9. september 2010 / 08:07
Meðferðin og starfsfólkið

Frá því að meðferðarstarf SÁÁ hófst hefur meðferðin tekið miklum breytingum (sem gert er grein fyrir í ársskýrslu, kaflanum um meðferð SÁÁ). Umfang meðferðarinnar hefur líka breyst. Fjöldi þeirra sem kom til SÁÁ til afeitrunar varð strax um 1000 árið 1979 og hélst þannig þar til Vogur tók til starfa. Þar voru heimsóknir tæplega 2000 fram til ársins 1999. Eftir að Vogur var stækkaður hafa heimsóknir verið 2200 til 2300. Á sama tíma verður það æ fátíðara að fólk sé afeitrað á almennum sjúkrahúsum og öðrum heilbrigðisstofnunum. Geðdeild Landspítalans hefur þó afeitrað svipaðan fjölda sjúklinga allt frá 1980 en einbeitt sé meira og meira að því að afeitra fólk sem jafnframt áfengis- og vímuefnafíkn á við geðsjúkdóma að stríða.
Líklega þarf að afeitra um 2500 einstaklinga á Íslandi á hverju ári. Sumir þessara einstaklinga þurfa jafnvel að koma oftar en einu sinni á árinu. Starfið á Vogi hefur tekið miklum breytingum frá því sem áður var. Með vaxandi ólöglegri vímuefnaneyslu, sprautufíkn og dagdrykkju hinna eldri hefur þurft að sinna í æ ríkara mæli, eitrunum og líkamlegum veikindum og fylgikvillum vímuefnafíknarinnar. Sjúklingarnir eru veikari en áður var og margir miklu eldri. Þetta hefur kallað á aukna vinnu og álag hjá læknum, sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum. Unglingameðferðin og allur sá fjöldi unglinga sem komið hefur á Vog hefur einnig gert auknar kröfur til starfsfólksins.
Hafa verður í huga að það er ekki bara vímuefnaneysla fíklanna sem verður flóknari og margbreytilegri heldur hefur landsmönnum einnig fjölgað mikið frá því að sjúkrahúsið Vogur tók til starfa. Á biðlistanum á Vogi hafa gjarnan verið 200 til 300 manns í gegnum árin. Á árinu 2009 var að jafnaði 100 til 200 sjúklingar á biðlista. Vegna hrunsins og kreppunnar virðist hafa dregið eitthvað úr áfengis- og vímuefnavandanum að minnsta kost í bili. Þetta veldur því að á fyrstu mánuðum ársins 2010 voru að jafnaði 80-100 einstaklinga á biðlista þrátt fyrir að dregið hafi verið úr þjónustunni á Vog og heimsóknum þar fækkað.
Fjöldi meðferðarrýma fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga til geðrænnar endurhæfingar og hugrænnar afferlismeðferðar í 4 vikur eftir vogsdvöl hefur haldist óbreyttur frá árinu 1982 þrátt fyrir að í sjúklingahópnum séu miklu fleiri sjúklingar sem eru mjög ungir og sjúklingar sem eiga við erfiða vímuefnafíkn og sprautufíkn að stríða.
Meðferðin fyrir aðstandendur hefur aukist nokkuð með tilkomu foreldrafræðslu og meðferðar fyrir foreldra ungra vímuefnafíkla. Meðferðin sem áður var aðallega sniðin að þörfum maka vímuefnafíklanna hefur í vaxandi mæli beinst að foreldrum ungra vímuefnafíkla.
Starfsfólk SÁÁ sem vinnur að meðferðinni býr nú yfir miklu meiri þekkingu og reynslu en áður var. Hjá samtökunum vinna 4 læknar sem allir hafa unnið hjá samtökunum í meira en 10 ár og aflað sér fræðslu og handleiðslu í vímuefnalækningum. Það sama gildir um sjúkrakliða og hjúkrunarfræðinga sem flestir hafa unnið lengi hjá SÁÁ og aflað sé mikillar reynslu og þekkingar á þessu sviði. Starf áfengis- og vímuefnaráðgjafans hefur tekið stakkaskiptum og skýrt er frá því í kaflanum um starf áfengis- og vímuefnaráðgjafans.
Sjá ársskýrslu SÁÁ