SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?
Pistill / 
16. desember 2011 / 12:56
Senda á Facebook

Áfengi hækkar; afbrotum fækkar

Gunnar Smári Egilsson skrifar

 

Jöfn og markviss lækkun áfengisverðs öll fyrstu átta árum aldarinnar og síðan snögg hækkun áfengisgjalds í kjölfar Hrunsins gefur einkar gott tækifæri til rannsókna á tengslum útsöluverðs og neyslu; og síðan tengsl neyslu og kostnaðar samfélagsins vegna ofneyslu og alkóhólisma. Um þessar verðbreytingar var fjallað í frétt hér á vefnum nýlega. Nýjar upplýsingar frá lögreglunni benda síðan til að tengsl áfengisverðs og afbrota séu skýrari en margur kynni að ætla.

 

Í nýjum Afbrotaskýrslum kemur fram að mál sem tengjast ölvun við akstur hafi verið 1.018 á fyrstu tíu mánuðum þessa árs. Það er ívið minna en á sama tíma í fyrra en mun minna en fyrstu tíu mánuði 2009 og munar þar 223 málum. Ef við horfum aftur til síðustu þriggja áranna, sem áfengi var mjög ódýrt (2006-2008) sést að mál vegna ölvunar við aksturs voru þá 1.732 að meðaltali fyrstu tíu mánuði ársins.

 

 

Samkvæmt þessu hefur hækkun áfengisverðs fækkað málum vegna ölvunar um 714 á tíu mánaða tímabili eða um 41 prósent.

 

Nú kunna að liggja þarna aðrar ástæður að baki; til dæmis slakari vinna lögreglunar; en fátt bendir til að svo sé.

 

Þetta þarf hins vegar að kanna og skoða nánar. Það þarf einnig að áætla hversu stórt hlutfall drukkinna ökumanna eru handteknir. Ef það er fjórðungur þá má segja að hækkun áfengisverðs hefi fækkað drukknum ökumönnum í umferðinni um rúmlega níu á hverjum degi ársins. Það er gott til þess að vita.

 

Þegar litið er til annara afbrotaflokka sést að í ár eru eignarspjöll 19 prósent færri en að meðaltali fyrstu tíu mánuði áranna 2006-2008 og innbrot eru 27 prósent færri (þeim fjölgaði hins vegar fyrst eftir Hrun).

 

 

Fíkniefnabrot eru fleiri í ár en í fyrra og þau voru líka fleiri í fyrra en hitteðfyrra. Þessi þróun fellur ágætlega að verðþróun á ólöglegum vímuefnum, sem greint er frá í áðurnefndri frétt á saa.is. Í henni kemur fram að fyrst eftir Hrun hækkaði verð á ólöglegum vímuefnum en það lækkaði síðan fljótlega aftur; líklega vegna minnkandi eftirspurnar. Þessi verðlækkun virðist hafa aukið umsvifin eitthvað — alla vega eru fleiri gripnir við neyslu eða sölu efnanna nú en undanfarin misseri. Þegar fíkniefnabrotin í ár eru borin saman við árin fyrir Hrun, þegar verð á vímuefnum var líka lágt og áfengisverð í sögulegum botni; kemur í ljós að fíkniefnamálin nú eru færri en meðaltal þessara ára. Vímuefnaneyslan virðist því enn vera minni en fyrir Hrun og umfang markaðarins minna.

 

Tengsl ofbeldisglæpa og áfengisneyslu hefur lengi verið kunn. Þegar litið er til upplýsinga lögreglunnar um líkamsárásir sést að þeim hefur fækkað með hækkun áfnegisverðs og minnkandi neyslu.

 

 

 Á fyrstu tíu mánuðum þessa árs voru líkamsárásir 867 en á sama tíma árin 2006-2008 voru þær 1.072. Líkamsárásir voru því 205 færri fyrstu tíu mánuði þessa árs en síðustu ár ódýrs áfengis — eða 19 prósent færri. Dýrt áfengi leiðir því til skárri heims.

 

Eins og áður sagði sýnir þessi samanburður að þörf er á að rannsaka þessi tengsl betur. Þessi samanburður gefur sterkar vísbendingar um tengsl áfengisverðs, neyslu og afbrota — og hann sýnir einnig að fullyrðingar um að heimabrugg eða landasala vegi upp minnkandi sölu hjá ÁTVR á sér enga stoð í raunveruleikanum. Þessi samanburður sýnir einnig hversu víðtæk og neikvæð áhrif áfengisneyslu eru í samfélaginu og hversu mikil ábyrgð hvílir á herðum þeirra sem marka verðstefnuna.

 

Höfundur er formaður SÁÁ

 

 

 

Til baka...

 

 

 

 Félag ungs edrúfólks

UNG-SÁÁ er nýtt félag ungs edrúfólks á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum uppá-komum og hvetur ungt fólk til að koma og kynna sér starfsemina.

 

Ertu í vanda? Spurningar og svör

 Úr myndaalbúmi SÁÁ

 

 

 

 

   

 Reynslusögur á RÚV !

Frábær viðtöl á Rás 2 við Guðlaugu Kjartansdóttur og Arnar Eggert. Einnig við Önnu Jónu Ármannsdóttur og Valgeir Skagfjörð. Við mælum með þessu.

 

Bankað upp á

Í þættinum Bankað upp á heimsækir Erla Tryggvadóttir

göngudeild SÁÁ í Efstaleiti í Reykjavík.