SÁÁ
8. apríl 2010 / 08:39
Senda á Facebook

Nýr áhættuhópur

 

Miðaldra fólk og eldra eykur komur sínar á Vog

 

Drykkja er langt frá því að vera bara unglingavandamál. Hún snertir alla aldurshópa. Á síðustu misserum hefur nýr hópur aukið komur sínar á Vog. Það er miðaldra og eldra fólk. Nú er svo komið að það horfir til vandræða. Drykkja eldra fólks hefur almennt slæm áhrif á heilsuna og æ algengara er að hún valdi alvarlegum heilasjúkdómi sem kallast Wernickes.

 

Aukin dagneysla á áfengi

 

Meðan augu almennings hafa beinst að ungum vímuefnaneytendum og vandamálum þeirra hafa eldri borgarar á Íslandi laumast til að auka drykkju sína svo að til vandræða horfir.

 

Á sjúkrahúsið Vog kemur nú stöðugt fleira fullorðið fólk með alvarleg einkenni vegna daglegrar notkunar áfengis. Drykkjan gerir alla langvinna sjúkdóma sem þetta fólk er með verri. Eins og til dæmis hjarta- og lungnasjúkdóma. Verst eru þó áhrif drykkjunnar á heilastarfsemina. Æ algengara er að miðaldra og eldra fólk, sem leitar sér hjálpar á Vogi, hafi alvarleg einkenni frá heilanum. Jafnvel byrjandi einkenni um Wernickes-heilasjúkdóm.

 

Áfengi skaðar heilann

 

Dagleg áfengisneysla getur valdið verulegum skemmdum á taugakerfinu, einkum heilanum.

 

Hættan er mest hjá fólki sem komið er á miðjan aldur eða eldra. Þessi áhrif geta komið fram sem breytingar á tilfinningaviðbrögðum einstaklingsins og persónuleika hans og einnig sem breytingar á viðhorfum hans, hæfileikum til að læra nýja hluti og minni.

 

Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, hefur miklar áhyggjur af þessari þróun. Hann veit sem er að áfengi hefur margvísleg og flókin áhrif á heilafrumurnar. Þannig breytir áfengið til dæmis boðefnabúskap heilans.

 

„Vannæring og alvarlegir lifrarsjúkdómar sem fylgja drykkjunni geta einnig framkallað einkenni frá heilanum,“ útskýrir Þórarinn en bendir á að reynslan hafi sýnt að fólk getur jafnað sig oft merkilega vel ef það fer í bindindi og þeir einstaklingar sem voru komnir með alvarleg viðvörunareinkenni frá heilanum geta fengið góða starfsgetu að nýju leiti þeir sér hjálpar.

 

Truflun á heilastarfsemi yngra fólks

 

Lengi vel eða allt fram til 1980 var sú venja ríkjandi þegar fjallað var um áhrif áfengis á heilann að haldið var á lofti varanlegum heilaskemmdum sem koma venjulega ekki fram hjá ungum áfengissjúklingum fyrr en eftir áratuga drykkju samfara vannæringu og vosbúð. Lítið var fjallað um aðrar vægari truflanir á heilastarfseminni hjá ungu drykkjusjúklingunum.

 

Í dag vita menn að heilaskemmdir eru mjög algengar og valda verulegum vandræðum. Þær geta jafnvel stuðlað að því að fólk sem hafi ákveðið að hætta að drekka byrji áfengisneyslu að nýju án þess að vilja það.

 

Hér á árum áður var lítið talað um hversu miðaldra fólk og eldra þolir illa daglega áfengisneyslu. Óhófleg áfengisneysla veldur mismiklum skemmdum á heilanum sem geta verið allt frá vægum breytingum sem geta gengið til baka í verulega rýrnun og skemmdir á taugavefnum. Einkennin geta að sama skapi verið allt frá vægum starfrænum truflunum í elliglöp á lokastigi.

 

Heilaskemmdir verða oftast í réttu hlutfalli við hversu lengi og mikið er drukkið. Þær eru þó mjög persónubundnar og hjá tveimur sjúklingum með álíka drykkjusögu og bakgrunn getur annar verið með miklar heilaskemmdir meðan hinn sýnir engin merki um slíkt.

 

Wernickes-heilasjúkdómurinn

 

Wernickes-heilasjúkdómurinn er alvarlegur heilasjúkdómur sem herjar með sífellt vaxandi þunga á miðaldra Íslendinga sem neita áfengis daglega. Sjúkdómurinn er lífshættulegur og veikindin eru bráð og alvarleg. Bati af Wernickes-heilasjúkdóminum lætur oft á sér standa og fylgikvilli bráðra veikinda getur verið viðvarandi heilabilun (sjá nánar hér neðar á síðunni).

 

„Dagdrykkja Íslendinga sem eru eldri en 40 ára er hratt vaxandi vandamál og á eftir að skapa ómæld útgjöld í félags- og heilbrigðisþjónustunni á komandi árum ef ekki verður gripið til viðeigandi forvarnaraðgerða og meðferðar,“ segir Þórarinn Tyrfingsson.

 

-MT sjá SÁÁ blaðið

 

 

Wernickes heilasjúkdómur

(Wernick´s encephalopathy)

 

Wernickes er alvarlegur heilasjúkdómur sem herjar með vaxandi þunga á miðaldra Íslendinga sem drekka áfengi daglega. Þessum sjúkdómi var fyrst lýst í lok nítjándu aldar (um 1881). Þegar fólk veikist af þessum sjúkdómi fyrst eru veikindin bráð, alvarleg og jafnvel lífshættuleg. Batinn lætur oft á sér standa og fylgikvilli bráðu veikindanna getur orðið viðvarandi heilabilun sem einkennist fyrst og fremst af minnistruflunum.

 

Ástæða fyrir sjúkdómnum er thiamínskortur sem verður vegna daglegrar áfengisdrykkju. Maður þarf um 1 mg af thiamíni á dag. Í lifrinni er geymdur varaforði sem dugar í 3-4 vikur. Það sem setur dagdrykkjufólk í sérstaka hættu að fá þennan heilasjúkdóm er lélegt næringarástand og slæm nýting á þeim vítamínum sem í boði eru. Það dugar lítið að taka B-vítamíntöflur þegar drukkið er daglega því thiamín kemst illa inn í blóðið á meðan drukkið er og í 6-8 vikur eftir að drykkju er hætt. Þeir sem eru komnir yfir miðjan aldur eru í sérstaklega mikilli hættu.

 

Það sem oftast hrindir síðan af stað bráða Wernickes-heilsjúkdómi hjá dagdrykkjumönnum sem þjást af thiaminskorti er aukið álag eða aukin efnaskipti líkamans. Aukið álag eða efnaskipti verða þegar áfengissjúklingar fara í alvarleg fráhvörf, fá sýkingar eða slasast.

 

Sjúklingur með Wernickes-heilasjúkdóm verður ruglaður og man lítið, augun fara að tina eða riða og sjúklingurinn getur jafnvel orðið rangeygur og óstöðugur á fótunum. Aðeins í 30% tilvika sjúkdómsins eru öll þessi einkenni til staðar. Vera þarf á varðbergi ef til staðar eru eitt eða tvö af þessum einkennum. Ef sjúklingur fær ekki thiamín í sprautum verður bati lítill og jafnvel hætta á dauða. Batinn sem kemur verður á fyrstu 3 mánuðunum. Um 20% sjúklinga fá góðan bata en um 25% fá lítinn sem engan bata.

 

Til baka...
 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...