SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?
Pistill: Valgerður Rúnarsdóttur / 
13. maí 2012 / 09:47
Senda á Facebook

Það er bati í minni fjölskyldu!

Valgerður Rúnarsdóttir, læknir

Eftir Valgerði Rúnarsdóttur

 

"Áfengissýki litar sumar fjölskyldur sterkum litum, með fíkn í önnur vímuefni í bland."

Fíknsjúkdómurinn er fjölskyldusjúkdómur, já, svo sannarlega. Við þurfum ekki vísindin til að segja okkur það. Brjóstvitið dugir. Fjölskyldulægni fíknsjúkdómsins er augljós þegar við lítum í kringum okkur. Áfengissýki litar sumar fjölskyldur sterkum litum, með fíkn í önnur vímuefni í bland.

 

Aðstandendur í slíkum fjölskyldum eru þó fleiri en þeir fíknu, og eru oft á tíðum þjakaðir vegna sjúkdómsins í fjölskyldunni.

 

Vísindin hafa þó kennt okkur mikið um fíknsjúkdóminn. Við vitum að hann er heilasjúkdómur, vegna taugalífeðlisfræðilegra breytinga sem verða í heila og þær breytingar verða vegna áhrifa erfða og umhverfis.

 

Hvernig er það þá, getum við vitað fyrirfram hvort við munum þróa fíknsjúkdóminn? Eru vísindin komin svo langt? Nei, því miður. Áfram þurfum við að fá einkenni, afleiðingar, til að greina þennan vanda.

 

Ef fíknsjúkdómurinn er í fjölskyldunni erum við í aukinni áhættu. Hvernig má þá vara sig á honum? Öruggasta leiðin er auðvitað bindindi frá öllum vímugjöfum alltaf! Þá þróast auðvitað ekki fíkn í vímuefnið.

 

Önnur góð leið, ef sjúkdómurinn er í fjölskyldunni, er að bíða með að byrja, og vera þá komin til meiri þroska ef sjúkdómurinn þróast þegar neysla hefst. Síðan er það að kynna sér vel þennan sjúkdóm ef hann er í fjölskyldunni, þekkja einkenni hans og þróun, leita upplýsinga um hann. Þannig má þekkja einkennin snemma í þróuninni og grípa fyrr inn í ef á þarf að halda. Það er það mikilvægasta, að taka ábyrgð á vandanum um leið og hann er ljós, leita sér aðstoðar til að ná bata sem fyrst og vinna að langvarandi bata.

 

Þeir sem þekkja til vandans og fá um hann réttar upplýsingar hafa önnur tök á því að eiga við hann, heldur en sá sem litla vitneskju hefur um sjúkdóminn, hans einkenni og afleiðingar. Viðbrögðin þurfa ekki að litast af fordómum, særindum og ásökunum, heldur geta verið af ábyrgð.

 

Við sjáum oft ánægjulegar afleiðingar þess að það er „bati í fjölskyldunni“. Ungir einstaklingar koma oft snemma til meðferðar einmitt vegna þess að það eru einhverjir fjölskyldumeðlimir í bata frá fíknsjúkdómnum. Þeir hafa getað gert grein fyrir vandanum við sitt fólk, kennt þeim um hann, hvaða einkenni hann gefur, hvernig má þekkja fíknsjúkdóm frá annarri neyslu, o.s.frv. Þetta getur leitt til þess að ungur sér fyrr vanda sinn en annars yrði. Auk þess sem fyrirmyndin er að sjálfsögðu mikil hvatning.

 

Það er mikils virði að greina fíknsjúkdóminn snemma til að grípa inn í til bata. Ef spara má ár í neyslu hjá einstaklingi með fíknsjúkdóm er mikið unnið. Það er einmitt það sem hægt er að gera með því að miðla áfram. Þeir sem eru í bata og þeir sem þekkja sjúkdóminn geta verið beint og óbeint miklir áhrifavaldar, innan sinnar fjölskyldu og meðal sinna nánustu.

 

Þannig er ekki alslæmt að vera í mikilli „alkafjölskyldu“ heldur getur verið mjög hvetjandi að vera í „batafjölskyldu“. Eitthvað til að vinna að fyrir allar barnafjölskyldurnar okkar, foreldra sem koma í meðferð og eldri systkini.

 

Höfundur er læknir hjá SÁÁ.

Til baka...

 

 

 

 Félag ungs edrúfólks

UNG-SÁÁ er nýtt félag ungs edrúfólks á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum uppá-komum og hvetur ungt fólk til að koma og kynna sér starfsemina.

 

Ertu í vanda? Spurningar og svör

 Úr myndaalbúmi SÁÁ

 

 

 

 

   

 Reynslusögur á RÚV !

Frábær viðtöl á Rás 2 við Guðlaugu Kjartansdóttur og Arnar Eggert. Einnig við Önnu Jónu Ármannsdóttur og Valgeir Skagfjörð. Við mælum með þessu.

 

Bankað upp á

Í þættinum Bankað upp á heimsækir Erla Tryggvadóttir

göngudeild SÁÁ í Efstaleiti í Reykjavík.