SÁÁ
14. apríl 2010 / 09:21
Senda á Facebook

Kókaín- og amfetamínfaraldur

Í fyrra náði kókaín hæstu hæðum. Ungir íslenskir karlmenn sitja í fangelsum á Íslandi og víða um heim vegna tilrauna til smygls. Sífellt fleiri koma á Vog, háðir kókaíni, en sjúkrahúsið hefur ártugareynslu af amfetamínfaraldri sem hófst fyrir næstum 30 árum.

 

Amfetamín kom hingað til lands fyrir rúmum 25 árum. Í kjölfarið bjuggust fagaðilar við að kókaínið myndi hefja innreið sína. Enda kókaínfaraldur staðreynd vestan hafs. KóKaínið kom á endanum, næstum tuttugu árum síðar og náði hámarki í fyrra.

 

Kókaínið kom til Reykjavíkur á árunum 1998-2000 og aldrei hefur verið meira af því en árið 2008.

 

Þótt kannabisfíkn hafi aukist og valdið verulegum breytingum á sjúklingahópnum á Vogi er þó tilkoma og aukning amfetamínfíknar mun alvarlegri. Faraldur ólöglegrar amfetamínneyslu sem svipaði til amfetamínfíknar í Svíþjóð hófst á Íslandi 1983. Síðan þá hefur örvandi vímuefnaneysla vaxið stöðugt þegar á heildina er litið og tók stórt stökk um leið og E-pillan kom til Íslands árið 1996.

 

Örvandi vímuefnafíkn hefur hlutfallslega aukist úr 10 % í 30% á síðustu 20 árum og síðustu árin verið aðalvandi fólks á aldrinum 20-30 ára. Um 70 % þeirra greinist með örvandi vímuefnafíkn af einhverju tagi. Það sem einkennir neysluvenjur fíklanna er að efnin er notuð í stórum skömmtum, í túrum og þau eru sogin í nef eða þeim sprautað í æð. Um 30% örvandi vímuefnafíkla fá lifrarbólgu C og rúmlega helmingur sprautar efnunum í æð.

 

Á árinu 1998 kom kókaín fyrst að einhverju gagni til Íslands og blandaðist og bættist við þann örvandi vímuefnavanda sem fyrir var. Kókaínneyslan hefur aldrei verið meiri en á árinu 2008.

 

 

Sjá SÁÁ blaðið 2009

 

 

 

Til baka...

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

Nora í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér svarar hún hvað séu hættulegastu fíkniefnin.