Styrktarsjóður

Tilgangur Styrktarsjóðs SÁÁ er að styrkja fátæka alkóhólista til þess að greiða sinn hluta í áfengis- og vímuefnameðferð.

Könnun

Ætti SÁÁ að opna sérstakt fjölskyldu- og barnahús?

Ársrit 2007-2010. Gert er grein fyrir starfseminni undanfarin 3 ár og fyrstu áhrifum kreppunnar á meðferðarþjónustu og vímuefnaneyslu.

Pistlar

Senda á Facebook
21. desember 2004

9 milljarðar á milli vina

Áfengisneysla á Íslandi hefur tvöfaldast síðan 1969 og vandamál tengd áfengisneyslu stóraukist. Líkur karla til að verða áfengismisnotkun að bráð hafa tvöfaldast og líkur kvenna tífaldast frá þessum tíma, en í dag þarf einn af hverjum fjórum körlum að leita sér aðstoðar vegna áfengis- eða vímuefnavanda einhvern tíma á lífsleiðinni og ein af hverjum tíu konum.

 

Oft þegar rætt er um áfengis- eða vímuefnavanda einstaklinga er það gert í hálfkæringi og  með vandræðalegum aulahúmor. Þessi heilbrigðisvandi hefur löngum verið feimnismál og talinn sjálfskaparvíti og aumingjaskapur og til marks um bilað siðferði sjúklingsins.  Samt sem áður er vandinn slíkur og almennur að í öllum þjóðfélögum hafa verið settar reglur varðandi áfengi og neyslu þess og í mörgum þeirra mjög strangar reglur. Ef áfengi væri fyrst að koma fram í dag er ólíklegt að framleiðsla, sala þess og dreifing yrði heimiluð af heilbrigðiseftirliti og stjórnvöldum.

 

“Ofneysla áfengis er gríðarlega kostnaðarsöm fyrir þjóðfélagið meðal annars vegna fósturskemmda, slysa, afbrota, sjálfsvíga, morða og vinnutaps svo að eitthvað sé nefnt. Talið er að allt að helmingur banaslysa í umferðinni megi rekja beint til ölvunar og sama prósentutala eigi við þegar morð eru framin. Tæpan þriðjung sjálfsvíga og druknana má einnig rekja beint til ölvunar.” skrifar Þórarinn Tyrfingsson á vef SÁÁ.

 

Í Bandaríkjunum hefur það verið reiknað út, að af 185 milljarða dala beinum kostnaði við áfengisvanda starfsmanna í fyrirtækjum, væri um 72% vegna minni framleiðslu, 14,5% vegna meðferðar og 13,5% vegna umferðarslysa tengdum áfengi. Þegar þessar tölur eru umreiknaðar yfir í íslenskar stærðir er verið að tala um 9 milljarða króna tap íslenskra fyrirtækja á hverju ári vegna minni framleiðni sökum áfengisvanda starfsmanna.

 

Á sama tíma og upplýsingar um áfengisvandann og kostnað samfélagsins vegna hans liggja fyrir, vilja 23 íslenskir þingmenn lækka áfengiskaupaaldurinn svo að þeir sem eru að gifta sig fyrir tvítugt, lendi ekki í of miklum vandræðum með að kaupa inn áfengið fyrir giftingarveisluna. Hvað er þetta eiginlega stórt vandamál?

 

“Er það til marks um hversu lítið gagn fræðsla um notkun og skaðsemi áfengis hefur gert, að 23 þingmenn, sem ætla má að flestir hafi a.m.k. meðalgreind og einhverja almenna menntun, skilja ekki að aukið aðgengi veldur meiri heildarneyslu áfengis. Það sýnir ennfremur hversu illa þeir fylgjast með, að það skuli ekki enn hafa náð til þeirra að hvers kyns áfengisvandamál eru nátengd heildarneyslu áfengis í samfélaginu, því meiri heildarneysla - því fleiri stórneytendur, því meiri heildarneysla - því meiri vandamál.” skrifar prófessor Tómas Helgason í Morgunblaðið, 26. október sl..

