SÁÁ
29. apríl 2010 / 10:41
Senda á Facebook

Ölvunarakstur

 

Einn liður í kostnaði þjóðfélagsins af misnotkun áfengis og vímuefna eru slys. Þessi slys geta verið með ýmsum hætti og eru umferðarslysin líklega þau sem bestar upplýsingar liggja fyrir um. Það er líka ofboðslegt við umferðarslysin að fórnarlömbin eru bæði þeir sem misnota vímuefni, aðrir vegfarendur og aðstandendur beggja hópanna. Einnig ber að hafa hugfast að einstaklingar kjósa sjaldnast að verða fyrir slysum heldur lenda þeir í þeim af tilviljun. Ennfremur er nauðsynlegt að átta sig á því að líkamstjón í umferðarslysum hefur ekki einungis áhrif á þá sem í þeim lenda heldur einnig aðstandendur þeirra og e.t.v. fleiri. Því fylgja umferðarslysum jafnan svokölluð ytri áhrif (e. externality). Þetta á einkum við um áhrif á andlega og líkamlega líðan aðstandenda.

 

Nú verðum við að gera ráð fyrir að þeim sem setjast undir stýri undir áhrifum áfengis og/eða vímuefna sé ekki sjálfrátt og hegðun þeirra við það tækifæri. Þessháttar hegðun er vel þekkt og skilgreind m.a. af félagi amerískra geðlækna í DSM-IV greiningarkerfinu. Það gefur eftirfarandi greiningarskilmerki um misnotkun:

 

Neyslumynstur sem leiðir til vandræða sem eru klínískt marktæk, og kemur fram með a.m.k. einu af eftirfarandi einkennum, sem geta átt sér stað á hvaða tíma sem er á sama 12 mánaða tímabilinu:

  1. Misbrestur á að uppfylla skyldur sínar í vinnu, skóla eða heima (endurteknar fjarvistir, léleg frammistaða, vanræksla heimilis og barna)
  2. Endurtekin neysla, jafnvel þar sem það er hættulegt (ölvun við akstur eða stjórnun véla)
  3. Endurtekið komist í kast við lögin vegna neyslu
  4. Áframhaldandi neysla þrátt fyrir endurtekin og viðvarandi vandræði sem hún veldur í samskiptum og þjóðfélagsstöðu (rifrildi, slagsmál, stöðumissir)

 

Segja má, með nokkurri skynsemi, að ölvunarakstur hljóti að falla undir þessi skilyrði. Þar með er ekki verið að segja að allir sem aki undir áhrifum séu alkóhólistar, þó þeir séu eflaust stór hluti hópsins, heldur séu hér á ferðinni, öllum vegfarendum til lífshættu, þeir sem misnota áfengi og vímuefni.

 

Í skýrslu Rannsóknarnefndar Umferðarslysa 2006 má skoða hvaða manntjón varð af völdum ölvunar-og vímuakstri. Þar má sjá að á því ári urðu 31 banaslys. Í 15 skipti af þessum slysum var ökumaður undir áhrifum áfengis- og/eða vímuefna. Stundum hefur rannsóknarnefndin tínt til aðra orsakaþætti í slysunum s.s. að ökumaður hafi ekki verið með bílbelti eða ekið of hratt, en það má með nokkrum rétti segja að frumorsök allra þessara 15 banaslysa á árinu 2006 hafi verið ölvun og víma.

 

Með umræðu um að sjálfsagt sé að selja áfengi í matvöruverslunum og að lækka eigi áfengiskaupaaldur til móts við sjálfræðisaldur gleymist að gera ráð fyrir þeim kostnaði og áþján sem því mun óhjákvæmilega fylgja. Það er ljóst að neysla mun aukast við slíka slökun á áfengisstefnu og er því mikilvægt að haldið sé til haga hverjar eru hagfræðilegar afleiðingar. Ljóst er að það eru peningalegir hagsmunir sem reka þá áfram sem vilja slíkar breytingar enda eru talsmenn breytinganna fulltrúar verslunar og þjónustu eða þeirra sem hafa fjárhagslega hagsmuni af sölu áfengis. Í málflutningi þeirra er látið í veðri vaka að það fylgi mikið óhagræði af því að geta ekki keypt áfengi í almennum matvöruverslunum. Þá er rétt að andæfa og benda á raunverulegan skaða sem hlýst af áfengisneyslu og mikilvægi þess að öllum ráðum sé beitt til að draga úr þeim skaða. Á sama tíma hljóta menn einnig að velta fyrir sér tilgangi og stefnu ÁTVR sem birts hefur í fjölgun útsölustaða, auglýsingum, lengdum opnunartíma, óljósari skila á milli ÁTVR og matvöruherslanna og síðast en ekki síst með því að selja áfengi á bensínstöðvum á landsbyggðinni.

 

 

Til baka...
 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...