SÁÁ
23. september 2010 / 10:11
Senda á Facebook

Nei, á Vog fer ég aldrei! Fyrr hætti ég að drekka...!

Valgerður Rúnarsdóttir læknir

 

Valgerður Rúnarsdóttir læknir hvetur fólk til að leita til ráðgjáfa SÁÁ eða læknis eða taka skimunarpróf á heimasíðu SÁÁ.

 

Fyrirsögnin hljómar kunnuglega, ekki satt? Margir sem til okkar koma á Vog, lýsa einmitt þessu viðhorfi sínu sem þeir höfðu einhvern tíma. Hvernig stendur á því að einmitt þeir sem helst þyrftu að leita sér aðstoðar, hafa stundum slíka fordóma? „Það eina sem þarf, er að vera nógu ákveðinn... hafa bein í nefinu... láta þetta ekki eftir sér...“

 

Fíkn sterkari en skynsemi og rök

Jú, víst er það, að það hjálpar að vera ákveðinn og harður við sig, en ... ef það væri nóg, þá hefðum við lítinn vanda af fíknsjúkdómnum. Það eru nefnilega einmitt þeir sem eru áfengis eða vímuefnasjúkir, sem hafa endurtekið verið harðir við sig, tekið ótal ákvarðanir um að breyta, minnka drykkju/neyslu, hafa hana sjaldnar eða jafnvel að hætta. Þeir hafa jafnan góð tök á ýmsu öðru í lífinu, skóla, vinnu, fjölskyldu... en drykkjan/neyslan er ekki eins og þeir vildu hafa hana.

 

Það er merki um fíknsjúkdóm. Annars hefðu þeir nú þegar breytt neyslunni eins og þeir vildu helst hafa hana eða jafnvel hætt. Ef það væri einfalt og sneri eingöngu að skynsemi og viljastyrk. En það er bara ekki svo. Þeir sem ekki geta haft neysluna eins og skynsemi þeirra og vilji segir til um, eru líklegir til að hafa fíknsjúkdóm. Enda vitum við að sá sjúkdómur stafar af breytingum sem hafa orðið í heila einstaklingsins, á byggingu og starfsemi ákveðinna svæða þar, og hefur m.a. áhrif á hegðun og dómgreind. Fíkn þróast og verður sterkari en skynsemi og rök, hjá þeim sem veikir eru ef fíknsjúkdómi.

 

Hafa samband við ráðgjafa eða lækni

Meðferð við fíknsjúkdómi er til, hún virkar vel og er langtíma verkefni. Þess vegna er það merkilegt að vilja gera allt annað en að leita sér aðstoðar við einmitt honum. Margir sem eyða árum í að reyna að stjórna drykkjunni/neyslunni, sýna fram á að hún sé „undir stjórn...“, velta þessu fyrir sér og hafa mikið fyrir að sýna fram á að vandinn sé ekki til staðar, eða drykkjan sé afleiðing af öðru, meðan eðlilegast hefði verið að viðkomandi væri löngu hættur miðað við vandræðin eða vanlína sem drykkjan/neyslan hefur valdið.

Það skaðar ekki að skoða málið ef slíkar vangaveltur um vanda... eða ekki vanda.. eru til staðar.

 

Skimunarpróf á heimasíðu SÁÁ gefa vísbendingu, viðtal við ráðgjafa í göngudeild getur verið hjálplegt, heimilislæknir eða sem aðrir læknar geta greint vandann.

 

Gangi þér vel

 

 

Til baka...
- 23.9.2009 22:05:00 þetta er alltaf sama ferlið, sumir eru svo óheppnir að ná ekki að leita sér hjálpar í tæka tíð.
 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...