 

Skoðanakönnun og hagfræði

 

Á vef SÁÁ hefur verið gerð skoðanakönnun og spurt hvort hugsanlegt sé að fjárframlög dreifingaraðila og framleiðenda áfengis í leynilega sjóði stjórnmálaflokka hafi áhrif á afstöðu þingmanna til mála er varða hagsmuni þessara aðila? Furðumargir telja þetta hugsanlegt. Einhverjir munu sjálfsagt hneykslast á svona vangaveltum á meðan hlakkar í öðrum. Staðreyndin er sú að aukin heildarneysla áfengis gerir iðnað og verslun með áfengi stöðugt meira gildandi sem hagfræðilega stærð í efnahagslífi þjóðarinnar. Íslenskir fjölmiðlar birta nú hver í kappi við hinn, áberandi áfengisauglýsingar og hafa af þessu drjúgar tekjur þrátt fyrir gildandi bann við slíkum auglýsingum. Það má gera ráð fyrir, að eftir því sem tekjur fjölmiða af birtingu áfengisauglýsinga aukast, minnki að sama skapi áhugi þeirra á að fjalla á raunhæfan hátt um vandamál sem tengjast áfengisneyslunni. Hver vill vera tuða einhver leiðindi í miðju partý-inu?

 

Þórarinn Tyrfingsson skrifar um

Áhrif áfengis á fóstur og þroska barna

 

“Það er hálfgert feimnismál að tala um áhrif áfengis á fóstur og þroska barnanna og sú umræða á ekki alltaf upp á pallborðið hjá almenningi og heilsugæslufólki. Ástæðan er auðvitað sú að mörg okkar hafa orðið fyrir áhrifum áfengis í móðurkviði og fleiri af börnum okkar en við viljum kannast við hafa orðið fyrir því sama. Það hreyfir því við samvisku almennings þegar þetta ber á góma og einnig við samvisku heilsugæslufólks sem hefur ekki verið nægjanlega ákveðið við að kynna ófrískum konum hætturnar og stutt er síðan áfengi var jafnvel notað við lækningar hjá konum sem ganga með barni.


Ef kona drekkur þegar hún er barnshafandi getur það valdið skaða sem er allt frá vægum hegðunarvanda sem kemur fyrst fram á unglingsaldri til mikilla skaða á útliti og vitsmunum. Alvarlegustu skemmdirnar eru nefndar áfengisheilkenni (Fetal Alcohol syndrome) þá fer saman, minnkaður vöxtur, lítill heili, gat milli gátta hjartans, stutt augnrifa og vanþróaðir kjálkar.

 

Fóstrið er mjög misnæmt fyrir eituráhrifum og fer það eftir því á hvaða tímabili áfengið fær að virka. Hætta er mest á 3.-9. viku fósturþroska. Á fyrstu þremur vikunum er fóstrið það lítið þroskað að skemmdirnar sem verða eru annað hvort það miklar að fóstrið deyr eða þá að ef fóstrið lifir nær það sér. Hættan er mest á vanskapnaði á 4.-5. viku meðgöngu því að þá eru líffærin að myndast. Eftir það dregur úr hættunni. Eftir 9. viku eru líffærin fullsköpuð flest og ekki eins viðkvæm. Heili fóstursins er þó næmur fyrir áfengisneyslunni alla meðgönguna.”

 

Margir af þingmönnum okkar vilja ekki aðeins lækka áfengiskaupaaldurinn og lögleyfa auglýsingarnar, heldur einnig að sala og dreifing á áfengi verði færð inn í sjoppur og matvöruverslanir. Þeir eiga þennan draum sameiginlegan með kaupmönnum og iðnrekendum. Þegar sá draumur þeirra verður að veruleika birtist hann einnig sem vaxandi heildarneysla á áfengi og martröð þeirra fjölmörgu sem munu eiga um sárt að binda sem einstaklingar og fjölskyldumeðlimir, afkomendur og aðstandendur í áfengis- og vímuefnavanda og einnig sem tapaðir fjármunir fyrirtækja vegna minnkandi framleiðni og vaxandi kostnaður við heilbrigðiskerfið.

 

Arnþór Jónsson

Höfundur er varaformaður SÁÁ

 

meira
Til baka...

 

SMAST-greining, Short Michican Alcoholism Screening Test, telur 13 spurningar sem sem hjálpa þér að ákvarða hvort áfengisneyslan er í lagi.
Spjallið
S
M
Þ
M
F
F
L
29
1
2
3
4

5
6
7
8
9
10
11

12
13
14
15
16
17
18

19
20
21
22
23
24
25

26
27
28
29
30
1
2

3
4
5
6
7
8
9

Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Bræðralag gegn Bakkusi
Bók um stofnun og uppbyggingu öflugra samtaka sem sögðu vímunni stríð á hendur.

Minningarkort er einföld en áhrifarík leið til að sýna samúð í verki þegar orða er vant.