Jenný Anna Baldursdóttir - viðtal
 |
|
Jenný Anna Baldursdóttir
"Ég var skelfingu lostin við að falla og þess vegna fór ég að blogga um hvernig var að vera edrú. " | |
Ofurbloggarinn Jenný Anna Baldursdóttir byrjaði að blogga til að halda sér edrú. Hún var nýkomin úr meðferð og hafði nægan tíma og var líka bara skíthrædd um að falla. Nú er hún einn af bloggurum Eyjunnar og fær um fimm þúsund heimsóknir á dag þegar best lætur.
Mikael Torfason kíkti í kaffi.
SÁÁ bjargaði lífi mínu
„Eftir að ég kom úr meðferð 2006 hafði ég allt í einu miklu meiri tíma en ég vissi hvað ég ætti að gera við,“ útskýrir Jenný Anna Baldursdóttir ofurbloggari um tilurð þess að hún fór að blogga. „Það var runnið af mér og vegna neyslunnar var ég orðinn sjúklingur, tímabundið. Ég hafði fengið sykursýki 1 og var búinn að missa mátt í fætinum og það var óvíst um hvort það kæmi aftur í hann kraftur. Svo ég sat eiginlega föst heima og hafði ekkert að gera.“
Og þetta byrjaði sem snúrublogg er það ekki?
„Jú, ég var skelfingu lostin við að falla og þess vegna fór ég að blogga um hvernig var að vera edrú. Ég var nær dauða en lífi þegar ég komst undir manna hendur hjá SÁÁ og vildi lifa,“ svarar Jenný en hún fékk mikil og góð viðbrögð við snúrublogginu.
„Fólk var mjög hrifið af þessu bloggi. Ég fékk mikið af kommentum á bloggið og fullt af tölvupóstum frá fólki sem vantaði upplýsingar eða ráð. Ég benti þeim auðvitað bara á fagfólk í þessum efnum. SÁÁ bjargaði lífi mínu.“
Allt öðrum að kenna
Eftir því sem tíminn leið þróaðist bloggið hennar Jenný úr því að vera blogg um edrúmennsku yfir í að vera um allt milli himins og jarðar. Í hruninu varð Jenný svo einn af vinsælustu bloggurum landsins enda mikil eftirspurn eftir hispurslausum skoðunum. Nú er svo komið að Jenný er að fá allt að 5000 heimsóknum á dag.
Þú ert kjaftfor uppreisnarseggur er það ekki?
„Jú, jú. Það má alveg segja það. Ég hef ofboðslega gaman að hrista upp í hlutunum. Reyni einmitt stundum að fara í taugarnar á til dæmis málhreinsunarmönnum á blogginu. Skít inn orðum eins og fokk og allskonar enskum orðum með íslenskri stafsetningu.“ | |
|
Jenný Anna er líka pólitísk og var flokksbundinn Allaballi á sínum tíma. Hún hefur sterkar skoðanir á hvað er að gerast í landinu okkar. „Að fylgjast með þjóðmálunum er eins og að vera á sveppum og horfa á Fellini bíómynd,“ segir hún og hlær.
„Æi, stundum er samt voða leiðinlegt að horfa upp á hversu erfitt fólk á með að viðurkenna mistök. Þetta fólk er eins og maður var sjálfur áður en maður fór í meðferð. Það var allt öðrum að kenna og maður var svo mikið fórnarlamb.“
| |
Gardínufíkill
„Þótt ég bloggi mikið um þjóðmálin núna er ég alltaf með edrúmennskuna mína uppi á borðinu, líka í blogginu. Mér finnst það bara vera spurning um heiðarleika,“ segir Jenný. „Þetta er bara ég og þótt ég sé ekkert að troða því upp á fólk þá finnst mér mikilvægt að vera ekki með neinn feluleik.“
Jenný hefur aðeins fengið eitt bakslag í edrúgönguna sína sem hófst á Vogi fyrir fjórum árum. Ári eftir að hún náði að verða edrú slasaðist hún og þurfti að fara á lyf og fór því strax á Vog en það er þjónusta sem alkóhólistum og fíklum býðst því oft getur þeim reynst erfitt að neyðast til að taka lyf.
| |
|
„Ég var líka aðallega pillusjúklingur. Labbaði varla framhjá lyfjaskápnum öðruvísi en að bæta á mig nokkrum pillum,“ útskýrir Jenný og hlær að öllu saman í dag enda finnst henni mikilvægt að ná til kvenna í svipaðri stöðu og hún var í á sínum tíma.
