Vissir þú að....

..hófleg drykkja er skilgreind á eftirfarandi hátt:
Karlar (20-65 ára):
Tveir drykkir eða minna á dag að jafnaði.
Aldrei meira en fimm drykkir í hvert sinn.
Samanlagt fjórtán drykkir á viku eða minna.
Konur (og karlar eldri en 65 ára):
Einn drykkur eða minna á dag að jafnaði.
Aldrei meira en fjórir drykkir í senn.
Samanlagt minna en sjö drykkir á viku.
Hvað er einn drykkur af áfengi?
Vínföng innihalda mismunandi mikið magn af áfengi og því er nauðsynlegt að finna mælikvarða sem almenningur á auðvelt með að skilja. Sú venja hefur skapast að tala um drykki af áfengi sem þá eru skilgreindir á eftirfarandi hátt: Einn drykkur eða vínskammtur inniheldur um 12 g af hreinu áfengi. Slíkur skammtur svarar til u.þ.b. eins barskammts (sjúss) sem eru 30 ml af brenndu víni, um 150 ml af léttu víni eða um 400 ml af bjór.
Ofangreind mörk hófdrykkju geta verið of há fyrir aldrað fólk eða þá sem eru með vissa sjúkdóma. Ef þú ert í vafa um hver mörk þín eru skaltu ráðfæra þig við lækni þinn.
Fólk yngra en 18 ára á ekki að nota áfengi!!
Meira...