Styrktarsjóður

Tilgangur Styrktarsjóðs SÁÁ er að styrkja fátæka alkóhólista til þess að greiða sinn hluta í áfengis- og vímuefnameðferð.

Könnun

Ætti SÁÁ að opna sérstakt fjölskyldu- og barnahús?

Ársrit 2007-2010. Gert er grein fyrir starfseminni undanfarin 3 ár og fyrstu áhrifum kreppunnar á meðferðarþjónustu og vímuefnaneyslu.

Pistlar

Senda á Facebook
17. apríl 2005

Fleiri og fleiri deyja af völdum áfengisneyslu

Um 600.000 manns létust af áfengisneyslu í Evrópu árið 2002. Fjöldi þeirra sem deyr með þessum hætti vex stöðugt. Þessar upplýsingar voru kynntar á ráðstefnu Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar  í Stokkhólmi nýlega. Dauðsföllunum af völdum áfengisneyslu fjölgaði um 15% í Evrópu á árunum 2000 til 2002. Hvergi í heiminum er drukkið meira áfengi en í Evrópu. Neyslan og dauðsföllin af hennar völdum eru að meðaltali um tvöfalt meiri í Evrópu en annars staðar. Einkum virðist ungt fólk vera í hættu en samkvæmt skýrslu Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar tengist áfengi andláti fjórða hvers Evrópumanns á aldrinum 15 til 29 ára. Þegar við bætast dauðsföll af völdum umferðarslysa og ofbeldis hækkar þessi tala umtalsvert.

 

WHO mælir með því að álögur á áfengi verði hækkaðar, miklar hömlur lagðar á áfengisauglýsingar og gripið verði til fyrirbyggjandi ráða í umferðarmálum, atvinnulífi og heilbrigðisþjónustu. Hörð andstaða er þó við slíkar stýriaðgerðir í Evrópusambandinu þar sem víða er litið á áfengi sem hverja aðra neysluvöru. Einnig vega hagsmunir vínframleiðenda þungt í umræðunum.

 

Áfengi og áfengisneysla er alveg sér á parti í allri rökræðu og almennri umræðu. Ef venjuleg "neysluvara" eða "matvara", önnur en áfengi, ylli sama skaða og hreinlega dræpi 600 þúsund manns í Evrópu á hverju ári, hvernig væri umræðan þá? Hvað segðu framleiðendur kálhausa sem dræpu 600 þúsund manns á hverju ári í Evrópu? Kannski segðu þeir: "Kálhausarnir okkar eru eins og hver önnur neysluvara". Fólk myndi reka upp stór augu!

 

Svo er það neyslan sjálf og neytendurnir. Hvað segði neytandinn ef hann yrði "timbraður" af kartöfluáti eða mætti ekki aka bíl eftir át á einni meðalstórri gulrót? Hvaða þingmenn okkar mæltu með frjálsri sölu á ávaxtasafa sem ylli fóstursköðum? Sumir af þeim myndu kannski segja, "lifi frelsið, hver er sjálfum sér næstur", en flestir þeirra myndu vonandi vera vel á verði gagnvart slíkum skaðvaldi. En bara ekki áfengi, því áfengi er samofið menningu okkar og neysla þess markar líf okkar meira en flest annað. Tölur Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar um hvernig meira en 1600 manns deyja daglega af völdum áfengisneyslu í Evrópu, undirstrika hvernig áfengið markar líf okkar - meira en flest annað.

 

Kveðja,

Arnþór Jónsson

meira
Til baka...

 

SOGS-spurningalistinn telur 17 spurningar og gefur skýra mynd af því hvort spilavandamál er á ferðinni...
Spjallið
S
M
Þ
M
F
F
L
29
1
2
3
4

5
6
7
8
9
10
11

12
13
14
15
16
17
18

19
20
21
22
23
24
25

26
27
28
29
30
1
2

3
4
5
6
7
8
9

Fyrri mánuður
september 2010
Næsti mánuður
Leiðir til bata. Reynsluspor AL-Anon, erfðavenjur og þjónustuhugtök 1-3
Fyrstu þrjú sporin. Þessi vinnubók er sett saman af reynslu, styrk og vonum hundruð Al-Anon félaga

Minningarkort er einföld en áhrifarík leið til að sýna samúð í verki þegar orða er vant.