En hvað kemur til að þú farir svona seint í meðferð?
„Ég byrjaði mjög seint að drekka. Drakk sósjalt kannski þegar ég var með stelpurnar mínar ungar og hafði tekið einhverjar rispur áður en ég gifti mig en þetta byrjaði mjög seint hjá mér. En þegar það loksins byrjaði var ég eins sorgleg birtingarmynd af gardínufíkli og hægt er að hugsa sér.“
| |
Djöfull er þetta gott
Jenný sér ekki eftir að hafa farið og leitað sér hjálpar enda var hún mjög langt leidd.
„Ég var fársjúk og neyslan var farin að hafa áhrif á minnið mitt, ég hafði fyrir löngu gleymt öllum símanúmerum og ég laug stöðugt og það var voru allir að gefast upp á mér þegar ég fór loksins á Vog. Ég þorði varla að fara út úr húsi og var orðin spikfeit og leið mjög illa.“
| |
|
Stelpurnar hennar Jenný, sem eru fæddar frá 1970-1980, voru líka farnar að gefast upp á henni. En þetta eru flottar stelpur sem Jenný er afar stolt af. Sú elsta er lögfræðingur, sú næstelsta framkvæmdarstjóri í London og sú þriðja er að læra sagnfræði við Háskólann.
„Það er eiginlega óhugnanlegt hvað ég er ánægð með lífið núna. Ég er enn að vakna á morgnana og segja við sjálfa mig: Djöfull er þetta gott! Þetta einfaldar náttúrulega alla lífsins hluti að vera edrú. Þetta er allt annað líf og snýst kannski fyrst og síðast um ábyrgð.“
| |
Læknaritari með makka
En hvað kemur til að þú sért svona mikil nútímamanneskja, á blogginu og öll í tölvum og slíku?
„Ég hef alltaf haft áhuga á tölvum. Á sínum tíma starfaði ég sem læknaritari á landspítalanum og var ein af þeim fyrstu, ef ekki fyrst læknaritarinn, sem fékk makka. Það breytti ofboðslega miklu en ritarastarfið ýtti auðvitað undir þennan tækniáhuga,“ útskýrir Jenný en það hefur margt á daga hennar drifið.
| |
|
Hún Jenný var líka um tíma ritari hjá Aðalverktökum („komminn sjálfur!“) og svo bjó hún í Svíþjóð í fimm ár en flutti heim út af stelpunum. Fannst einhvern vegin eins og þær ættu að fá íslenska menntun.
„Ég hugsa samt oft til þess hvað það var gott að búa þarna úti. Auðvitað er Ísland ekki versti staður í heimi en það var ótrúlega gott að búa í Svíþjóð.“
| |
Þakklæti ofarlega
Foreldra Jennýjar voru reglufólk en hún ólst hinsvegar upp við alkóhólisma hjá frænda sínum því Jenný ólst upp hjá langömmu sinni og syni hennar. Fólki fæddur 1899 og 1879.
„Þetta var yndislegt fólk, fordómalaust, víðsýnt og sjálfmenntað. En hann var mikill túramaður og kannski er ég þess vegna prótótýpan af meðvirkri manneskju.
| |
|
Ég sogaði alveg til mína alkana áður en ég byrjaði sjálf að drekka,“ útskýrir Jenný á sinn einlæga og glaðlega hátt..
Viltu segja eitthvað að lokum?
„Já, ég vil bara þakka SÁÁ fyrir að bjarga lífi mínu. Þarna er saman komin mikil þekking og kunnátta. Það er því svo sorglegt að SÁÁ þurfi sífellt að vera í tilvistarbaráttu eftir allan þennan tíma.“
| |
Sjá SÁÁ blaðið 2010 1.tbl