SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?
25. maí 2009 / 08:44
Senda á Facebook

Hvað er sérstakt við áfengis- og vímuefnameðferðina á Íslandi?

Þórarinn Tyrfingsson

 

Leiðari úr SÁÁ blaði eftir Þórarin Tyrfingsson

 

Á Íslandi hafa hlutfallslega miklu fleiri farið í áfengis- og vímuefnameðferð en í öðrum löndum. Ástæðan fyrir því er meðferðarstarf SÁÁ sem byggt er upp í kring um afeitrunarsjúkrahúsið Vog í Reykjavík. Á sjúkrahúsið Vog koma flestir Íslendingar sem eiga við alvarlegan áfengis- og vímuefnavanda fyrr eða síðar. Í lok ársins 2008 höfðu 4,0 % núlifandi kvenna og 9,5% núlifandi karla á Íslandi verið innritaðir á Sjúkrahúsið. Má áætla að þangað komið um helmingur þeirra sem þurfa á meðferð að halda meðan aðrar þjóðir ná að veita 10-15% áfengis- og vímuefnasjúklinga nauðsynlega meðferð.

 

Vogur er 25 ára um þessar mundir og býr Íslenskum áfengis- og vímuefnasjúklingum og fjölskyldum þeirra meira öryggi og von en annars staðar er að finna. Hann er fjöreggið sem SÁÁ fólkið heldur á í hendinni og þarf að varðveita. Á Vog koma karlar og kerlingar, stelpur og strákar afar og ömmur og krakkar. Þar eiga skjól þeir sem verst eru farnir og á götuna komnir og kannabisfíklarnir ungu. Þar spóka sig stundum á göngunum löggur, lögfræðingar, alþingismenn og læknar. Þar verður vonin til í brjóstum þeirra sem henni höfðu tapað og þar fá menn uppljómun og andlega vakningu til nýrra átaka og sigra.

 

Vogurinn er eitt af þjóðargersemum okkar sem þarf að varðveita og hlúa sérstaklega að í komandi kreppu og erfiðleikum.

 

Sjá einnig SÁÁ blað á pdf formi

 

 

Til baka...

 

 

 

 Félag ungs edrúfólks

UNG-SÁÁ er nýtt félag ungs edrúfólks á Íslandi. Félagið stendur fyrir ýmsum uppá-komum og hvetur ungt fólk til að koma og kynna sér starfsemina.

 

Ertu í vanda? Spurningar og svör

 Úr myndaalbúmi SÁÁ

 

 

 

 

   

 Reynslusögur á RÚV !

Frábær viðtöl á Rás 2 við Guðlaugu Kjartansdóttur og Arnar Eggert. Einnig við Önnu Jónu Ármannsdóttur og Valgeir Skagfjörð. Við mælum með þessu.

 

Bankað upp á

Í þættinum Bankað upp á heimsækir Erla Tryggvadóttir

göngudeild SÁÁ í Efstaleiti í Reykjavík.