Endurkomur og endurkomumenn

Guðbjörn Björnsson skrifar
Alkóhólismi er krónískur heila-sjúkdómur. Það er eðli krónískra sjúkdóma, að hann getur tekið sig upp aftur og fólki slær niður.
Margir halda að alkóhólistar þurfi oftar og meiri meðferð en aðrir sjúklingar með króníska sjúkdóma. Það er misskilningur. Alkóhólistar þurfa minni meðferð og miklu ódýrari meðferð en þeir sem eru haldnir öðrum viðvarandi sjúkdómum.
Ekki alltaf sama fólkið á Vogi
Meira en helmingur þeirra rúmlega 19.000 Íslendinga sem komið hafa í meðferð á Vog hafa aðeins þurft að koma einu sinni og 80 % þessara einstaklinga hafa komið þrisvar eða sjaldnar. Þetta fólk hefur flest náð varanlegum árangri og lifir vonandi góðu lífi. Þessar tölur segja mest um árangur meðferðar, því viðbúið er að sjúklingur sem fengið hefur rétta sjúkdómsgreiningu og fellur aftur, hann kemur aftur og þarf að fara aftur í meðferð fyrr eða síðar.
Við erum oft spurð; hvort þetta sé ekki alltaf sama fólkið sem er að koma inn á Vog. Það er af og frá. Þegar innlagnartölur eru skoðaðar nánar kemur í ljós að það eru ekki nema tæplega 4 % af þessum 19.000 einstaklingum sem hafa komið í meðferð á Vog oftar en 10 sinnum. Vissulega er þessi hópur áberandi og stundum fyrirferðamikill en ekki er hann stór miðað við allan fjöldann sem nær árangri.
Einn algengasti króníski sjúkdómurinn
Það kemur fyrir að sjúklingar koma inn á Vog og hafa ekki tekið ákvörðun um að hætta neyslu. Mörgum snýst hugur í meðferðinni, taka vel við sér og gengur vel. Svo er líka fólk sem er lagt inn vegna þess að það er orðið fárveikt af drykkjuskap og þarf læknisaðstoð og hjúkrun. Sumir koma inn nær dauða en lífi. Þá er ekki spurt við innlögn hvort það ætli að hætta að drekka, stundum snýst málið um að líkna sjúkum og særðum. Þegar jafnvægi er náð, er svo reynt að koma meðferðinni að. Við sjáum stundum að þessi hópur nær varanlegum árangri eftir margar meðferðir og þetta er ekki alltaf sama fólkið. Þessi hlutfallslega litli hópur endurkomufólks er stöðugt að breytast, sumir ná góðum árangri og aðrir bætast í hópinn. Stærð hópsins er aftur á móti nokkuð stöðugur.
Alkóhólismi er einn af algengustu krónísku sjúkdómum í veröldinni og ekki eru Íslendingar eftirbátar. Við skulum hafa það í huga að 9,4% karla og 4,0% kvenna eldri en 16 ára hafa komið á sjúkrahúsið Vog í meðferð og langflestir þeirra náð frábærum árangri.
Höfundur er læknir á Vogi
Sjá einnig SÁÁ blaðið á pdf formi
Endurkomufólk.
- 7.4.2010 13:20:33
Svo má ekki gleyma því að margir úr þessum hóp þurfa kannski önnur úrræði sem SÁA hefur ekki tök á að veita vegna fjárskorts, en spurningin er: Hver á að taka við þessu fólki ef SÁÁ gerir það ekki??
Georg Georgsson með fimm meðferðir að baki. og hafðist að lokum.