SÁÁ
12. apríl 2010 / 09:10
Senda á Facebook

Snilld að vera edrú

Linda Vilhjálmsdóttir, rithöfundur

 

Í góðærinu voru það Björgólfur Guðmundsson og Jóhannes í Bónus sem héldu uppi merkjum þess að vera edrú. Þá áttu allir alvöru karlar að hætta að drekka og meika það feitt í bisness. Í dag er okkur alveg sama um peninga og leitum inn á við og náum bata. Auðvitað hlýtur svarið við því hvernig við förum að því að liggja hjá konunum. Mikael Torfason hafði samband við nokkrar flottar konur sem unnu ekki í happadrætti heldur unnu í sjálfum sér og vita sem er að það er eiginlega hálf kjánalegt að deyfa sig fyrir lífinu.

 

Linda Vilhjálmsdóttir, rithöfundur: Þakklát fyrir að eiga seinni hálfleikinn eftir

 

„Ég hélt mér myndi leiðast voða mikið við að hætta að drekka,“ segir Linda Vilhjálmsdóttir rithöfundur, „svo ég keypti mér allskonar föndur- og prjónadót. En ég náði bara að prjóna eina peysu. Það var nóg annað að gera.“

 

Þetta var fyrir tæpum níu árum. Síðan þá hefur viðhorf Lindu til lífsins tekið 360 gráðu snúning. Hún er líka sannfærð um að hún væri lengur í lifenda tölu ef hún hefði ekki hætt.

 

„Og það var fleira sem kom mér á óvart. Til dæmis uppgötvaði ég að mér finnst ekkert sérstaklega gaman að fótbolta þegar bjórinn fylgir ekki með. Ég er svo til hætt að fara á völlinn og horfi í mesta lagi á úrslitaleikinn í heimsmeistarakeppninni,“ segir Linda og hlær og bætir því við að það sé líka allt annað og skemmtilegra líf að ferðast án áfengis. „Maður er ekki lengur bundinn við barinn.“

 

„Ég hef verið að þvælast til mið-austurlanda síðustu ár með Jóhönnu Kristjónsdóttur. Þetta eru frábærar ferðir og í haust fer ég í síðustu ferðina með henni því hún er að hætta.“

 

Linda býr í miðbænum. Í sömu íbúðinni. Hún er ennþá rithöfundur og á sama manninn. Það breyttist ekki mikið á yfirborðinu við að hætta að drekka. Eða, jú, hún fékk sér bíl. Þorði aldrei að fá sér bíl áður og vildi mikið frekar nota peninginn í annað. Það sem breyttist mest var afstaðan til lífsins. Hún er til dæmis byrjuð í líkamsrækt og bjóst aldrei við því að fara að eyða peningum, tíma og orku í svoleiðis puð.

 

 „Ég hef líka minna þol fyrir drykkju annarra. Ég finn það. Án þess að ég vilji setja mig á háan hest þá finnst mér ég sjá betur og betur hvað íslenskt samfélag er alkóhólískt,“ segir Linda en hún býr við Laugaveg og fær því drykkjuna beint í æð.

 

„Ég verð alltaf jafn hissa þegar ég kem út á Laugaveginn á kvöldin um helgar og lendi á útihátíðinni sem stendur þar allt árið um kring. Ég er svo sjálfhverf að ég gleymi því alltaf að partíið er ekki búið þó að ég hafi kosið að yfirgefa svæðið,“ heldur Linda áfram og glottir.

 

„Annars er voða erfitt að útskýra fyrir fólki hvað það var mikill léttir að taka þessa ákvörðun. Það erfitt að koma því í gegn til allra þeirra sem þora ekki að sleppa takinu á glasinu. Fólksins sem heldur að fjörið fari úr lífinu ef það hættir að drekka. Það er ekki þannig. Og þetta er miklu léttara svona. Það er miklu auðveldara að lifa lífinu án áfengis en með því,“ segir Linda og bætir því að hún sé þakklát fyrir að eiga seinni hálfleik lífsins eftir, alsgáð. „Ég á alla möguleika á góðu lífi og innihaldsríku,“ segir Linda að lokum. 

 

Sjá einnig SÁÁ blaðið

 

 

Til baka...
Krossgötur í lífi hins íslenska alkóhólista!
- 29.8.2009 23:22:42 Nafna mín, er sammála þessu öllu, en það er alveg ótrúlegt hvað maður er fljótur að verða samdauna og samlitur etanólhaugnum "þegar maður missir eitt augnablik" takinu á edrúmennskunni...en ef maður dettur þá verður maður að standa upp aftur....
 

 

 Viðtöl

Kári Stefánsson

Alkóhólismi er heilasjúkdómur...

 


Ari Matthíasson

Notum peningana í annað...

 


Valgerður Lísa

Barnshafandi konur vilja hætta í neyslu...

 


  Fleiri viðtöl...

 

 

 

Hvað er meðvirkni?

Meðvirkni er flókinn sjúkdómur sem erfitt er að skilja...


Meðferð við meðvirkni

Flestir þeir sem eru meðvirkir þurfa að fá sérstaka meðferð...


Einkenni meðvirkra

Hjálparhellan, hetjan, þóknarinn...


Að greina meðvirkni

...búið náið með virkum fíkli í langan tíma.


Þróun meðvirku fjölskyldunnar

Ekki tala um ,,vandamálið”...

 

Börn alkóhólista

Það er mikilvægt að rjúfa einangrun barna sem búið hafa við alkóhólisma. Kíkið á börn alkóhólista...