SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?
14. maí 2004 / 09:14
Senda á Facebook

Kjarnakonur SÁÁ selja álfinn í Kringlunni 13-15 maí

Kjarnakonur SÁÁ hafa tvö undanfarin ár tekið virkan þátt í að selja álfinn og gefið allan ágóðan af sölunni til tækjakaupa fyrir sjúkrahúsið Vog. Kjarnakonur SÁÁ er fjölmennur hópur kvenna sem hittast vikulega til að fræðast um sjúkdóminn alkóhólisma og styðja við konur sem vilja ná fá bata við alkóhólisma eða meðvirkni. Kjarnakonur samanstanda af óvirkum alkóhólistum, dætrum, mæðrum eða mökum alkóhólista eða konum sem áhuga hafa  á málefninu. 

SÁÁ hefur boðið upp á áfengis-og vímuefnameðferð s.l. 27 ár með góðum árangri. Kjarnakonur hafa  flestar notið þjónustu SÁÁ og vita að þúsundir einstaklinga hafa náð árangri og gengur vel að viðhalda bata sínum. Í dag er enn brýnna en nokkru sinni fyrr  að geta boðið áfengis-og vímuefnafíklum áfram upp á meðferð sem rekin er af fagfólki. Því þrátt fyrir öflugt forvarnarstarf í skólum og félagsmiðstöðvum og herta dóma í fíkniefnamálum, eykst þörfin fyrir meðferð ár frá ári.

Þegar einstaklingar leita sér aðstoðar hjá SÁÁ  er hægt að bregðast fljótt og vel við þeirri beiðni. Einstaklingar geta sjálfir hringt og óskað eftir aðstoð. Unglingar og þau sem ekki hafa verið í meðferð áður komast mjög fljótt inn á Vog.
 
Áfengisráðgjafar eru að störfum á göngudeild  Vogs og geta tekið fólk í viðtöl samdægurs. Í auknum mæli er gripið til bráða innlaga m.a. vegna slæms líkamlegs ástands. Þá þarf að hefja lyfjameðferð til að slá á fráhvarfseinkenni. Það er nú einu sinni þannig að fólk hættir ekki bara neyslunni þegar nóg er komið. Áfengis-og vímuefnafíkn er  langvinnur sjálfstæður sjúkdómur sem þarfnast sérhæfðar meðferðar, sem tekur langan tíma.

Þegar á Vog er komið taka sjúkraliðar á móti öllum sjúklingum, sem leggjast inn, oft eru það 8-10 einstaklingar á hverjum degi.  Sjúkraliðar á Vogi hafa margir hverjir áralanga reynslu af móttöku fíkla. Þeir leggja sig fram um að haga móttökunni þannig að einstaklingurinn upplifi að hann sé velkominn og þessi ákvörðun hans að koma sé honum til góðs. Sjúkraliðar taka komuviðtal og fá uppgefið hvaða neyslu einstaklingurinn er að koma úr og hversu lengi hún hafi staðið yfir. Eins og gefur að skilja er allur gangur á því en  flestir unglingarnir eru að koma úr blandaðri neyslu. Bæði áfengi og ólöglegum vímuefnum, hass reykja þau flest daglega ásamt því að nota örvandi efni um helgar.

Sum sprauta sig í æð. Einnig hefur færst  í aukana að unglingar noti róandi lyf, verkjalyf eða örvandi lyf. Ástand unglinga við komu er mjög misjafnt en mörg þurfa að fá lyf til að slá á fráhvarfseinkenni, flest glíma við svefnraskanir, kvíða og almenna vanlíðan. En þrátt fyrir það er gaman að sjá hvað þau eru oft fljót að jafna sig og ná lágmarks jafnvægi til að halda áfram í meðferð. Hin sem kjósa að fara heim geta alltaf leitað aftur á Vog og fengið að koma aftur ef illa gengur. Það skiptir máli að unglingar þekki hvert þau geta leitað þegar þau eru tilbúin að taka á sínum málum.

Á Vogi vinna heilbrigðisstarfsfólk, sjúkraliðar, hjúkrunarfræðingar, læknar og áfengisráðgjafar saman við að fræða og styðja við sjúklinga þannig að lágmarks jafnvægi náist áður en haldið er áfram í áframhaldandi meðferð. Sú meðferð fer annað hvort fram í göngudeild SÁÁ í Síðumúla í 1-2 ár eða 28 daga á Vík eða Staðarfell sem eru eftirmeðferðarstaðir SÁÁ.

Á næstu dögum mun sölufólk SÁÁ biðja um stuðning okkar í skiptum fyrir lítið verndartákn, SÁÁ álfinn. Kjarnakonur SÁÁ munu takan virkan þátt og vera á ferli í Kringlunni og hjá þeim er hægt að fá frekari upplýsingar um starf Kjarnakvenna SÁÁ. Markmið SÁÁ er að selja a.m.k. einn álf fyrir hvert ungmenni í landinu. Stöndum saman um að ná því markmiði með því að kaupa álfinn, af því að meðferð hjá SÁÁ skilar raunverulegum árangir, af því að sjúkdómurinn fer ekki í manngreinarálit og af því að hvert og eitt okkar skiptir máli.
 
Þóra Björnsdóttir
Höfundur er hjúkrunarforstjóri á Vogi

 

Til baka...

 

 

 

 Félag ungs edrúfólks

UNG-SÁÁ er nýtt félag ungs edrúfólks á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum uppá-komum og hvetur ungt fólk til að koma og kynna sér starfsemina.

 

Ertu í vanda? Spurningar og svör

 Úr myndaalbúmi SÁÁ

 

 

 

 

   

 Reynslusögur á RÚV !

Frábær viðtöl á Rás 2 við Guðlaugu Kjartansdóttur og Arnar Eggert. Einnig við Önnu Jónu Ármannsdóttur og Valgeir Skagfjörð. Við mælum með þessu.

 

Bankað upp á

Í þættinum Bankað upp á heimsækir Erla Tryggvadóttir

göngudeild SÁÁ í Efstaleiti í Reykjavík.