SÁÁ
26. apríl 2010 / 09:16
Senda á Facebook

Uppljómun í einni andrá

 

Vímuefnafíkn þróast á löngum tíma og veldur ekki bara breytingum á líffræði heilans heldur mótar hún alla starfsemi hans og býr til í fíkilinn fastmótuð viðhorf, hugsunarhátt og hegðun. Segja má að fíknin grópist í sálarlíf eða persónuleika hans og sitji þar föst. Til þess að vinna bug á fíkn sinni þarf fíkillinn að breyta varanlega hugsunarhætti sínum, viðhorfum og hegðun. Slíkt næst einungis fram með mikilli vinnu og þolinmæði og tekur langan tíma. Góð og inngripsmikil meðferð þarf að koma til þar sem fíkillinn fær nauðsynlega aðstoð. Þó að hægt sé að benda á dæmi um fólk sem hefur getað breytt sér án meðferðar ef það hefur orðið fyrir ákveðinni lífsreynslu eða eftir langa og stranga baráttu við sjúkdóminn eru þau dæmi allt of fá og batinn þá oft dýru verði keyptur.

 

Það blasir við í hinu daglega lífi að vímuefnameðferð þarf að vera inngripsmikil og standa í tvö ár ef hún á að duga. Fjöldinn allur af rannsóknum segir þetta líka. Samt er eins og enginn vilji trúa þessu og allir vilji loka augunum fyrir því hversu alvarlegur sjúkdómur vímuefnafíkn er og hversu viðamikla meðferð þarf til ná lækningunni fram. Fólk býr til goðsagnir um skyndilausn á vandanum og viðheldur þeim. Menn eru sagðir hafa fengið uppljómun í einni andrá, einu viðtali, við trúarlega reynslu eða í stuttri meðferð og læknast varanlega. Þeir sem hafa náð bata eru stundum duglegastir við að halda við trúnni á skyndilausnir. Allt eru þetta blekkingar sem verða öllum ljósar þegar málin eru skoðuð nánar því að engin nær bata frá vímuefnafíkn nema á löngum tíma og með mikilli aðstoð.

 

Sjá einnig fræðsluefni

 

 

 

 

Til baka...
 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...