla öll sín tíu grunnskólaár. Í dag er hann á almennri braut í Borgarholtsskóla og hangir mest með vini sínum Daniel Alvin en þeir byrjuðu að rappa saman fyrir fjórum eða fimm árum.

Nú er alkóhólismi allt í kringum þig. Hefurðu spurt sjálfan þig: Af hverju ég?

„Já, já. En ég pældi lítið í slíku fyrr en pabbi féll. Þetta var fullkomið líf sem við lifðum þannig að ég hafði engar áhyggjur. Það er hinsvegar ekki hægt að neita því að þetta er svoldið skrýtið hjá minni fjölskyldu því það er mikill alkóhólismi í fjölskyldunni,“ segir Kristmundur Axel en þessi kurteisi ungi maður skýtur síðan inn einu „afsakið orðbragðið“ og heldur svo áfram; „en nánast öll fokkings fjölskyldan mín hefur átt í vandræðum með áfengi og fíkniefni.“

 

Pabbi aftur edrú

Kristmundur er þakklátur fyrir að eiga edrú mömmu og pabba í dag. Hann gleymir því ekki að þakka fyrir hvað hann fékk gott uppeldi og tækifæri til að fá áhyggjulausa æsku með edrú pabba sem er nú kominn undir manna hendur í Svíþjóð.

„Hann er búinn að vera í meðferð úti í fjóra eða fimma mánuði og ég er á leiðinni í heimsókn til hans. Það verður gaman enda ekkert nema jákvæðir hlutir í gangi núna.“

Ömurlegar afleiðingar sjúkdómsins eru ofarlega í huga Kristmunds.

„Pabbi minn edrú er allt önnur manneskja en fíkillinn. Fyrir mér er þetta sitthvor maðurinn. Ég þekki pabba minn en ekki fíkilinn. Hann er enginn vinur minn. Sjúkdómurinn tekur öll völd og hann breytist í eitthvað skrímsli hreinlega,“ segir Kristmundur og bendir á að afleiðingarnar séu skelfilegar.

„Einn bróðir minn er í fangelsi fyrir morð. Annar bróðir minn er í fangelsi fyrir aðra minniháttar glæpi. Og pabbi minn sat í fangelsi fyrir morð fyrir mörgum árum.“

 

5000 vinir á Facebook

Viðbrögðin við lagi Kristmunds um pabba hans hafa verið með ólíkindum. Kristmundur hefur fyllt kvótann hvað vinafjölda varðar á Facebook, hann á fimm þúsund vini og yfir níuhundruð bíða eftir því að Kristmundur samþykki vinabeiðnina. Hann hefur einnig fengið mörg hundruð bréf frá krökkum sem hafa gengið í gegnum svipaða reynslu og hann eða eru að ganga í gegnum skelfilega hluti vegna alkóhólisma.

„Krakkar skrifa mér og segja sögu sína. Sumir þeirra búa við mikla erfileika vegna drykkju foreldra og ég fæ meira að segja bréf frá krökkum sem búa við heimilisofbeldi. Vandamálið er mjög stórt og veruleiki margra er mjög sár,“ segir Kristmundur

Finnst þér jafnaldrar þínir meðvitaðir um hversu alvarlegur sjúkdómurinn alkóhólismi getur verið?

 „Nei. Að mínu mati er of lítil umfjöllun um þessi mál og það má gera miklu betur í forvarnarstarfi hvað ungt fólk varðar. Mér þykir of lítil umfjöllun um afleiðingarnar,“ segir Kristmundur.

 

Á gott líf í dag

Síðustu tvö ár, síðan pabbi Kristmundar féll, hafa verið honum lærdómsrík. „En líka ömurleg. Þetta er búið að vera erfitt  og ég er mjög ánægður með að þetta sé allt á uppleið núna og mér líður vel í dag. Ég hef það mjög gott reyndar og á gott líf.“

Í sumar mun Kristmundur ferðast um landið og skemmta ásamt Haffa Haff, Erpi Eyvindarsyni, Friðriki Dór, Óla Geir og Júlí Heiðari. Hann segist spenntur fyrir sumrinu og taki því sem kemur. Hann ætlar líka að leggja sitt af mörkum hvað álfasölu SÁÁ og býst við að troða upp ásamt Bubba Morthens í tengslum við fjáröflun SÁÁ.

 

-MT

 

Sjá SÁÁ blaðið 2010 1. tbl

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.