SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?
Pistill / 
30. apríl 2012 / 07:58
Senda á Facebook

Álfasala SÁÁ; mikilsverðasta fjáröflunin síðan 1990

Þetta verða meginverkefni Álfsins á næstunni; að byggja upp sérstaka barna- og fjölskyldudeild sem styðja mun við endurreisn fjölskyldna sem eru í vanda vegna áfengis- og vímuefnasýki.

 

Álfurinn byggði upp unglingadeildina

Álfurinn er mikilsverðasti þátturinn í fjáröflun SÁÁ. Frá því að sala á honum hófst árið 1990 hafa hreinar tekjur samtakanna vegna hans verið um 430 milljónir króna. Þessir fjármunir hafa staðið til dæmis undir uppbyggingu unglingadeildarinnar að Vogi, starfsemi fjölskyldumeðferðarinnar og gert SÁÁ fært að þróa úrræði fyrir börn alkóhólista, ungmenni og fjölskyldur.

 

SÁÁ rekur spítalann Vog, meðferðina á Vík og Staðarfelli og göngudeildarþjónustu í Efstaleiti og á Akureyri með þjónustusamningum við Sjúkratryggingar Íslands. Þessir samningar standa þó aðeins undir hluta af rekstrinum. Mismunurinn er greiddur af tekjum samtakanna frá Íslandsspili, félagsgjöldum og öðrum fjáröflunum — og þar er álfasalan mikilvægust.

 

Án álfasölunnar hefði SÁÁ ekki getað mótað starfsemi sína að breyttum þörfum sjúklingahópsins. Samningarnir við ríkið miðast í raun við stöðuna eins og hún var fyrir einum eða tveimur áratugum. Eigin tekjur samtakanna eru því lykillinn að því að SÁÁ hefur tekist að byggja upp fjölþætta og góða meðferð fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga.

Þetta sést glöggt þegar litið er yfir söguna. Í fyrstu var boðið upp á aðeins eina tegund meðferðar. Þegar í ljós kom að hún dugði ekki öllum var bætt við meðferð fyrir endurkomufólk, svokölluð víkingameðferð. Frá því að álfasalan hófst 1990 hefur verið stofnað til sérstakrar kvennameðferðar og um síðustu aldamót var byggð ungmennadeild við Vog og sérstök unglingameðferð mótuð. Það hefði ekki verið mögulegt nema vegna góðs stuðnings almennings í gegnum álfasöluna.

 

Að undanförnu hefur komið í ljós að félagsleg staða ungs fólks sem kemur úr meðferð hjá SÁÁ er mun

 

 

 

lakari en var á fyrr á árum. Til að mæta þessu þarf stórátak. Þá hefur líka komið í ljós í nýlegum rannsóknum SÁÁ hversu mikil fjölskyldulægni er í áfengis- og vímuefnasýki. Þetta kallar á breytt vinnubrögð og mun meiri áherslu á starf með fjölskyldum og stuðningi við unga foreldra.

 

Þetta verða meginverkefni Álfsins á næstunni; að byggja upp sérstaka barna- og fjölskyldudeild sem styðja mun við endurreisn fjölskyldna sem eru í vanda vegna áfengis- og vímuefnasýki.

 

 

 

 

Til baka...

 

 

 

 Félag ungs edrúfólks

UNG-SÁÁ er nýtt félag ungs edrúfólks á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum uppá-komum og hvetur ungt fólk til að koma og kynna sér starfsemina.

 

Ertu í vanda? Spurningar og svör

 Úr myndaalbúmi SÁÁ

 

 

 

 

   

 Reynslusögur á RÚV !

Frábær viðtöl á Rás 2 við Guðlaugu Kjartansdóttur og Arnar Eggert. Einnig við Önnu Jónu Ármannsdóttur og Valgeir Skagfjörð. Við mælum með þessu.

 

Bankað upp á

Í þættinum Bankað upp á heimsækir Erla Tryggvadóttir

göngudeild SÁÁ í Efstaleiti í Reykjavík.