Helsti vandi hinna ungu og vaxandi er amfetamín- og kókaínfíkn

Ólöglegir vímuefnafaraldrar einkennast af því að öll dreifing, sala og jafnvel framleiðsla efnanna er utan við lög og rétt. Við þessar aðstæður hagnast einungis ungt afbrotafólk sem heldur markaðnum gangandi. Neytendurnir nota vímuefnin í mjög stórum skömmtum og sprauta margir efnunum í æð.
Slíkur alvarlegur ólöglegur amfetamínfaraldur barst til Íslands árið 1983. Afbrot og ofbeldi í vímuefnaheiminum fór strax vaxandi og sprautufíklar urðu til á Íslandi í fyrsta sinni.
Faraldurinn lýsti sé svipað og hann gerði í Svíþjóð áratuginn á undan og neytendurnir voru ungir og sprautuðu margir vímuefnunum í æð.
Hjá okkur var og er ólöglegur vímuefnavandi fyrst og fremst amfetamínvandi þó að morfín og kókaín hafi komið við sögu í vaxandi mæli frá 1999. Þessi vandi jókst gríðarlega á árunum 1996-1997 herjar af miklum þunga á fólk sem er á aldrinum 20 til 35 ára. Vandinn er mjög alvarlegur og vegna hans koma 6% Íslenskar karlmanna og 3% íslenskra kvenna til afeitrunar á Vog fyrir 30 ára aldurinn. Um helmingur þeirra sprautar efnunum í æð og þriðjungur fær langvinna lifrarbólgu C. 8% látast á næstu 10 árum eftir að þeir greinast með slíka fíkn.
Kannabisvandinn hefur sérstöðu
Í ljós hefur komið á síðustu áratugum að það eitt að herða reglur og lög minnkar ekki aðgengi að slíkum ólöglegum vímuefnum í vestrænum þjóðfélögum. Þetta hefur sýnt sig hér líka. Það þýðir lítið að fangelsa fíklana sem halda fíkn sinni gangandi með afbrotum. Hert lög og forvarnarvinna í grunnskólum virðast skila litlum árangri hér og í öðrum löndum.
Það eina sem vitað er með vissu að dugar er að hefja vímuefnameðferð nógu snemma bæði í heilbrigðiskerfi og fangelsum og endurtaka meðferðina eins oft og þurfa þykir. Vandi ólöglegrar vímuefnaneyslu í þessari mynd, það er að segja örvandi vímuefnavandi hefur aldrei verið meiri en árið 2006.
Daglegar kannabisreykingar eru mikið vandamál meðal þeirra ungu og er aðalvandi þeirra sem koma til meðferðar og eru yngri en 20 ára. Forvarnaraðgerðir aðrar en meðferð duga þar betur en þegar örvandi vímuefnin eiga í hlut. Auk þess dugar meðferðin betur við kannabisfíkn en við áfengisfíkn, ávanalyfjafíkn og annarri ólöglegri vímuefnafíkn.
Úr blaði SÁÁ 2007