Börn alkóhólista í aukinni áhættu

Það fylgir því mikið álag að vera Barn alkóhólista. Svo benda allar tölur til þess að barn alkóhólista sé mun líklegra til að greinast með sjúkdóminn en aðrir. Þess vegna hefur SÁÁ hrint af stað miklu forvarnarstarfi sem miðar að því að ná til barna alka. Bæði til að veita þeim stuðning og aðstoð og viðurkenningu. En líka sem forvörn. Því fróðari sem börnin eru því betur í stakk búin eru þau til að taka afstöðu til eigin neyslu síðar meir.
Rannsóknir sýna auknar líkur á að barn sem á foreldri sem leitað hefur hjálpar á Vogi endi á Vogi sömuleiðis. SÁÁ hefur hafið forvarnarstarf fyrir börn alkóhólista á aldrinum 8-18 ára og býður nú upp á sálfræðiviðtöl fyrir þau.
„Í rúmt ár höfum við rekið sálfræðiþjónustu SÁÁ,“ segir Lárus Blöndal, sálfræðingur hjá SÁÁ, um þjónustuna. „Við göngum út frá því að börnin séu sjálf ekki byrjuð í neyslu. En þessi þjónusta er góð nýjung. Við byrjuðum smátt og veittum viðtöl fyrir hádegi einn dag í viku. Smám saman höfum við aukið við þjónustuna og nú erum við alla virka daga,“ heldur Lárus áfram en alls hafa 150 börn komið í viðtöl.
Viðurkenningin mikilvæg
Þjónustan er auðsótt. Foreldrar, forráðamenn eða stofnanir hafa samband við móttökuritara í Von í síma 530 7600 og fá tíma fyrir barnið. Áætlað er að hvert barn fái sex til átta einstaklingsviðtöl og er gjaldi fyrir þetta stillt mjög í hóf, eða 1.000 krónur skiptið.
„Aðsóknin hefur farið langt framúr björtustu vonum,“ segir Lárus og segir að vegna þessa sé því miður nokkurra vikna bið eftir viðtali nema um bráðamál sé að ræða.
Hver eru helstu markmið þjónustunnar?
„Þegar barn kemur í viðtal fær það staðfestingu og viðurkenningu á því að það að vera barn alkóhólista hefur haft afleiðingar fyrir barnið. Að auki er með viðtalinu rofin ákveðin einangrun þeirra sem hafa búið við þessar aðstæður,“ segir Lárus en að hans mati er viðurkenningin mjög mikilvæg. „Þetta skiptir máli bæði í nútíð og framtíð. Við leggjum áherslu á að hjálpa barninu að skilja betur stöðu sína og helstu afleiðingar hennar.“
Þá er einnig mikilvægt, að sögn Lárusar, að barnið fái hjálp til að skilja betur stöðu foreldra sinna og þann vanda sem þeir eiga við að stríða. ( Sjá einnig grein Lárusar um sama efni )
Tekið úr SÁÁ blaðinu 2009