SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?
Pistill / 
11. október 2011 / 06:54
Senda á Facebook

Áfengissýki og eldri borgarar

                              Sigurður Gunnsteinsson
Sigurður Gunnsteinsson skrifar

 

Á Íslandi búa rúmlega 34.000 karlar og konur sem eru í aldurshópnum 65 – 85 ára. Aukin áfengisneysla og röng lyfjanotkun er orðinn stór vandi í þessum hópi, bæði hér á landi og í löndum Evrópu og Bandaríkjum. Hópurinn fer stækkandi og vandinn eykst að sama skapi.

 

Eitt af því sem samfélagið skammast sín fyrir í laumi er meðferð vegna áfengis- og lyfjaneyslu og tilheyrandi umönnun okkar elstu borgara. Þegar aldurinn færist yfir og virk þáttaka í þjóðfélaginu minnkar eru hinir eldri oft settir til hliðar og þeim ekki sinnt sem skyldi – eru jafnvel skilin eftir ein og gengið á réttindi þeirra. Eldri borgarar í okkar samfélagi hafa hækkandi tíðni af áfengis- og lyfjavanda, sem fer að mestu leyti fram lítt sýnilegur öðrum.

 

Eldri borgarar þróa áfengis- og lyfjavanda með margs konar hætti. Þeir þurfa glíma við einmannaleika og örvæntingu, kvíða og vonleysi og þola sorg vegna ástvinamissi. Þeir takast á við líkamlegan sársauka af margvíslegum toga, eins og t.d stoðkerfisvanda sem minnkar hreyfigetu sem aftur veldur leiða og þunglyndi. Þannig geta ýmis dagleg vandamál orðið vítahringur í áfengis- og lyfjavímu ef lykilvandinn er ekki greindur og réttri meðferð komið á.

 

Rétt meðferð eldri borgara skiptir máli

Hvers vegna hefur vandinn farið fram hjá okkur ?

 

Tilhneiging okkar er að gleyma að fylgjast með okkar elsta fólki. Við verðum sinnulaus um hvað verður um fólkið, hvert það fer og hvað það sér og upplifir. Af þeim sökum verða vandamál þeirra minna sýnileg og fara fram og vaxa án vitundar okkar hinna. Afneitun vandans verður allsráðandi - sem er einmitt algengt þegar áfengis- og lyfjanotkun er annars vegar.

 

Margar ástæður gera það að verkum að þessi sérstaki vandi er svona illa greindur og að ekki næst fram rétt meðferð. T.d. er handarbrot eftir byltu vegna ölvunar meðhöndlað, en aðalástæðan fyrir byltunni, ofneysla áfengis, röng lyfanotkun eða jafnvel misnotkun á lyfjum, er ekki greind. Er það fyrir sakir kurteisi?

 

Eldri borgarar stunda ekki mikið bari eða sitja að sumbli á veitingahúsum. Þeir drekka frekar heima í einangrun sem gerir öðrum erfiðara fyrir að sjá vandann og stuðla að einhverju aðhaldi eða koma til hjálpar. Rjúfa þarf þessa einangrun. Eldri borgarar eiga heldur ekki hættu á að missa vinnu vegna drykkju. Flestir hafa lokið sínum starfsferli vegna aldurs sem er þáttur sem kemur í veg fyrir að vandinn verði sýnilegri.

 

Mjög alvarlegir áhættuþættir tengjast drykkju eldri borgara t.d. minnisglöp vegna áfengis- og lyfjaneyslu sem bætist við minnkandi hugarfarslega getu sem verður vegna öldrunar. Þeir gleyma að slökkva eldavélinni eða ofninum. Gleyma straujárninu í sambandi á brettinu og valda brunahættu. Minnkandi aksturshæfni sem fylgir öldrun versnar hraðar vegna drykkju og rangrar lyfjanotkunar ofl. ofl.. Slysahætta í heimahúsum er algeng meðal hinna eldri. Sambland öldrunar og lyfja- og áfengisneysu er oft aðalorsök slysa þó menn kjósi að líta framhjá þeirri staðreynd.

 

Það sem þarf að vita um meðferð

Til að stöðva vandann þarf íhlutun sem hefur að markmiði að hjálpa þeim sem eru í vanda til að fá rétta meðferð. Áfengisvanda hjá gömlu fólki ætti ekki að setja síðast á listann þegar málin eru skoðuð í heild sinni. Meðferð fyrir eldri borgra á að hefjast strax og vandinn er ljós. Fólk þarf að vera vakandi og kannast við einkennin í upphafi. Drekkur viðkomandi aleinn? Drekkur viðkomandi öllum stundum á daginn? Notar hann áfengi sem lyf? Eru tíðar ferðir í vínbúðina? Kaupir einhver ókunnugur vínið?

 

Meðferð fyrir eldri borgara þarf að taka sérstaklega til þarfa þeirra og getu. Það dugar ekki að ætla þeim stað í hefðbundinni áfengis- og vímuefnameðferð þar sem álagið yrði of mikið. Munum að vandinn yrði greindur fyrr og lífsgæði ástvina myndu aukst til muna ef við sýndum öldruðum meiri virðingu og athygli. Það gæti minnkað þá eyðu í lífsgæðum sem neysla áfengis framkallar oft.

 

Ekki er lengur hægt að horfa framhjá álagi á heilbrigðiskerfið í heild sinni vegna áfengisvanda eldri borgara. Nauðsynlegt er að gera áætlun um að koma þessum sérstaka vanda í réttan farveg og auka lífsgæði eldri ástvina okkar með því að leiðbeina þeim í rétta meðferð sem er sniðin að þeirra þörfum.

 

SÁÁ meðferðin fyrir þá eldri hjálpar þeim að komast í gegnum erfiða tíma sem áfengisneysla og lyfjanotkun hafa skapað eða gert óbærilega. SÁÁ áttar sig vel á sérþörfum eldri borgara þegar þessi vandi er annars vegar. Aðrar heilbrigðisstéttir, félagsþjónustan og öldrunarþjónustan þurfa að hjápast að og styðja skjólstæðinga sína til að viðhalda góðum lífsgæðum án áfengis.

 

Munum að það er mikill fengur að auka lífsgæði sín um mörg ár með alsgáðu líferni þar sem hæfileikar og lífsreynsla fá að njóta sín til fullnustu á efri árum.

 

Höfundur er dagskrárstjóri hjá SÁÁ

 

 

Til baka...

 

 

 

 Félag ungs edrúfólks

UNG-SÁÁ er nýtt félag ungs edrúfólks á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum uppá-komum og hvetur ungt fólk til að koma og kynna sér starfsemina.

 

Ertu í vanda? Spurningar og svör

 Úr myndaalbúmi SÁÁ

 

 

 

 

   

 Reynslusögur á RÚV !

Frábær viðtöl á Rás 2 við Guðlaugu Kjartansdóttur og Arnar Eggert. Einnig við Önnu Jónu Ármannsdóttur og Valgeir Skagfjörð. Við mælum með þessu.

 

Bankað upp á

Í þættinum Bankað upp á heimsækir Erla Tryggvadóttir

göngudeild SÁÁ í Efstaleiti í Reykjavík.